Morgunblaðið - 01.12.2016, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.12.2016, Qupperneq 1
ðileg jól JÓLABLAÐIÐ Gle JÓLAMATUR, GJAFIR OG JÓLAHEFÐIR Í 128 SÍÐNAAUKABLAÐI F I M M T U D A G U R 1. D E S E M B E R 2 0 1 6 Stofnað 1913  282. tölublað  104. árgangur  Verðandi flugfreyjur og -þjónar hjá Icelandair sitja nú grunn- námskeið hjá fyrirtækinu og í gær spreytti hópurinn sig á björgun í vatni. Hátt í 2.000 sóttu um störf flug- liða hjá Icelandair þegar þau voru auglýst nýverið og var 180 manns á aldrinum 23 til 53 ára boðið að sitja námskeiðið. Ingibjörg Lárusdóttir, for- stöðumaður flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair, segir að líklega séu margar skýringar á vinsældum starfsins. „Þetta er skemmtilegt og fjölbreytt starf þar sem engir dagar eru eins, en þetta er líka mikil vinna og mikið álag sem hentar alls ekki öllum,“ segir Ingi- björg. »6 Verðandi flugfreyjur og -þjónar skelltu sér í sund Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirbúa sig fyrir störf í háloftunum Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í tilboði sem pólska verktakafyrir- tækið Metal Mont gerði í tiltekna verkþætti við byggingu kísilmálm- verksmiðju United Silicon í Helgu- vík virðist sem leiga á starfsmönnum hafi verið búin í búning verktöku til að komast hjá greiðslu opinberra gjalda hérlendis. Þetta er mat Hall- dórs Gröndvold, aðstoðarfram- kvæmdastjóra ASÍ, eftir að hann fór yfir fyrrnefnd gögn sem Morgun- blaðið hefur undir höndum. „Full ástæða er til að vefengja að um hefðbundinn eða eðlilegan verk- samning sé þarna að ræða. Frekar sé verið að búa starfsmannaleigu- starfsemi í búning verktöku. Þá er einsýnt miðað við þær magntölur og greiðslur sem þar koma fram að þau kjör sem starfsmönnum er ætlað að vinna eftir standast ekki lágmarks- kröfur kjarasamninga og laga sem gilda á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Halldór. Hann segir að þó þyrfti að fá aðgang að ráðningar- samningum, raunverulega útgreidd- um launum og nánari upplýsingum um samninga milli aðila til að taka af allan vafa um efni málsins. Í samtali við Alþýðusambandið kemur einnig fram að það hafi áður gert alvarlegar athugasemdir við starfsemi Metal Mont gagnvart Vinnumálastofnun og að sambandið hafi úrskurðað að ráðningarsamn- ingar sem fyrirtækið lagði fram stæðust ekki íslenska kjarasamn- inga og lög í veigamiklum atriðum. Í fyrrnefndu tilboði býðst Metal Mont til þess að taka að sér upp- byggingu svokallaðrar gashreinsi- stöðvar við verksmiðjuna og að fyr- irtækið fái greiddar 18 evrur fyrir hverja vinnustund sem starfsmenn þess inni af hendi. Það samsvarar 2.142 krónum á gengi krónunnar gagnvart evru í dag. MViðskiptaMogginn Skákað í skjóli gerviverktöku hjá Utd Silicon  Pólskur verktaki virðist hafa komið sér undan greiðslu opinberra gjalda Framleiðsla Fyrirtækið tók form- lega til starfa um miðjan nóvember. Sex einstaklingar hafa greinst með alnæmi á þessu ári og átján með HIV, er það mikil fjölgun frá síðustu þremur árum. Af þessum 24 manna hópi eru tíu fíkniefnaneytendur en svo stór hluti fíkla hefur ekki greinst síðan árin 2010 og 2011 þegar talað var um faraldur meðal þeirra. Alnæmi, sem er lokastig sjúk- dómsins, hefur ekki greinst hér á landi í svo stórum stíl í 22 ár eða síð- an 1994. Þeir sem greinast með al- næmi eru oft fólk sem er búið að leita sér þjónustu í heilbrigðiskerf- inu jafnvel í mörg ár en það gleymist að athuga hvort það geti verið smit- að af HIV eða alnæmi. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir segir að auk HIV megi sjá aukningu í öðrum kynsjúkdómum hér á landi sem gæti bent til þess að fólk sé að slaka á örygginu í kynlíf- inu. Í dag, 1. desember, er alþjóðlegi alnæmisdagurinn. »16 24 greinst með HIV og alnæmi á þessu ári  Skotið var sex sinnum með hagla- byssu á hraða- myndavél, sem var á gatna- mótum Stekkjarbakka og Breiðholts- brautar, í jan- úar á þessu ári. Hún hefur verið ónothæf síðan. Að sögn Ásgeirs Þórs Ásgeirssonar, að- stoðaryfirlögregluþjóns hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu, er íbúabyggð í næsta nágrenni. „Það eru stór fjölbýlishús í innan við 100 metra fjarlægð og nær- liggjandi raðhúsahverfi í Bökk- unum og í Seljahverfi,“ segir Ás- geir. » 14 Sex sinnum skotið á hraðamyndavél  Nóvember kvaddi í gær og sam- kvæmt bráðabirgðayfirliti Trausta Jónssonar veðurfræðings reyndist hann vera enn einn hlýindamán- uðurinn á þessu ári. Haustið hefur verið sérlega hlýtt á landinu, það næsthlýjasta sem vit- að er um í Reykjavík. Á Akureyri er haustið hins vegar það langhlýjasta frá upphafi sam- felldra mælinga þar í bæ. Meðalhiti var 5,2 stig. Næsthlýjast var árið 1945, 4,6 stig. »17 Methlýindi á Akureyri í haust Jóladagatalið er á jolamjolk.is dagar til jóla 23 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500 Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 RETRÓ SÓFI FUSSEENEGGER FATAEFNI SJÚKRAÞJÁLFARI 30% AFSLÁTTUR NÝ SENDING Í DAG Á MILLI 16-18 S Æ N G U R fatnaður 20% AFSLÁTTUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.