Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 13. janúar 2017 Nýr menningar viti við höfnina Nýtt tónlistarhús, Fílharmónían við ána Elbu, var opnað í þýsku hafnarborginni Hamborg á miðvikudag. Þetta magnaða stórhýsi er eitt glæstasta menningarhús Evrópu og þó víðar væri leitað. Nýja tónlistarhúsið breytir ásýnd Hamborgar heilmikið. Ásamt sjónvarpsturni borgarinnar og nokkrum kirkjuturnum er tónlistarhúsið meðal hæstu bygginga á svæðinu, þar sem það gnæfir yfir borginni. „Ég vild’ ég væri ennþá út í Hamborg ég ennþá er með hugann út í Hamborg.“ Svona söng Raggi Bjarna á 45 snún- inga plötu árið 1967. Þessi slagari, um kvennafar í hafnarborginni þýsku, verður varla á efnisskrám í nýju tónlistarhúsi borgarinnar, Elbphilharmonie, sem heimamenn kalla Elphi sín á milli. Stórhýsið var tekið formlega í notkun á miðviku- dag með hátíðartónleikum. Húsið stendur í HafenCity hverfinu í Hamborg. Það stendur á mörkum Elbu, sem rennur frá fjalllendi Tékklands og að Norðursjó, og einum af hinum fjöl- mörgu hafnarbökkum borgarinnar. Húsið er 110 metra hátt, en til samanburð- ar má nefna að Harpa er 43 metrar. Eins og oft er með tónlistarhús af þessari stærðargráðu fór byggingarkostnaður töluvert fram úr áætlun. Hornsteinn var lagður árið 2007 og ráðgert var að taka bygginguna í notkun árið 2010. Kostn- aðaráætlun þá hljóðaði upp á 241 milljón evra (29. 4 milljarðar króna á núvirði) en endaði hins vegar í 789 milljónum evra (96, milljarðar króna). Það eru stjörnuarkitektarnir Jacques Herzog og Pierre de Meuron sem eiga heiðurinn að hönnun tónlistarhússins, ásamt auðvitað fjölmörgum öðrum. Lík- lega eru þeir þekktastir fyrir umbreytingu sína á Bankside orkuverinu í London sem hefur hýst Tate Modern safnið frá árinu 2000. Þeir hafa sagt innblásturinn að baki byggingunni koma úr þremur áttum: Frá fornu leikhúsi í Delphi í Grikklandi, íþróttaleikvöngum og tjöldum. Í húsinu eru tveir tónleikasalir. Stóri salurinn tekur 2100 gesti í sæti og er í svokölluðum „vínekrustíl“ með hallandi sætaskipan í allar áttir, en sviðið er í miðju rýmisins. Minni salurinn er hannaður fyrir margskonar viðburði og minni tónleika. Hann tekur 550 gesti í sæti. Elbphilharmonie er í raun nýbygging ofan á annarri eldri. Glerbyggingin stendur á gömlu vöruhúsi sem heitir Kaispeicher A og var byggt eftir síðari heims- styrjöld eftir að eldri bygging frá 1875 hafði eyðilagst í loftárásum bandamanna. Þar var höndlað með kakóbaunir, tóbak og te allt fram á tíunda áratuginn. Elbphilharmonie er nýjasta tónlistarhús Evrópu. Það verður heimili samnefndrar fílharmóníusveitar í Hamborg. Upphaflega var gert ráð fyrir að húsið yrði opnað árið 2010 og það var því stór dagur í sögu Hamborgar þegar húsið var loksins vígt í vikunni. Boðsgestir mættu í sínu fínasta pússi á tónleikana en þúsund miðum úthlutað með útdrætti. Efnisskrá tónleikanna var frá ýmsum tímum en lauk á lokakafla níundu sinfóníu Beethovens. Myndir | Elbphilharmonie.de og Getty. GLÆSILEGAR BORGIR Í A-EVRÓPU Í BEINU FLUGI Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki. BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. GDANSK Í PÓLLANDI Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. VERÐ FRÁ 87.900.- WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 VILNÍUS Í LITHÁEN Vilníus er eins og margar aðrar borgir í Eystrasaltinu frá miðöldum og glæsileg eftir því. Upphaf borgarinnar má rekja til ársins 1330 og er gamli bærinn á minjaskrá Unesco. Þröngar steinilagðar götur er viða að finna í gamla bænum og gamli byggingastíllinn blasir hvarvetna við. Flogið er tvisvar í viku allt árið. föstud. og laugard. 13. og 14. jan. dansiball www.kringlukrain.is Kringlukráin Kringlunni 4-12 Sími 568 0878 www.kringlukrain.is H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Samkvæmt breytingum á reglum um Æskulýðssjóð, nr. 60/2008, auglýsir sjóðurinn eftir umsóknum um styrki tvisvar sinnum á ári, 15. febrúar og 15. október. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á rannis.is. Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi fyrir kl. 17:00 miðvikudaginn 15. febrúar 2017. Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 515 5833. Umsóknarfrestur 15. febrúar 2017 Æskulýðs- sjóður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.