Fréttatíminn - 20.01.2017, Side 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 20. janúar 2017
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Áslaug Snorradóttir mat-arstílisti vinnur við að halda boð og fagna tímamótum annarra en þegar kemur að því að
fagna sínum eigin hefur hún oftast
ekki tíma. Hún segist þó almennt
vera dugleg að fagna sjálfri sér,
bara ekki á fyrirfram ákveðnum
tímamótum. Áslaug varð fimmtug
í vikunni og ákvað á síðustu stundu
Synti í blómum á
fimmtugsafmælinu
Hvernig fagnar manneskja sem vinnur við að skipuleggja tímamót
annarra upp á fimmtugsafmælið sitt? Hún syndir í blómum á Balí.
Áslaug Snorradóttir, matarstílisti og kokkur, fagnaði afmælinu með
blómasundi og ávaxtatertu, alveg óvart.
Þórunn Birna í afmælisbaðinu.
að halda upp það, með sínum eigin
sérstaka stíl.
„Þar sem ég er í vinnunni hérna
þá ætlaði ég alls ekkert að halda
upp á þetta, en svo hugsaði ég
með mér að ég væri bara rola ef
ég gerði það ekki,“ segir Áslaug
þaðan sem hún situr á kaffihúsi á
Bali. Hún er mjög hrifin af Bali þar
sem hún hefur ferðast um áður en
þetta er í fyrsta sinn sem hún er
þar í vinnunni. „Ég er á ferðinni
með Þórunni Birnu Guðmunds-
dóttur nálastungusérfræðingi því
við erum að vinna hér saman að
rosalega spennandi verkefni,“ seg-
ir Áslaug.
Þær Birna skipulögðu ferðina
í nóvember og þannig vildi til að
ferðin náði fram yfir 15. janúar,
afmælisdag Áslaugar, sem þetta
árið er stórafmælisdagur. „Þegar
dagurinn fór að nálgast byrj-
aði ég aðeins að velta þessu fyr-
ir mér, hvernig ég ætti að halda
upp á þetta. Við erum búnar að
vera á ferðalagi og þegar afmæl-
isdagurinn kom upp þá vorum við
á Norður-Bali í alveg æðislegu húsi
þar sem bjó með okkur allskonar
fólk sem gerði daginn sérstaklega
skemmtilegan.“
„Ég hafði tekið eftir því á ökrun-
um í kring að það var allt fullt af
marigold blómum og þar sem ég
hef alltaf haft alveg einstaka gleði
og ánægju af blómum ákvað ég að
hafa mína eigin blómahátíð á af-
mælisdaginn. Og það varð niður-
staðan, með hjálp bændanna í
kring sem hjálpuðu mér að tína
Hefst með freyðivíni í fordrykk
6 sérvaldir tapas réttir fylgja í kjölfarið
• Marineraðar lambalundir með lakkríssósu
• Beikonvafin hörpuskel og döðlur með
sætri chilisósu
• Hvítlauksbakaðir humarhalar
• Nautalund í Borgunion sveppasósu
• Lax með kolagrillaðri papriku og paprikusósu
• Kengúrusteik með plómusósu og plómuragou
Og í lokin tveir gómsætir eftirréttir
• Ekta súkkulaðiterta Tapas barsins
• Hvítsúkkulaði-skyrmousse með ástríðusósu
7.990 kr.
Aðeins framreitt fyrir allt borðið.
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is
RESTAURANT- BAR
BóndadagSSEÐILL
8 girnilegir réttir
Áslaug og Þórunn Birna
eru á vinnuferðalagi á
Bali en ákváðu að halda
upp á fimmtugsafmæli
Áslaugar með blómahátíð
og ávaxtaveislu.