Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 44
44 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 13. janúar 2017
Sló óvænt met
í spilakassa
Snorri Gunnar Sigurðsson náði næstum milljón stigum í Galaga.
Snorri Gunnar Sigurðarson,
múrarameistari og tæknimað-
ur, sett á laugardaginn met í
Galaga-spilakassanum í Fredda.
Snorri segist þakka góðum
félagsskap og heppni fyrir gott
gengi. Galaga er einn þekktasti
spilakassinn frá níunda ára-
tugnum ásamt Donkey Kong og
Pac-Man en markmið leiksins
er að skjóta niður geimverur
sem færast niður skjáinn.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
Snorri endaði með 990.540 stig í leiknum sem telst mjög gott á heimsvísu og er sennilega Íslandsmet. Heimsmetið, 16 milljónir
stiga, hefur staðið frá árinu 1989.
Snorri segist, ólíkt öðrum afrek-
smönnum í spilakössum, lítið
hafa spilað leikinn frá því hann
var krakki. Hann hafi síðast spil-
að Galaga fyrir nokkrum árum og í
þetta skipti hafi dóttir hans dregið
hann á Fredda.
„Ég greip seinast í þetta fyrir um
tveimur árum. Ég spilaði þetta hell-
ing þegar ég var pjakkur. Við getum
sagt að allur blaðapeningurinn hafi
farið í þetta. Þetta var uppáhalds-
leikurinn í gamla daga. Það var
spilasalur við Stórholt og Einholt,
rétt hjá gamla DV, sem ég spilaði
mikið í. Það fór ansi mikið í þessa
spilakassa en þetta var skemmtunin
í þá dagana,“ segir Snorri.
Hann segir sér yfirleitt ganga
mjög vel í Galaga. „Einhverra hluta
vegna var mjög góð stemning og
ég var mjög yfirvegaður í leikn-
um, þannig að mér fannst þetta
ekkert mál. Það var nú dóttir mín
sem stakk upp á því að við færum
á Fredda. Ég var ekkert á leiðinni
á Fredda en þetta var skemmtilegt
kvöld.“
Við erum búnir að kubba stanslaust í um mánuð,“ segir Guttormur Þor-finnsson, smiður og Le-gó-áhugamaður, en hann
opnaði ásamt félögum sínum lítið
Lególand í Hafnarfirði um ára-
mótin. Fréttatíminn greindi frá því
fyrir áramót að til stæði að opna
leikland fyrir börn í Hafnarfirði.
Þá sagðist Guttormur hafa fengið
áhugann á Legó fyrir um 24 árum,
eða þegar hann eignaðist son sinn.
Nú er hann komin yfir miðjan
aldur, og áhuginn hefur ekkert
dvínað.
Hann hefur haldið nokkrar
Legó-sýningar síðustu ár, með-
al annars í Ráðhúsi Reykjavíkur,
en þetta er sú fyrsta í Hafnarfirði.
„Hingað munu koma leikskólar og
vonandi fleiri,“ segir Guttormur
sem segir sýninguna nokkuð um-
fangsmikla. „Við eyddum meðal
annars tveimur dögum í eitt mód-
elið,“ segir hann. Meðal þess sem
má finna verða Legó-lestir sem
börnin mega leika sér að og sér-
stök leiksvæði. Þeir félagar rukka
500 krónur inn fyrir alla þá sem
eru eldri en 3 ára til þess að standa
straum af kostnaði.
„Þetta er allavega eitthvað fyrir
börnin að gera,“ segir Guttormur
sem nýtur þess sjálfur að kubba.
Búnir að kubba stanslaust í um mánuð
Guttormur hefur kubbað af kappi
síðan sonur hans fæddist fyrir um
24 árum. Myndir | Hari
Guttormur Þorfinnsson og félagar hans
opna Lególand í Hafnarfirði.