Fréttatíminn - 13.01.2017, Page 42
42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 13. janúar 2017
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Við hittumst fyrst fyrir tveimur og hálfu ári og höfum verið svo mikið saman og upplifað svo margt saman síðan. Þó ég
sé ekki alltaf að hanga með þess-
um stelpum þá verða þær góðar
vinkonur mínar að eilífu. Við erum
þakklátar fyrir hvað við náðum vel
saman,“ segir Jónína Þórdís Karls-
dóttir. „Við áttum að vera bestu vin-
konur í myndinni og við kynntumst
svo vel að við urðum bara í alvöru
bestu vinkonur,“ segir Katla með
bros á vör.
Ástin
Hafið þið einhverntímann orðið
ástfangnar?
Allar fara að hlæja.
Jónína: „Já, ég átti kærasta frá átt-
unda bekk þangað til í menntaskóla
og við vorum saman í þrjú ár. Það
hafa flestir orðið ástfangnir og þess
vegna tengja flestir við það sem ger-
ist í myndinni.“
Er erfitt að verða ástfanginn í fyrsta
skiptið?
Diljá: „Maður veit ekki alveg af
hverju manni líður svona.“
Jónína: „Ég man að mér leist ekkert
rosalega vel á þá hugmynd að verða
ástfangin. Mig langar ekki að ein-
hver strákur geti bara stjórnað mér
og mínum tilfinningum.“
Katla: „Ég hef bara aldrei verið
ástfangin þannig ég veit ekki alveg
um hvað þetta snýst.“
Diljá: „Ég myndi nú ekki segja að
ég hafi verið ástfangin, það er mjög
þýðingarmikið og gerist ekki bara
allt í einu.“
Jónína: „Enda tekur það alveg
nokkur ár, ég meina allavega ár.“
Diljá: „Að vera ástfangin er að eld-
ast saman og þá myndast einhver
tengsl.“
Getur maður þá verið ástfanginn
þegar maður er unglingur?
Allar í kór: „Já.“
Rán: „Já, ég held að það sé alveg
mögulegt.“
Katla: „Ég þekki fólk sem hefur
verið saman síðan það var 14 ára og
á 30 ára brúðkaupsafmæli, þetta er
alveg hægt!“
Stelpurnar eru sammála um að
ástin komi ekki af sjálfu sér. Það taki
langan tíma og kosti traust að verða
ástfanginn.
Jónína: „Þetta þarf að vera mann-
eskja sem þú eyðir miklum tíma
með. Þú getur ekki verið ástfanginn
af einhverri poppstjörnu.“
Rán: „Þú ert ástfanginn þegar þér
finnst hin manneskja vera hluti af
þér og þér finnst erfitt að vera án
hennar.“
Jónína: „Og á kvöldin þarftu alltaf
að senda „góða nótt“ og ef þú ert
ekkert búin að heyra í manneskj-
unni í heilan dag, þá ertu bara
„bíddu halló?!“, og þá finnst manni
eitthvað vanta.“
Hefur þú líka verið ástfangin Diljá?
Allar fara að hlægja.
Diljá: „Ég er á fyrsta stiginu, ég er
að „deita“ strák. Það voru komnir
þrír mánuðir í gær.“
Allar stelpurnar skríkja og klappa
fyrir nýja sambandinu hennar
Diljár.
Jónína: „En hann kom samt á for-
sýninguna.“
Rán: „Ég var einmitt að hugsa hvort
þetta væri kærastinn hennar, ég
skildi ekkert hvað var í gangi.“
Diljá: „Ég verð alveg smá hrædd við
þessa tilfinningu, ég spyr mig oft af
hverju ég er svona upptekin af ein-
hverri annarri manneskju, ég bara
skildi þetta ekki alveg. Svo róaðist ég
og vandist aðeins aðstæðum. Þetta
er allt mjög nýtt og spennandi.“
Jónína: „Það verður líka allt svo
skemmtilegt þegar maður er
ástfanginn.“
Katla: „Ég held að strákar séu
svolítið hræddir við mig, ég er svo
svakalega opin og ég held að þeir
þori bara ekki í mig.“
Dilja: „Sko, strákar í áttunda og
níunda bekk hafa bara ekki alltaf
aldurinn í það að vera með stelpu
með skoðanir. Það eru oftast puntu-
dúkkurnar sem eignast kærasta
fyrst því strákarnir eru svolítið
hræddir við stelpur með skoðanir.“
Katla: „Krakkar á þessum aldri eru
eiginlega bara að byrja saman til
þess að setja daginn sem þau byrj-
uðu saman á Instragram- vegginn
sinn.“
Fara svona sambönd mikið fram á
samfélagsmiðlum?
