Fréttatíminn - 20.01.2017, Page 4
Fíkniefni Læknalyfið Oxycontin
kemur við sögu í átta dauðsföllum
í fyrra. Lyfið kemur meðal annars
í 80 mgr töflum en sá skammtur
getur verið banvænn fyrir
viðkvæmt fólk sem ekki hefur
myndað þol fyrir efnunum. Fimm
þeirra sem létust höfðu nálgast
lyfið annars staðar en hjá lækni.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
„Bróðir minn var ekki fíkill. Þau
úrræði sem að honum stóðu til
boða dugðu ekki til„ segir Birgitta
Ásbjörnsdóttir sem missti bróður
sinn sem hafði glímt við kvíða og
þunglyndi. Hann lést eftir að hafa,
að því er virðist fyrir slysni, hafði
tekið of stóran skammt af lyfjunum
Oxycontin og Dramatol í fyrrasum-
ar.
Ólögleg fíkniefni koma sjaldn-
ast við í dauðsföllum vegna lyfja-
eitrana, þar er læknadópið algeng-
ast og áfengi.
Ópíóðar koma oftast við sögu,
allt frá Parkódín forte, til Tramadol,
Kódeinlyfja og Ketógans. „Við reyn-
um að hafa eftirlit með ávísunum
lækna og fara fram á skýringar ef
miklu er ávísað af þessum lyfjum
enda eru þau stórhættuleg þegar
þau lenda í röngum höndum,“ segir
Ólafur B. Einarsson, verkefnastjóri
lyfjamála hjá Landlæknisemb-
ættinu. „En það má ekki gleyma
því að læknum er stundum vandi
á höndum, þessi lyf erum gefin til
að lina verki og þjáningar og þeir
eru að einblína á það. Þeir kunna
verr að bregðast við þegar fíklar eru
að ljúga til um verki til að reyna að
nálgast lyfin. Svo er líka til í dæm-
inu að sjúklingarnir sjálfir séu að
selja lyfin, til dæmis í gegnum Face-
book.“
Ólafur segir að lyfið Oxycontin
veki sérstaka athygli en það kom
við sögu í átta dauðsföllum. 2543
einstaklinga fengu lyfinu ávísað, en
alls jókst fjöldinn um 25 prósent á
einu ári. Við rannsókn embættisins
reyndust einungis þrír hafa fengið
lyfjunum ávísað hjá lækni, þar af
höfðu tveir gengið á milli lækna til
að verða sér út um lyfin. Hinir sem
létust virðast hafa keypt þau á göt-
unni eða orðið sér út um þau með
öðrum hætti.
Oxycontin er ávísað í töfluformi,
en hver tafla er allt að 80 milli-
grömm. Slíkur skammtur getur
verið banvænn fyrir þá sem ekki
hafa myndað þol fyrir slíkum lyfj-
um. Það er því ljóst að ein tafla get-
ur drepið og ekki ljóst hvort allir
sem kaupa slík efni á götunni gera
sér grein fyrir því. „Það eykur enn
á áhrifin ef þessu er sprautað í æð
eða það tekið í nefið,“ segir Ólafur.
„Það er stór ástæða til að vara alvar-
lega við þessum lyfjum og hvetja
fólk sem hefur fengið þeim ávísað
í kjölfar verkjameðferðar en hætt
notkun þeirra að skila lyfjunum í
apótek svo hægt sé að farga þeim.“
Birgitta segir að bróður sinn
ekki hafa verið fíkniefnaneytanda
en hann hafi reynt að meðhöndla
sig sjálfur við kvíða og þunglyndi,
þar sem þau úrræði sem honum
stóðu til boða dugðu ekki til. „Hann
komst í lyf sem slökktu á allri
vanlíðan. Hann upplifði sig kvíða-
lausan. Honum leið vel. Hann hafði
gert það áður. Þetta kvöld varð það
hans bani. Hann sofnaði og hann
vaknaði ekki aftur.“
Hún segir að rannsóknarlög-
reglumaðurinn sem kynnti krufn-
ingarskýrsluna fyrir mömmu þeirra
nokkrum vikum seinna hafi sagt
henni að lyfjaeitrun væri ein al-
gengasta dánarorsök ungra manna
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Ferðamál Ísland og Suðurskautið
eru helst nefnd þegar Kínverjar
eru spurðir hvert þeir vilji ferðast
til þess að forðast loftmengun.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Loftslagstúrismi hefur stóraukist
og er svo komið að Kínverjar líta
helst til Íslands annarsvegar og
Suðurskautsins hinsvegar með það
að markmiði að hreinsa lungun.
