Fréttatíminn - 20.01.2017, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Í smábænum Aurland í Noregi hefur
landslagsarkítektinn Snædís Laufey
Bjarnadóttir hreiðrað um sig í 19
fermetra verkamannaskúr. Snædís
deilir garði, grilli og sláttuvél með
granna sínum í öðru smáhýsi.
Bryndís Silja Pálmadóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Bærinn Aurland í Noregi er svo
sannarlega ekki stór. Þar er að finna
kirkju, ráðhús, bakarí og búð ásamt
nokkrum húsum. Sum hús eru þó
heldur smærri en önnur en þar er
að finna tvö hús, sem hvort um sig
er minna en 20 fermetrar. Smáhýsin
hafa vakið athygli norska ríkissjón-
varpsins en annað þeirra er í eigu
Íslendingsins Snædísar Laufeyjar
Bjarnadóttur.
Snædís er landslagsarkítekt og
hannaði húsið sitt sjálf. Í því býr hún
ásamt dóttur sinni, Sólrúnu. Þær
mæðgur eiga góðan granna í arkítekt-
inum Gøran Johanson sem deilir með
þeim eplagarði, sláttuvél og útigrilli.
Snædís kveðst hafa flutt margoft á
ævinni og þannig lært að forgangs-
raða hverju skal henda og hvað skal
geyma. „Enn fremur hef ég sorterað
hlutina mína. Ef ég fer í búð og sé hlut
sem mig langar í, þá hugsa ég bara
nei, ég hef ekki pláss.“
Í hillunum í svefnherbergi Snædís-
ar geymir hún bækur og föt Sólrún-
ar. Til þess að skapa leikpláss fyrir
dótturina er hægt að festa rúmið upp
við vegginn. Undir rúminu er að finna
skíði og sérsmíðaðan dótakassa fyrir
Sólrúnu.
„Fyrir mér er mikilvægast að Sól-
rún hafi rými til þess að ærslast, þá
getur hún fengið vini sína í heim-
sókn.“
Ódýrara er að byggja smáhýsi þar
sem þau þurfa minna efni og ódýrara
er að flytja efnið. Húsin þurfa minni
orku til upphitunar og þar sem þau
er minni að stærð er pláss fyrir færri
hluti. Vegna stærðar smáhýsanna er
einnig auðveldara að þétta byggð.
Smáhýsi Snædísar er gert úr vinnu-
skúr og kostaði um 2,3 milljónir
króna að breyta honum. Eftir eitt ár af
ergelsi og frjórri hugsun umbreyttist
skúrinn í smáhýsi. Húsið er hreyf-
anlegt og getur það skapað marga
möguleika.
Hreyfanleg
smáhýsi á
góðu verði
Snædís og Gøran eiga hvort sitt smáhýsið
í Vestur-Noregi en deila garði og grilli.
Snædýs býr í hvíta húsinu til vinstri.
Myndir | NRK Sogn og Fjordane
Heimili Snædísar og Gørans eru notaleg þótt þau séu smá. Hér má sjá
svipmyndir úr báðum húsunum, þar er hver fermetri vel nýttur.
NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI
4BLS
PS4
STÝRIPIN
NI
FYLGIR
Ný og endurhönnuð slim útgáfa af einni
vinsælustu leikjatölvu í heimi. Spotify,
Netflix, Youtube ofl. öpp, 500GB harður
diskur, HDR tækni, styður PS VR ofl. ofl. 39.990
PS4SLIM
VERÐ ÁÐUR46.990
ENGIRTOLLAR
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
PS4SL
IM
1TB
49.99
0