Fréttatíminn - 20.01.2017, Síða 24
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Það kostar minna að borga meira,“ sagði Henry Ford þegar hann var spurður af hverju hann hefði tvöfaldað
laun þeirra sem stóðu við færi-
bandið í bílaverksmiðju hans.
Þegar Ford ákvað að tvöfalda
launin og stytta á sama tíma
vinnudaginn um klukkustund
í verksmiðjum sínum árið 1914,
fékk hann betra starfsfólk, fram-
leiðslan jókst og kostnaður við
eftirlit minnkaði. Viðskiptamódel
Ford hefur síðan verið notað sem
skólabókardæmi um það hvernig
hærri laun og styttri vinnutími geti
aukið hagkvæmni og framleiðslu.
Og samkvæmt Samuel Abrams,
prófessor í hagfræði menntunar,
gæti þetta verið skólabókardæmi
um það hvernig reka eigi góð-
an skóla. Abrams, sem hélt fyrir-
lestur á vegum Rannsóknarstofu
um þróun skólastarfs síðastliðin
föstudag, starfar við Columbia há-
skólann í New York þar sem hann
stýrir rannsóknarmiðstöð um
einkavæðingu menntastofnana.
Bók Abrams, Education and the
Commercial Mindset, sem kom út
í fyrra segir frá því hvernig mark-
aðsöflin hafa fengið sífellt aukið
vægi í skólakerfi Bandaríkjanna og
hvernig gæði skólastarfs og laun
kennara hafi lækkað á sama tíma.
Markaðurinn hækkar ekki launin
Mikið hefur verið rætt um það
hversu vel Finnar standi sig í PISA
könnunum en minna um árangur
þeirra í samanburði við nágranna-
þjóðirnar. Norðurlöndin eiga það
sameiginlegt að vera frekar litlar
þjóðir sem setja jafnrétti og vel-
ferð á oddinn en það sem skilur
Finnland frá nágrönnum sínum
er frammistaða í PISA og að hans
mati stefna þeirra í menntamálum.
Svíþjóð hefur farið lengst Norður-
landanna í að umbreyta ríkisrekn-
um skólum í einkarekna á meðan
Finnland hefur haldið í ríkisrekna
kerfið. Á sama tíma hefur gengi
sænskra nemenda hrakað í PISA
könnunum en Finnar halda sterkri
stöðu sinni. Samkvæmt Abrams
styrkir þessi staða þá skoðun að
skólar eigi að vera reknir af ríkinu
fyrir alla, en ekki af einkaaðilum
fyrir suma.
Abrams hóf fyrirlestur sinn í HÍ á
því að fara yfir það sem hann kallar
amerísku harmsöguna í mennta-
málum. Harmsagan hófst að hans
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Skólar eru ekki matvara
Samkvæmt Samuel Abrams, prófessor í
hagfræði menntunar, er uppskriftina að
góðum skóla að finna í Finnlandi. Þar eru færri
nemendur á kennara, meiri leikur í skólastarfi
og engin próf. Þar fá kennarar hærri laun og
þar eru skólar enn reknir af ríkinu.
Reynslan sýnir að hugmynd Friedmans um engin ríkisafskipti af menntun,
nema með skólaávísunum, virkar ekki. Nemendur dragast aftur úr, starfsánægja
minnkar og laun kennara lækka. Abrams hefur miklar áhyggjur af framtíð skóla-
mála í Bandaríkjunum með útnefndum menntamálaráðherra Trumps við stjórn,
Betsy DeVos.
(og kennarar
ekki grænmeti)
Abrams segir góðan árangur finnskra
skóla mega rekja til aðferða þeirra við
að innleiða þekkt viðskiptamódel í
ríkisrekna skóla. Hann segir mark-
aðinn ekki geta búið til góðan skóla,
því skólar séu flóknara fyrirbæri en
matvara í súpermarkaði.
Munndreifitöflur
250 mg
Pinex®
Smelt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
A
ct
av
is
5
1
1
0
7
2