Þetta kemur fram í könnun Ctrip.
com og Bloomberg og fleiri fjöl-
miðlar greina frá.
Mengun í Kína er orðin svo
yfirgengileg að loftslagstúrismi
er orðin að meiriháttar grein í
ferðamannaiðnaðinum þar í landi.
Þannig hafa leitarorð tengd skóg-
um, mengunarflótti og lungna-
hreinsun þrefaldast. Í könnun
Ctrip kemur svo fram að Kínverjar
horfi helst til Íslands og Suður-
skautsins þegar kemur að hreinu
lofti. Einnig nefndu þeir Maldíveyj-
ar og Seychelles-eyjar.
Það sést einnig að það var 40%
aukning á komu Kínverja hingað
til lands á síðasta ári, og fóru þeir
úr 47 þúsund á ári árið áður, upp í
67 þúsund.
„Við höfum ekki orðið sérstak-
lega vör við þennan áhuga á Ís-
landi, en landið hefur ekki verið
sérstaklega markaðssett þannig,“
segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamála-
stjóri spurð út í þessa nýju grein
innan ferðamannaiðnaðarins.
Það er ljóst að tilefnið er ansi
ærið hjá Kínverjum en loftslags-
mengun þar í landi er gífurleg
en 62 borgir í Kína hafa gefið út
viðvörun vegna mengunar frá ára-
mótum.
„Sérstaða Íslands er falin í víð-
erni, og það er svarið sem við
fáum oftast frá ferðamönnum, en
þarna er eflaust tækifæri í ferða-
mennsku,“ segir Ólöf Ýrr.
Ólöf segir að engar rannsóknir
hafi verið gerðar þar sem kannað
er hvort kínverskir ferðamenn
komi hingað til lands vegna loft-
gæðanna. Hitt sé þó augljóst að
áhuginn sé til marks um alvar-
legt ástand vegna loftslagsmála
í Kína.
Kínverskir loftslags-
túristar nefna Ísland
og Suðurskautið
Kínverjar
vilja fara
til Íslands
til þess að
hreinsa
lungun.
Hælisleitendur Íranski flótta-
maðurinn Amir Shokrogozar fær
ekki að giftast íslenskum unnusta
sínum þar sem sýslumaðurinn í
Reykjavík neitar að viðurkenna
vottorð frá Íran sem sýnir fram á
að hann sé ógiftur og hafi aldrei
gifst. Amir er gert að fá nýtt vott-
orð frá stjórnvöldum sem hann
flúði vegna ofsókna í garð samkyn-
hneigðra.
Valur Grettisson
valur@frettatilinn.is
„Þarna er verið að biðja samkyn-
hneigðan mann um að fá hjúskap-
arstöðuvottorð í landi þar sem
samkynhneigð er bönnuð,“ segir
Kittý Anderson, alþjóðafulltrúi Sam-
takanna ´78. Mál Amirs er keimlíkt
máli þeirra Ragnheiðar Guðmunds-
dóttur og unnusta hennar, Ravi
Rawat. Þá var þeim meinað að giftast
á þeim forsendum að gögn frá Ind-
landi um hjúskaparstöðu Ravi væru
ófullnægjandi. Lögmanni þeirra
tókst þó að fá opinbera staðfestingu
á að skriffinnska í Indlandi væri ólík
þeim kröfum sem Íslendingar gera.
Úr varð að innanríkisráðuneytið
snéri úrskurðinum.
