Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 54
2 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017VEGANÚAR
Töfrandi tabbouleh
Tabbouleh
fyrir 4
100 g bulgur
150 g þroskaðir tómatar, smátt
saxaðir
½ paprika, skorin í litla bita
1 rauðlaukur, skorinn smátt
4 msk. sítrónusafi
2 msk. ólívuolía
handfylli steinselja, helst
flatlaufa, söxuð
handfylli fersk mynta, söxuð
salt og pipar eftir smekk
• Skolið bulgurið og sjóðið sam-
kvæmt leiðbeiningum.
• Kælið það lítið eitt áður en þið
blandið því saman við restina af
hráefninu.
• Berið fram eitt og sér eða sem
meðlæti.
Tabbouleh er klassískur réttur frá
Mið-Austurlöndum. Svo skemmti-
lega vill til að hann er vegan og
ákaflega gómsætur. Klassískt
tabbouleh inniheldur tómata,
steinselju, bulgur, myntu og lauk
auk ólívuolíu og sítrónusafa. En
það má leika sér með hráefnið
eftir því hvað finnst í eldhús-
inu hverju sinni en myntunni,
tómötunum og sítrónusafanum
verður eiginlega að halda inni til
þess að rétturinn haldi einkennum
sínum. Stundum er kús kús eða
kínóa notað í stað bulgur og er það
vel. Hér er uppskrift að ljómandi
góðu og fljótlegu tabbouleh.
Dýraafurðir
í snyrtivörum
Vegan snyrtivörur innihalda engin
efni úr dýrum eða afurðum þeirra
og langsamlega flestir telja einnig
innan flokksins vörur sem ekki
hafa verið prófaðar á dýrum. Þær
þurfa þó vitaskuld að uppfylla
fyrrnefndu skilyrðin líka. Efni sem
gjarnan eru notuð í snyrtivörur og
eru ekki vegan eru til dæmis:
Lanólín Ein algengasta dýra-
afurðin í snyrtivörum, kemur úr
fitukirtlum kinda og unnið úr
ullinni.
Kollagen Mjög algengt í hrukku-
kremum, vanalega unnið úr
brjóski.
Kólesteról Oft notað í augnkrem
til dæmis, unnið úr fitu spendýra.
Keratin Algengt efni í hárvörum,
er unnið úr húð og hári spendýra,
til dæmis.
Gelatín Notað í sólarvarnir,
margar hárvörur og freyðiböð og
baðsölt.
Hunang Notað í fjölmargar húð-
og snyrtivörur.
Býflugnavax Notað í marga
varasalva og handáburði.
Estrogen Unnið úr þvagi fylfullra
mera og er notað í getnaðar-
varnarpillur og ýmis krem og
ilmvötn.
Guanine (CI 75170) Búið til úr
hreistri af fiskum og er gjarn-
an notað í vörur sem glitra,
t.d. augnskugga, kinnaliti og
naglalökk.
Listinn er ekki tæmandi.
Lanólín er ein algengasta dýraafurðin
í snyrtivörum.
www.eldumrett.is
VEGAN-
PAKKINN
ER MÆTTUR
Í Bike Cave færðu úrval
vegan-borgara og Bike Cave
vegan-sósur af ýmsu tagi.
Alltaf góður matur á frábæru verði.
Einarsnes 36, 101 Rvk. - Hafnarborg,
Strandgötu 24 í Hafnarfirði, 220 Hfj.