Fréttatíminn - 25.11.2016, Qupperneq 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 25. nóvember 2016
„Púða, kodda, sjálf-
virkar nuddgræjur,
náttföt, ullarsokka
og mjúk teppi, til að
geta horft á Netflix og
slakað á í enn meiri
þægindum.“
„Sleifarstand. Ég fékk
slíkan grip í jólagjöf frá
ömmu minni fyrir mörgum árum
og fannst þetta gagnlausasta gjöf
í heimi. Í einhverjum flutningun-
um lenti hann á Sorpu og ég sé
mikið eftir því. Ég hugsa um hann
og ömmu hvert einasta sinn sem
ég elda og þarf að leggja sósuga
sleifina á annars tandurhreint
graníthelluborðið.“
„Gjafabréf á Skinnsemi full-
orðinssirkus. Alvöru skemmtun,
typpamálun, brjóstadúskar og
sjálflýsandi húllafjör. Fyrir utan
einstaka uppistandsýningar er
þetta eina sýningin sem ég hef
farið á og ekki verið við það að
sofna allan tímann. Þau eru með
nýtt prógramm fyrir janúar og eru
að selja gjafabréf núna, sem væri
mjög sniðug gjöf handa mér.“
„Alls konar furðudót af Ali Ex-
press. Það er mjög þægilegt og
skemmtilegt að sitja á náttfötun-
um fyrir framan tölvuna langt
fram á nótt og netkaupa gjafir frá
Kína. Verðið er það lágt að það er
ekki hundrað í hættunni ef grip-
irnir reynast minna en hágæða-
vara. Þetta er auðvitað alls ekkert
sniðugt fyrir kolefnafótsporið og
stéttabaráttu verksmiðjustarfs-
manna svo það fylgir þessu nett
samviskubit. Ég hef samt fengið
margar fínar gjafir þaðan, eins og
til dæmis einangrandi strútspúða
sem fer yfir höfuðið og er með
götum fyrir munn og hendur
svo hægt sé að leggja sig hvar og
hvenær sem er.“
„Listaverk,
helst eftir
gefandann
sjálfan eða
vini hans
og kunn-
ingja til þess
að fá persónulega tengingu við
verkið. Það er ótrúlega mikið af
snjöllu fólki að selja myndlistina
sína og eftirprentanir á facebook
á jólagjafaviðráðanlegu verði.
Vonandi líkar manni myndin en ef
ekki er samt alveg bannað að skila.
Ósamstæðir og skrýtnir hlutir sem
gefnir eru frá hjartanu gera húsið
að heimili og fólk lærir að elska þá
með tímanum.“
Ekki vera Skröggur!
Berglind Björk
Halldórsdóttir,
kennari,
gistihúsaeigandi,
þýðandi og þriggja
barna móðir við
Reynisvatn, lætur
jólagjafir aldrei
flækjast neitt fyrir sér.
Hún elskar bæði að
gefa og þiggja og er
enga stund að þylja
upp sínar helstu óskir
þessi jólin.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Öllu gamni fylgir einhver alvara og ef
þú hefur ekki gert góðverk eða gefið
til hjálparstarfs allt árið og leggst svo
útbelgdur af jólamat í nýumbúið rúm
í hlýjum og öruggum vistarverum að
kvöldi aðfangadags án þess að hugsa
tvisvar, þá ertu eiginlega algjör hálf-
viti,“ segir Berlind Björk. Mynd | Rut
„Skrautmunir úr Góða hirðin-
um. Það eru ýmsar gersemar sem
leynast þar en því miður fara þær
oft fram hjá manni því það er svo
sjaldan sem maður hefur tíma til
að fara og gramsa. Oft ber lykt-
in mann líka ofurliði og varpar
skítugum blæ á annars fagurlega
skapaða hluti. Ég veit til þess að
það er fólk sem situr um bestu
hlutina og selur þá á uppsprengdu
verði í smáauglýsingum eða net-
verslunum. Þegar hlutirnir eru
komnir heim úr skransölunni og
eru settir á instagram myndu þeir
nefnilega sóma sér vel í hvaða Hús
og híbýli blaði sem er.“
„Áfengi, það get-
ur ekki klikk-
að. Portvín og
piparkökur með
mygluostum er
geggjað saman.
