Fréttatíminn - 25.11.2016, Blaðsíða 38
38 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 25. nóvember 2016
Jóhann Páll Valdimarsson, stofn-
andi Forlagsins, hefur selt sinn
hlut í fyrirtækinu og mun láta af
störfum sem stjórnandi þess um
áramótin. Hann segist ekki hafa
hugmynd um hvað taki við, en
hann sé manískur maður og detti
örugglega eitthvað skemmtilegt í
hug. Það vanti til dæmis bæjar-
stjóra í Corleone á Sikiley.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Bókaútgáfa er
lífshættulegt starf
Flestir halda að ég sé að segja ósatt
þegar ég segist ekki hafa hugmynd
um hvað ég er að fara að gera, en
það er alveg satt,“ segir Jóhann Páll
Valdimarsson, bókaútgefandi Ís-
lands, þegar hann er spurður hvað
hann ætli að taka sér fyrir hendur
nú þegar hann hefur selt sinn hlut
í Forlaginu og lætur af störfum um
áramótin. „Konan mín er að þýfga
mig um þetta en ég get ekki svar-
að henni því ég veit það ekki sjálf-
ur. Eina planið sem ég er með er
að plana ekki neitt. Ég ætla bara að
leyfa lífinu að koma til mín og sjá
hvað gerist á þeirri leið sem eftir er,
hvað sem hún verður nú löng. Mér
finnst bara svo gaman að lífinu og
æ meira gaman eftir því sem ég eld-
ist. Þegar ég var ritstjóri Verzlunar-
skólablaðsins skrifaði ég ritstjórnar-
grein sem hét: Lifðu stutt, og lifðu
vel, deyðu ungur og vertu fallegt lík,
en ég er margbúinn að biðja Guð um
að gleyma þessari grein. “
Vill hætta í stuði
Jóhann Páll er 64 ára gamall og hef-
ur verið viðriðinn bókaútgáfu nán-
ast frá barnsaldri, hvað kom til að
hann ákvað að segja skilið við hana?
„Það gerðist eitthvað þegar ég
varð sextugur, alveg out of the blue.
Þá sagði mér einhver eðlisávísun að
þetta væri orðið fínt, nú skyldi ég
hætta þessu. Ég sagði engum frá
þessu, ekki einu sinni konu og börn-
um, fyrr en fyrir tveimur eða þrem-
ur árum. Þá sagði ég þeim að nú
hyggðist ég gera breytingar, en þau
tóku mig greinilega ekki alvarlega.
Það var ekki fyrr en á hólminn var
komið, um mitt þetta ár, að þau átt-
uðu sig á að mér var fúlasta alvara
með þetta. Egill Örn, sonur minn
spurði hvernig mér dytti í hug að
hætta núna, ég væri í bullandi stuði
og sýndi það í vinnunni, brennandi
af áhuga og stútfullur af hugmynd-
um, það gengi engan veginn upp að
ég hætti núna. En það er akkúrat
pælingin hjá mér, að fara meðan
ég er í stuði og meðan ég get þetta
og hef ánægju af. Mér finnst hin til-
hugsunin; að láta keyra mig heilabil-
aðan og gargandi í hjólastól út úr
Myndir | Hari Þegar ég varð sextugur sagði einhver eðlisávísun mér að þetta væri orðið fínt, nú skyldi
ég hætta þessu, segir Jóhann Páll Valdimarsson sem hættir sem forleggjari um áramótin.