Fréttatíminn hefur synjun sýslu-
manns til Amirs og unnusta hans
undir höndum, og þar má sjá að
krafist er opinberrar staðfestingar á
því að hjúskaparstöðuvottorð, sem
Amir hefur sannarlega undir hönd-
um, sé vottað frá írönskum stjórn-
völdum. Þá skiptir engu að fjölskylda
Amirs hefur staðfest að hann hafi
aldrei gift sig.
Og þá flækjast málin; Amir er hæl-
isleitandi sem er að flýja harðræði
stjórnarinnar sem hafnar samkyn-
hneigðum algjörlega, en þarf engu
að síður að fá staðfestingu íranskra
stjórnvalda um að hann sé einhleyp-
ur.
„Hér eru tveir menn sem elska
hvor annan og vilja giftast, en hafa
lítinn möguleika þar sem ann-
ar þeirra kemur frá landi þar sem
skriffinnskan samræmist ekki okkar
skriffinnsku,“ segir Kittý sem telur
það afar hæpið að sýslumaður geti
farið fram á að hælisleitandi setji sig
í samband við ríkisstjórn sem hann
telur að sé að kúga sig og hefur þegar
flúið, til þess að sækjast eftir upp-
lýsingum um eigin hjúskaparstöðu.
Parið hefur þó ekki gefist upp, en
í samtali við unnusta Amirs kemur
fram að þeir hafi til byrjun febrúar
að skilað inn frekari upplýsingum.
Þeir vinna hörðum höndum að því
nú. Áður hefur Amir verið vísað úr
landi á forsendum Dyflinnarreglu-
gerðarinnar.
Ofsóttur hommi frá Íran þarf að sanna að hann sé ógiftur
Amir Shokrogozar hefur mánuð
til þess að útvega sér vottorð um
að hann sé einhleypur. Mynd | Rut
Oxycontin er ávísað í
töfluformi, en hver tafla
er allt að 80 milligrömm.
Slíkur skammtur getur
verið banvænn fyrir þá
sem ekki hafa myndað
þol fyrir slíkum lyfjum.
Það er því ljóst að ein
tafla getur drepið og
ekki ljóst hvort allir sem
kaupa slík efni á götunni
gera sér grein fyrir því.
Sífellt fleiri látast
úr lyfjaeitrun
Norðurlandamet í
neyslu ópíumlyfja
Ísland hefur um árabil átt
Norðurlandamet í ávísunum
á ópíumíð og helmingi fleiri
hafa látist vegna lyfjamisnotk-
unar. Ljóst er þó að þessum
dauðsföllum er að fjölga mikið
ef marka má þessar matsgerð-
ir. Þannig létust 26 úr lyfja-
eitrun árið 2014 en 36 árið
2015.
Fyrstu ellefu mánuði ársins
hafa 40, 16 konur og 24 karl-
ar, látist vegna lyfjaeitrun-
ar, samkvæmt matsgerðum
Landlæknis en einungis hluti
dauðsfalla er skráður þar, þar
sem ekki þykir alltaf ástæða
til að rannsaka dauðsföll ef
dánarorsök er augljós.
Birgitta Ásbjörnsdóttir segir að bróðir sinn, sem glímdi við kvíða, hafi látist fyrir
slysni þegar hann reyndi að sefa vanlíðan sína með lyfjum sem hafði verið ávísað
á aðra manneskju.
á Íslandi í dag. Hann hafi tekið
of stóran skammt af lyfjum fyrir
slysni. „Bróðir minn dó af völdum
geðræns sjúkdóms. Bróðir minn
tók inn lyf sem hafði verið ávísað
á aðra manneskju í allt öðrum til-
gangi. Hann lést af völdum of stórs
skammts af læknadópi. Ekki eru all-
ir þessir einstaklingar sem tapa líf-
inu fyrir þessum skaðvaldi einstak-
lingar í neyslu. Margir þó, en ekki
allir.“
GERÐU
VEL VIÐ
BÓNDANN!
Komdu við og taktu
með þér Bóndasælu
í fallegri g jafaöskju
– aðeins 690 kr. í dag
Austurstræti 16 apotek.is