Morgunblaðið - 01.12.2016, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016
Tímaritið Neisti kom út um ára-tugaskeið og var „málgagn
Fylkingar byltingarsinnaðra
kommúnista“ og síðar „málgagn
Baráttusamtaka sósíalista“. Ýmsir
lögðu sitt af mörkum í baráttunni,
til að mynda Már
Guðmundsson seðla-
bankastjóri, sem var
ritstjóri Neista
nokkrum árum eftir
að hann lauk námi
sínu í hagfræði og á
meðan hann gegndi
starfi hagfræðings í
Seðlabankanum.
Fremst í Neistavar yfirlýsing
um áhersluatriði
baráttunnar og þar
sagði meðal annars:
„Baráttusamtök
sósíalista eru andvíg
því að borgaralegu verkalýðsflokk-
arnir, Alþýðubandalagið og Al-
þýðuflokkurinn, gangi til samstarfs
við auðvaldsöflin í ríkisstjórnum.“
Þetta rifjast upp vegna þeirralöngu og erfiðu þreifinga sem
átt hafa sér stað um myndun ríkis-
stjórnar hér á landi þrátt fyrir til-
tölulega augljósa kosti.
Engu líkara er en vofa Neistahafi gengið aftur innan VG á
síðustu vikum, slík hefur tregðan
verið til að setjast niður með
„auðvaldsöflunum“.
Vissulega er fortíðarþráin oftheillandi, en þó að Neisti segð-
ist „stefna að því að fjöldasamtök
verkalýðsins setji á fót sína eigin
ríkissjórn sem framkvæmir efna-
hagslegar, félagslegar og pólitísk-
ar ráðstafanir sem leiða okkur út
úr auðvaldskreppu og gera okkur
fært að stjórna samfélagi okkar
lýðræðislega í hag vinnandi fólks,“
er kannski tímabært að leggja bylt-
inguna til hliðar og horfa til niður-
stöðu kosninga.
Már
Guðmundsson
Neistaflug í VG?
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Verkefnið Dyrfjöll – Stórurð,
gönguparadís, á vegum Fljótdalshér-
aðs og Borgarfjarðar eystri hlaut í
gær umhverfisverðlaun Ferða-
málastofu fyrir árið 2016. Í verkefn-
inu fólst að bæta aðgengi og styrkja
göngusvæði Stórurðar og Dyrfjalla.
Í tilkynningu frá Ferðamálastofu
segir að verkefnið styrki sjálfbæra
ferðamennsku á svæði sem þoli meiri
nýtingu, „auki öryggi ferðamanna,
efli lýðheilsu, stuðli að náttúruvernd
og auki staðarstolt heimamanna“. Þá
er hönnuðinum Rönning Anderssen
hrósað fyrir frumlega og stílhreina
hönnun.
Ferðamálastofa veitti í ár verðlaun
fyrir fyrirmyndarverkefni sem hafði
hlotið styrk úr Framkvæmdasjóði
ferðamannastaða á árunum 2014-
2016 og þótt vera í samræmi við um-
hverfisstefnu og áherslur Ferða-
málastofu er varða sjálfbæra þróun
og gæði hönnunar og skipulags.
Umhverfisverðlaun veitt í 22. sinn
Gönguparadís á Austurlandi
Samstarf Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, og Jón
Þórðarson, sveitarstjóri Borgarfjarðar eystri, tóku við verðlaununum.
Biskup Íslands
hefur ákveðið að
skipa Maríu Rut
Baldursdóttur
guðfræðing í
embætti prests í
Bjarnanes-
prestakalli.
Prestakallinu til-
heyra Höfn í
Hornafirði og ná-
grannasóknir.
Þrír umsækjendur sóttu um emb-
ættið sem veitist frá 1. janúar nk.
Auk Maríu sóttu um guðfræðing-
arnir Arnaldur Máni Finnsson og
Sylvía Magnúsdóttir.
Séra Sigurður Kr. Sigurðsson lét
af störfum sóknarprests í Bjarna-
nesprestakalli 1. nóvember sl. eftir
21 ár í embætti. Við embætti sókn-
arprests tók sr. Gunnar Stígur
Reynisson, en hann hefur starfað við
hlið séra Sigurðar síðan 2012.
Tveir umsækjendur voru um emb-
ætti héraðsprests í Austurlands-
prófastsdæmi sem auglýst var ný-
lega, guðfræðingarnir Erla Björk
Jónsdóttir og Randver Þorvaldur
Randversson. Séra Davíð Þór Jóns-
son gegndi áður embættinu en hann
var valinn til prestsstarfa við Laug-
arneskirkju. sisi@mbl.is
María Rut
Baldursdóttir
Skipuð
prestur
á Höfn
José Mourinho
Fullkominn rakstur
FYRIR HEIMILIN Í LANDINU
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800Umboðsmenn um land allt
Veður víða um heim 30.11., kl. 18.00
Reykjavík 5 súld
Bolungarvík 1 alskýjað
Akureyri 2 alskýjað
Nuuk -16 heiðskírt
Þórshöfn 8 rigning
Ósló -1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Helsinki 0 heiðskírt
Lúxemborg 0 heiðskírt
Brussel 2 heiðskírt
Dublin 4 léttskýjað
Glasgow 10 léttskýjað
London 3 heiðskírt
París 2 heiðskírt
Amsterdam 6 skýjað
Hamborg 5 súld
Berlín 2 rigning
Vín 2 heiðskírt
Moskva -12 heiðskírt
Algarve 18 skýjað
Madríd 13 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 14 léttskýjað
Róm 10 heiðskírt
Aþena 6 súld
Winnipeg 0 alskýjað
Montreal 1 þoka
New York 11 þoka
Chicago 3 heiðskírt
Orlando 24 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:48 15:47
ÍSAFJÖRÐUR 11:23 15:22
SIGLUFJÖRÐUR 11:07 15:03
DJÚPIVOGUR 10:24 15:10