Diljá: „Núna eru engir strákar sem
koma upp að þér og tala við þig.“
Rán: „Þeir þurfa ekki að horfast í
augu við viðbrögðin, þeir geta bara
ákveðið að kíkja ekki á skilaboðin
eða svara þeim ekki.“
Katla: „Þeir tala bara við mann á
Snapchat eða Instagram og segja
kannski hvað ég er í flottum fötum
en þora svo ekkert að segja það
þegar ég kem í skólann. Þeir hlaupa
bara í burtu þegar þeir sjá mig.“
Jónína: „Já þeir hlaupa eins hratt og
þeir geta.“
Katla: Ég fæ stundum vbm (viltu
byrja með mér) á Snapchat frá strák-
um sem ég þekki ekki neitt.“
Vináttan
Stelpurnar eyddu miklum tíma
saman á meðan upptökum á Hjarta-
steini stóð á Borgarfirði eystri.
Traust og vinátta voru mikilvægir
þættir þegar vinnudagar drógust á
langinn eða stelpurnar áttu slæman
dag. Það var mikilvægt í æfingaferl-
inu að stelpurnar lærðu að treysta
hvor annari til þess að getað leikið
bestu vinkonur í myndinni.
Þekktust þið áður en þið byrjuðuð á
myndinni?
Diljá: „Ég þekkti Jóní aðeins áður,
en hún var náttúrlega einu ári eldri
en ég.“
Jónína: „Við eldri stelpurnar
könnuðumst allar hver við aðra
áður en svo kom Katla sterk inn í
hópinn.“
Katla: „Já, ég þekkti engann en við
Diljá enduðum á að verða mjög góð-
ar vinkonur.“
Diljá: „Það tók samt alveg sinn
tíma!“
Katla: „Diljá er náttúrulega tveimur
árum eldri.“
Diljá: „Ef ég á að segja eins og er,
að þá er svolítið litið niður á þá sem
hanga með þeim sem er tveimur
árum yngri, í mínu hverfi. En við
bjuggum saman í herbergi á meðan
tökum stóð þannig við enduðum á
því að opna okkur og tengjast mjög
mikið.“
Rán: „Ég er svo þakklát að hafa
unnið með ykkur stelpur því
tökurnar voru ekki alltaf dans á rós-
um og það var svo gott að hafa ykk-
ur og ég er svo ánægð með að þið
voruð svona skemmtilegar.“
Strákar hræddir við
stelpur með skoðanir
Diljá Valsdóttir 16 ára, Jónína Þórdís Karlsdóttir 17 ára, Rán Ragnarsdóttir ný orðin 18 ára, Katla Njálsdóttir 14 ára. Mynd | Hari.
Ástin og vináttan eru aðalþemu kvikmyndar-
innar Hjartasteins sem verður frumsýnd í kvöld
um allt land. Stelpurnar í Hjartasteini ræða þessi
mál sem fylgja unglingsárunum við blaðamann
Fréttatímans
sushisocial.is
SURF’N TURF RÚLLA
Stökk humar tempura, gómsætt
nauta-carpaccio, mjúkt avókadó,
teriyaki, spricy mayo og brakandi
chili crumble ... geggjað!
Djúsí
Sushi
P ORTRET T
AÐGANGUR ÓKEYPIS
Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, 6. hæð, 101 Reykjavík · Opið 12–19 mán–fim, 12–18 fös, 13–17 um helgar · www.borgarsogusafn.is
Handhafar Hasselblad-verðlaunanna
24. 9. 2016 –15.1. 2017
Heimili
& hönnun
ALLT UM SKIPULAG
Þann 28. janúar
gudrunhelga@frettatiminn.is