Það eru víst tuttugu
og ein tegund af
íslenskum jólabjór-
um í ár og svo er
hægt að „pimpa“ gjöfina upp með
fallegu bjórglasi. Mig langar líka í
svona snyrtilega græju sem felur
rauðvínsbeljur. Þá get ég haft hana
í eldhúsinu og hætt að kaupa alltaf
sömu tegundina. Með því að gera
það og skipta um svo lítið ber á
halda nefnilega allir að þetta sé
alltaf sama beljan sem er í gangi
upp í skáp.“
„Gjafakörfur með matvör-
um. Reyktar pylsur, ostar,
gæðasúkkulaði og hjúpaður lakk-
rís, biscotti kökur, brauðolíur og
síróp, heimagerðar smákökur,
sultur, kæfur, þurrkaðir ávextir
og kryddhnetur. Allt þetta minnir
mig á þegar Emil í Kattholti stalst
í búrskápinn og hélt veislu fyrir
fólkið á fátækrahælinu. Það er
ótrúlega notalegt að ganga frá
þessu inn í ísskáp, vitandi það að
maður á nægar vistir til að narta í
næstu daga.“
„Nudd- og baðolíur,
baðsölt og skrúbbar
úr ilmkjarnaolíum.
Þótt sturtusápa og
freyðibað úr lág-
vöruverslun dugi
vel hversdags er
einstaklega nota-
legt og heilsusam-
legt að nota vörur
gerðar úr alvöru
jurtum án allra aukaefna. Þær
eiga að hafa áhrif á líkama, huga,
tilfinningar og sál. Losa um orku-
hindranir og alls konar. Ég veit
svo sem ekki hvort ég finni bara
áhrifin eftir að hafa lesið um þau
aftan á flöskunni en jólin eru tími
töfra og ég trúi á þá.“
„Gjöf sem gefur frá
Hjálparstarfi kirkjunnar.
Öllu gamni fylgir einhver
alvara og ef þú hefur
ekki gert góðverk eða
gefið til hjálparstarfs
allt árið og leggst svo
útbelgdur af jóla-
mat í nýumbúið
rúm í hlýjum og
öruggum vistarver-
um að kvöldi að-
fangadags án þess
að hugsa tvisvar,
þá ertu eiginlega al-
gjör hálfviti. Andvirði þessara
gjafabréfa renna til hjálparstarfs
innanlands og erlendis eftir þörf-
um. Það má til dæmis velja um
jólagjafir undir tré til barna for-
eldra sem hafa lítið á milli hand-
anna á Íslandi, gjafir sem hjálpa
til sjálfshjálpar í Afríku eins og
geitur, hænur, tré og örlán sem
og neyðarpakka og máltíðir fyrir
fólk í flóttamannabúðum um allan
heim. Ekki vera Skröggur! Þú get-
ur hjálpað.“
„Það er mjög þægilegt
og skemmtilegt að sitja
á náttfötunum fyrir
framan tölvuna langt
fram á nótt og netkaupa
gjafir frá Kína.“
SÆTA SVÍNIÐ // Hafnarstræti 1–3 / Sími 555 2900 / saetasvinid.is
GASTROPUB
JÓLASEÐILL 1
5 JÓLALEGIR RÉTTIR OG 2 GÓMSÆTIR EFTIRRÉTTIR
FLATKÖKUR MEISTARANS, léttgrafin bleikja, rjómaostur,
dill, sítróna
TVÍREYKT HANGIKJÖT, steikt laufabrauð
OFNBAKAÐUR HUMAR með hvítlaukssmjöri,
humar-mayo, maís-chilisalsa
ANDABRINGA, blómkálsmauk, appelsínu-portvínssósa
NAUTALUND OG RIFIN LAMBAÖXL, bernaisefroða,
ostrusveppir
Eftirréttir
SÚKKULAÐIKAKA „NEMISIS“ bökuð á 90°C
JÓLASKYR
5.990 kr.
JÓLASEÐILL 2
7 JÓLALEGIR RÉTTIR OG 2 GÓMSÆTIR EFTIRRÉTTIR
FLATKÖKUR MEISTARANS, léttgrafin bleikja, rjómaostur,
dill, sítróna
TVÍREYKT HANGIKJÖT, steikt laufabrauð
OFNBAKAÐUR HUMAR með hvítlaukssmjöri,
humar-mayo, maís-chilisalsa
HROSSA CARPACCIO, döðlur, rucola-mayo, stökkir
jarðskokkar, parmesan
ANDABRINGA, blómkálsmauk, appelsínu-portvínssósa
SALTFISKUR, sætar kartöflur, tómat-chutney
NAUTALUND OG RIFIN LAMBAÖXL, bernaisefroða,
ostrusveppir
Eftirréttir
SÚKKULAÐIKAKA „NEMISIS“ bökuð á 90°C
JÓLASKYR
7.990 kr.
JÓLÓ
MATSEÐLAR
FYRIR HÓPA
Frá 22. nóvember bjóðum við
spennandi jólamatseðla fyrir hópa
– 8 manns eða fleiri.
Teikningar | Hari