Fréttatíminn - 25.11.2016, Qupperneq 62
9.999 kr.
PARÍS f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a rs 2 0 1 7
15.999 kr.
NEW YORK f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
15.999 kr.
WASHINGTON D.C. f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
9.999 kr.
GRAN CANARIA f rá
T í m a b i l : f e b rú a r - m a rs 2 0 1 7
15.999 kr.
TENERIFE f rá
T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
20% afsláttur 20% afsláttur
Fáðu enn lægra verð!
TIL ALLRA WOWFANGASTAÐA
WOW!
Fjólublár
föstudagur!
62 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 25. nóvember 2016
Fyrir hundrað árum gekk
illmennið Fantômas nánast fram
af bókaormum í Frakklandi,
slík var illska hans og slægð. Nú
sendir íslenska hljómsveitin
Amiina frá sér nýja plötu
með tónlist sem tengist þessu
skrautlega illmenni sem fljótlega
var kominn upp á hvíta tjaldið
eftir að hann sló í gegn hjá
glæpaþyrstum lesendum.
Guðni Tómasson
gudni@ruv.is
Það er ekki víst að þú, lesandi góð
ur, þekkir nafnið Fantômas nema
þú sért þeim mun betur að þér í
hundrað ára gömlum glæpasög
um frá Frakklandi. Þessi persóna
er samt hvorki meira né minna en
lávarður hryllingsins og ein allra
þekktasta og vinsælasta persóna
franskra glæpasagna.
Sögurnar af Fantômas urðu til
í samvinnu höfundanna Marcel
Allain og Pierre Souvestre og slógu
fljótlega í gegn. Fantômas kom fram
á sjónarsvið bókmenntanna árið
1911 en saman skrifuðu höfundarn
ir þrjátíu og tvær bækur um óþokk
ann áður en Souvestre dó, en þá
bætti Allain bara ellefu sögum við
flokkinn.
Stórhættulegur glæpon
Fantômas er glæpamaður sem svífst
einskis og oft er horft til hans sem
eins konar millistigs í þróun frá ill
mennum nítjándu aldar til nútíma
legra raðmorðingja sem hafa allar
götur síðan verið vinsælt umfjöllun
arefni glæpasagnahöfunda.
Hann er sinn eigin herra, vægðar
laus með öllu og mikill sérfræðing
ur í að dulbúast. Í mörgum tilfellum
fer hann frumlegar og flóknar leið
ir í glæpum sínum. Þannig drepur
hann til dæmis fórnarlömb sín með
risavöxnum snákum, plágusýktum
rottum eða kemur þeim feiga fyrir
í herbergi sem fyllist hægt og rólega
af sandi.
Af þessum lýsingum að dæma
þótti ljóst að Fantômas var fædd
ur fyrir hvíta tjaldið og sögurnar
Sögurnar um óþokkann Fantômas héldu frönskum lesendum í helj-argreipum fyrir hundrað árum.
Útlit útgáfunnar á tónlist Amiinu um Fantômas tekur skiljanlega mið af glæpa-
manninum og ódæðum hans. Meðlimir Amiinu stilla sér auðvitað upp í kirkju-
garði með svartan „ælæner“ í kringum augun.
Amiina
innblásin
af franska
fantinum
Fantômas
um hann voru fljót
lega kvikmyndaðar,
enda buðu þær upp
á hressandi notk
un á tæknibrellum
þess tíma.
Strax á árun
um 1913-14 leik
stýrði franski leik
st jór inn Louis
Feuillade f imm
þöglum kvikmynd
um um Fantômas
og ódæði hans.
Hver myndanna
er ríflega klukku
stund að lengd og
líkt og átti við um
bækurnar áttu
þessar myndir
eftir að hafa mikil
áhrif á ýmsa lista
menn á 20. öldinni. Þar má til
dæmis nefna súrrealista og framúr
stefnulistamenn á borð við skáldið
Guilliaume Appolinaire og mynd
listarmanninn René Magritte.
