Fréttatíminn - 13.01.2017, Blaðsíða 58
Facetox maskinn er
cruelty-free. Mynd | Rut
Mattir varalitir eru til í mörgum litum frá
Velvet 59. Mynd | Hari
4 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017VEGANÚAR
Vandaðir og gómsætir
veganvalkostir
Metnaðarfullir veganborgarar á Fabrikkunni.
Unnið í samstarfi við
Hamborgarafabrikkuna
Við höfum alltaf verið með fjölmarga kosti fyrir græn-metisætur sem hafa til að mynda getað skipt út
kjötinu á öllum borgurunum fyrir
heilan Portobellosvepp sem hefur
verið mjög vinsælt,“ segir Jóhannes
Ásbjörnsson, Jói, markaðsstjóri
Hamborgarafabrikkunnar. Í haust
kynnti hamborgarastaðurinn
frómi síðan nýja veganvalkosti á
matseðlinum sem hafa vakið mikla
lukku enda höndum ekki kastað
til við þróun þeirra. „Við tókum
okkur góðan tíma í þetta, feng-
um til okkar flokk af fólki sem er
vegan og hefur tekið mikinn þátt
í þessari grasrótarstarfsemi sem
veganisminn vissulega er. Þetta er
ört stækkandi hópur sem er mjög
samheldinn og vill koma því til leið-
ar að það séu fleiri veganvalkostir
á veitingastöðum. Við viljum vera
hamborgarastaður allra lands-
manna og viljum veita góða þjón-
ustu. Við viljum hugsa fyrir fólk
þannig að þegar fólk aðhyllist
ákveðna stefnu í mat þá þarf ekki
að vera viðskiptavinurinn sem er
með vesenið, fólki finnst það flestu
mjög leiðinlegt,“ segir Jói og leggur
áherslu á að vandað hafi verið til
verka þegar veganborgararnir voru
hannaðir. „Við ákváðum að henda
ekki bara einhverju út í skyndi eða
útbúa eitthvað úr því hráefni sem
við vorum með fyrir sem yrði ekkert
spes, bara til að leysa málin.“
Halda bragðpallettunni
Niðurstaðan varð sú að fjóra af
vinsælustu borgurunum er hægt
að panta í veganútgáfu. „Um er
að ræða Ungfrú Reykjavík sem er
kjúklingaborgarinn okkar, uppruna-
lega útgáfan er með kjúklingabr-
ingu í Brioche brauði með reyktri
chilisósu, sólþurrkuðu tómat-
mauki, osti og mangójógurtsósu.
Þá tökum við út kjúklingabringuna,
ostinn, mangójógúrtsósuna og
brioche brauðið og setjum inn
Oumph, veganost og veganmæjó
og gerum hann þannig vegan. Svo
er það Barbíkjú þar sem við tökum
út nautakjötið, ostinn og Brioche
brauðið og setjum inn veganost,
sesambrauð og Oumph, sveppirnir
og barbíkjúsósan á borgaran-
um eru vegan,“ segir Jói en hinir
tveir borgararnir sem hafa fengið
veganbúning eru Aríba Salsason
og Neyðarlínan. Bæði er hægt að
fá veganmæjó og veganchilimæjó
á borgarana og auðvitað er hægt
að raða saman borgara eftir smekk.
„Við erum auðvitað að gera það á
hverjum degi en ástæðan fyrir því
að við völdum þessa hamborgara
er að okkur fannst þeir halda sínum
karaktereinkennum best þegar
búið var að skipta út hráefnunum
fyrir veganhráefni. Þarna
færðu borgara sem halda sinni
upprunalegu bragðpallettu þrátt
fyrir að vera orðnir vegan.“
Gott úrval af vegan
snyrtivörum
í Alenu
Mattir varalitir, hárlitir og andlitsmaskar.
Unnið í samstarfi við Alenu
Vegansnyrtivöruúrval-ið í Alenu við Dalbraut er með því mesta hér á landi. Merkin eru þrjú
og úrvalið eykst stöðugt, að
sögn Heru Rúnar Ragnarsdóttur,
eiganda Alenu. „Við erum með
merki sem heitir Velvet 59 sem
eru varalitir, augnskuggapallettur,
skyggingapalletta og mattir vara-
litir. Sú sem er með það merki
er frekar ný í bransanum þannig
að vöruúrvalið er ekki mikið en
það bætist reglulega í,“ segir
Hera en þess
má geta að
Paris Mann-
ing, stofn-
andi Velvet
59, er aðeins
23 ára gömul
og hefur frá
barnæsku
haft ástríðu
fyrir bæði
dýravernd og
snyrtivörum.
Manning er
einnig aðdá-
andi kvenna á
borð við Mari-
lyn Monroe og
Audrey Hep-
burn þannig
að hún hefur
lagt áherslu
á að þróa
klassískar snyrtivörur sem töfra
fram hughrif klassísku stjarnanna.
Vegan hárlitir
Annað merki sem er afar vinsælt
er Brite Organix en í því merki eru
mattir varalitir og hárvörur, meðal
annars hárlitir en veganhárlitir
eru ekki á hverju strái. „Þetta eru
mjög góðar vörur líka og eru laus-
ar við öll skaðleg aukaefni. Það er
mjög mikil eftirspurn eftir þessum
vörum enda fleiri og fleiri sem
kjósa vegan lífsstíl,“ segir Hera.
Brite Organix er mjög vinsælt í
upprunalandinu Ástralíu þar sem
það hefur mjög mikla dreifingu og
fleiri og fleiri kjósa að nota vegan
og „cruelty free“ hárliti.
Auk tveggja fyrrnefndu
merkjanna eru Facetox
andlitsmaskarnir mjög vin-
sælir og að sögn þeirra sem
Hera Rún Ragnarsdóttir,
eigandi Alenu. Mynd | Rut
hafa prófað alger bomba fyrir
húðina. „Maskinn er alveg
lífrænn, cruelty-free, vegan og
án parabena. Hann er fyrir allar
húðtýpur og hreinsar bólur og
fílapensla, jafnar út húðtóninn og
minnkar svitaholur,“ segir Hera.
Hárlitirnir frá Brite Organix eru í öllum litum. Mynd | Hari
Fallegt og klassískt frá
Velvet 59. Mynd | Hari
Jói segir veganborgarann ekki gefa
upprunalega borgaranum neitt eftir.
Myndir | Hari
Fylgst með vegan-
borgaranum í bígerð.
Þau sem eru vegan fá
sannarlega eitthvað fyrir
sinn snúð á Fabrikkunni.