Fréttatíminn - 13.01.2017, Page 62
10 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2017VEGANÚAR
Vegan hárlitun á Grænu stofunni
Grænkerar þurfa að hugsa út í afar
margt þegar kemur að daglegu lífi.
Hvort maturinn þeirra innihaldi
dýraafurðir eða hvort einhver dýr
hafi verið hagnýtt í fatnað eða aðra
hluti sem þeir nota að staðaldri.
Hárvörur er nokkuð sem flestir
nota og fjölmargir lita á sér hárið
en í þessar vörur eru gjarnan not-
uð efni sem unnin eru úr dýra-
afurðum.
Græna stofan er hárgreiðslustofa
við Óðinsgötu sem notar og selur
einungis vegan hárvörur. Stofan,
sem áður hét Feima, vinnur eftir
græna kerfinu Grön salon sem
miðar að því að vinna með efni
sem skaðlaus eru mönnum,
dýrum og umhverfinu. Þess
má geta að í opnunarteiti
Grænu stofunnar fyrir jól
var boðið upp á sódavatn
sem blandað var með lit-
um sem notaðir eru í hár
– til þess að sýna fram á
að það sem þú notar á
líkama þinn ættirðu
líka að geta innbyrt!
Með aquafaba saknar
enginn eggja
Veganmæjó og marens.
Hverjum hefði dottið í hug að
safinn af kjúklingabaunum væri
dýrmætur sem gull fyrir græn-
kera og aðra sælkera? Hann er
það nefnilega og vegan fólki hrýs
hugur yfir öllum þeim lítrum af
þessum stórkostlega safa sem
fer og hefur farið ofan í vaskinn
gegnum tíðina. Aquafaba kallast
þessi vökvi sem getur umbreyst í
dásamlegt góðgæti með smáveg-
is fyrirhöfn. Hægt er að gera ís,
nota í staðinn fyrir egg í bakstur,
gera majónes og marens, svo fátt
eitt sé nefnt. Tvennt síðarnefnda
er líklega það sem oftast er gert úr
aquafaba, hér eru ljómandi góð-
ar uppskriftir að hvoru tveggja.
Sannarlega þess virði að prófa.
Majónes úr aquafaba
Uppskrift úr Eldhúsi
grænkerans
3½ dl
3 msk. kjúklingabaunasafi
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. eplaedik
1 tsk. dökkt síróp
½ tsk. salt
½ tsk. sinnepsduft
200 ml sólblómaolía
• Setjið allt nema olíuna í þröngt
ílát og blandið vel saman með
töfrasprota, á hæsta hraða.
Einnig má nota matvinnsluvél.
• Hellið olíunni saman við í
mjórri bunu, hægt og rólega
þar til blandan er orðin að
ljósri og þykkri sósu.
Marens úr aquafaba
Uppskrift úr Eldhúsi
grænkerans
12—14 toppar
180 ml kjúklingabaunasafi,
u.þ.b. vökvinn úr 1 dós af
kjúklingabaunum
200 g flórsykur eða sykur
1 tsk. vanilludropar
• Hitið ofninn í 120°C.
• Hellið kjúklingabaunasafan-
um í hrærivélarskál og hrærið
á hæstu stillingu í 3-5 mín. eða
þar til vökvinn fer að þykkna.
• Þegar hann er orðinn nokkuð
stífur, slökkvið og bætið sykri
og vanillu við.
• Hrærið áfram á miklum hraða
þar til blandan er orðin þykk.
• Færið deigið á bökunarpappír
með matskeið og bakið í 1 klst.
Eigendur Grænu
stofunnar, Heiðrún
Birna Rúnars-
dóttir og Sigríður
Kristjáns dóttir.
Tilboðsverð kr. 149.639,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta á meðan birgðir endast
Vitamix Pro 750 á sér
engann jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og
hraðastillir sjá til þess
að blandan verður
ávallt fullkomin og
fersk!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08