Fréttatíminn - 13.01.2017, Side 60
Veganskál með fennel. Mynd | Hari
8 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017VEGANÚAR
Heilnæmt, gott og
vegan á Krúsku
Veganskálin fyrir líkama og sál.
Unnið í samstarfi við Krúsku
Við erum bara með hollan og hreinan mat og hér er allt gert frá grunni,“ segir Guðrún Helga Magnús-
dóttir sem rekur veitingastað-
inn Krúsku ásamt manni sínum,
Steinari Þór Þorfinnssyni. Þau
leggja áherslu á að bjóða upp á
mat fyrir alla hópa – líka græn-
metisætur og þau sem eru vegan.
Starfsfólk Krúsku leggur sig fram
við að koma til móts við þarfir
fólks.
„Á Krúsku starfar frábært starfs-
fólk sem auðvitað skiptir miklu
máli fyrir rekstur fyrirtækisins,
það er alltaf til í allt og held-
ur staðnum gangandi af miklum
krafti.“
VEGAN VETRARSALAT
með fennel og appelsínum
Salat t.d. spínat og klettasalat
ferskur fennel
radísur
appelsínulauf
koríander
grænertur
ristuð brauðmylsna
sítrónu- og appelsínu vinaigretta
VEGANGOTT
með súkkulaði
Smjörlíki eða kókosolía
hrásykur
kornflex
döðlur
dökkt súkkulaði
Gómsæt Veganúar skál
Á Krúsku er alltaf nóg í boði fyrir
þau sem eru vegan og nú í janúar,
eða Veganúar, hefur verið bætt
í. Steinar hefur þróað veganskál-
ar sem innihalda sterkju dagsins
(kartöflur eða korn) og græn-
metisrétt dagsins sem er alltaf
vegan. Skammturinn er hæfilega
stór og á góðu verði þannig að
þau sem eru að prófa sig áfram
í veganismanum geta gripið sér
skál og smakkað. Steinar útbjó
salat að þessu þar sem fennel er
ríkjandi og sýnir okkur:
Vegan döðlugott. Mynd | Hari
Guðrún Helga Magnúsdóttir eigandi Krúsku
ásamt manni sínum, Steinari Þór Þorfinnssyni.
Mynd | Hari
Á Krúsku er allt hráefnið eins ferskt og völ er á hverju sinni og allur maturinn
laus við aukaefni. Mynd | Hari Brauð og hummus, dásamlega gott. Mynd | HariFallegur staður þar sem ríkir góður andi. Mynd | Hari
Markmið Krúsku er:
Að bjóða upp á hollan og heilsusamlegan mat sem
gerður er frá grunni, úr besta fáanlega hráefninu
og er án allra aukaefna. Að bjóða upp á mat
sem öllum líður vel af að borða og allir fá
eitthvað við sitt hæfi – ekki síst græn-
metisætur og þau sem eru vegan.
Að minnka matarsóun.
kruska.is