Illmennið heillaði Amiinu
Á hundrað ára afmæli þöglu mynd
anna um Fantômas fékk íslenska
hljómsveitin Amiina það óvenjulega
verkefni að semja tónlist við eina
myndanna eftir Feuillade. Sýning
myndanna fór fram í hinu glæsilega
Hljómsveitin Amiina er í dag skipuð Sólrúnu Sumarliðadóttur, Guðmundi Vigni
Karlssyni, Magnúsi Tryggvasyni Elíassen og Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur. Nú
gefur sveitin út tónlist sína við aldargamla þögla spennumynd.
leikhúsi Théâtre
du Châtelet við
Sig nubakka í
miðborg Parísar
á Hrekkjavöku
kvöldi árið 2013.
Það var franski
tónlistarmaður
inn Yann Tiersen
sem hafði um
sjón með verk
efninu þar sem
fimm ólíkir tón
listarhópar sömdu
tónlist við mynd
irnar.
Amiina hafði
tím ann fyrir sér
og fékk því að velja
sér eina af mynd
unum fimm til að
semja tónlistina
við. „Við heilluð
umst algjörlega af þessu illmenni,
sem er dálítíð úr karakter því við
erum ekkert mikið í illmennun
um,“ segir Sólrun Sumarliðadótt
ir, einn liðsmanna Amiinu. „Þess
ar myndir eru heillandi en mjög
kaótískar þegar maður horfir á þær
fyrst. Þarna er mikið hugarflæði á
ferðinni og maður skilur hvorki
upp né niður í framvindunni. Síð
an fer maður að fá tilfinningu fyrir
þessu og þá var freistandi að leika
af fingrum fram undir myndinni.
Við ákváðum hins vegar á endanum
að semja nokkuð nákvæma og út
skrifaða tónlist undir myndina, sem
er jafnvel með sérstökum leiðar
stefjum fyrir einstakar persónur
myndarinnar.“
Kyrkislöngur og lestarslys
Sólrún segir það hafa verið mjög
áhugavert að takast á við að semja
tónlist fyrir ríflega hundrað ára
gamla kvikmynd. „Í myndinni okk
ar var til dæmis sena sem gengur
út á risastóra kyrkislöngu og mann
í gaddabelti, þarna er líka mjög
leikrænt lestarslys og enn ein sena
úr klaustri, svo eitthvað sé nefnt.
Það var þannig af ýmsu að taka í
dramatískum og flottum atriðum.
Það skemmdi síðan ekki fyrir að
fara út til Parísar, vinna með tón
listarfólki úr ýmsum áttum sem
fengu sama verkefni og tók að sér
aðrar myndir í seríunni og fá loks
að flytja þetta á þessum ævintýra
legu tónleikum í Châtelet leikhús
inu. Það var ekkert slor að fá að
vinna þar.“
Nú lítur tónlistin dagsins
ljós í sjálfstæðri útgáfu, bæði á
geisladisk, vínylplötu og í stafrænu
formi. „Fljótlega sáum við að það lá
beint við að búa til plötu úr þessu
verkefni, hver sena í kvikmyndinni
átti sér þannig skýran hljóðheim og
okkur langaði mikið til að gefa þetta
út. Okkur fannst Fantômas líka eiga
það skilið.“
Útgáfudagur á nýju plötunni er
laugardagurinn 26. nóvember en
allar nánari upplýsingar er að finna
á heimasíðu sveitarinnar, amiina.
com. Útgáfunni verður fagnað í
Mengi að kvöldi útgáfudagsins.
Það skemmdi síðan ekki
fyrir að fara út til Parísar,
vinna með tónlistarfólki
úr ýmsum áttum sem
fengu sama verkefni og
tók að sér aðrar myndir
í seríunni og fá loks að
flytja þetta á þessum
ævintýrlegu tónleikum í
Châtelet leikhúsinu. Það
var ekkert slor að fá að
vinna þar.“