Morgunblaðið - 01.12.2016, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
HYUNDAI TUCSON CLASSIC 1,7D
dísel, beinskiptur. Verð 4.590.000 kr.
Raðnr. 255596
TOYOTA YARIS HYBRID
bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Verð 2.790.000 kr.
Raðnr. 255832
VW GOLF GTE PREMIUM
PLUG IN HYBRID bensín/rafmagn,
sjálfskiptur. Verð 4.790.000 kr. Raðnr.255560
SKODA OCTAVIA COMBI AMBITION
2,0TDI
sjálfskiptur. Verð 4.150.000 kr. Raðnr. 255849
MMC OUTLANDER PHEV INTENSE
bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Verð 5.690.000 kr.
Raðnr. 255843
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
NÝIR BÍLAR Á BETRAVERÐI
Jólaskeið ERNU 2016 og
servíettuhringur ársins
Íslensk hönnun og smíði síðan 1924
ERNA
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is
Skeiðin er hönnuð af
Ragnhildi Sif Reynisdóttur,
gullsmið og hönnuði
GULL- OG SILFURSMIÐJA
Verð 21.500,-
Verð 12.500,-
Bergþóra að um 95% til 96% þeirra
sæki meðferð á göngudeildina. „Ef
fólk er ekki í meðferð er það annað-
hvort vegna þess að það vill ekki koma
til okkar af ýmsum ástæðum eða það
dettur út úr meðferð og þá er ég ekki
bara að tala um fíkniefnahópinn held-
ur líka fólk sem er í afneitun eða vill
ekki meðferð.“
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalækn-
ir hjá Embætti landlæknis, segir að ef
litið sé á aukna tíðni HIV og alnæmis í
víðara samhengi megi líka sjá aukn-
ingu í öðrum kynsjúkdómum eins og
sýfilis og lekanda. „Þetta gæti bent til
þess að menn séu að slaka á í kynlíf-
inu, séu að nota smokkinn minna. En
það hefur verið átak í gangi um aukna
smokkanotkun t.d. hjá HIV-Ísland og
hjá Samtökunum ’78. Það er spurning
hvað annað er hægt að gera en birta
tölulegar upplýsingar og vekja alla til
meðvitundar um ábyrga hegðun,“ seg-
ir hann.
Mikil aukning í Evrópu
Það er ekki aðeins á Íslandi sem
fjölgar í hópi HIV-jákvæðra því aldrei
hafa fleiri greinst með HIV á einu ári í
Evrópu en í fyrra. Þá voru skráð
153.407 ný tilfelli af HIV sem er 7%
aukning frá fyrra ári. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar. Af nýjum til-
fellum árið 2015 voru 79% í Austur-
Evrópu, eða 121.088, sem er meira en
tvöföldun á áratug. Flestir sem grein-
ast þar eru gagnkynhneigðir. 18%
nýrra tilfella voru í Vestur-Evrópu og
3% í Mið-Evrópu, sem er lítilsháttar
aukning m.v. síðustu tíu ár en sam-
kynhneigðir karlmenn eru þar í mest-
um áhættuhópi.
Einn af hverjum sjö með HIV í
Evópu veit ekki af því að hann er smit-
aður og 47% nýrra tilfella eru greind
seint, eða að meðaltali fjórum árum
eftir að manneskjan smitast.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Fjöldi nýgreindra með HIV og al-
næmi hér á landi hefur rokið upp á
þessu ári. Í lok nóvember höfðu 24
einstaklingar greinst á árinu, 18 með
HIV-smit og 6 með alnæmi. Eru það
umtalsvert fleiri en síðustu þrjú ár,
þegar fjöldi nýgreindra var á bilinu tíu
til fimmtán.
Af þeim 24 sem hafa greinst á árinu
eru tíu smit rakin til fíkniefnaneyslu.
Ekki hafa svo margir fíkniefnaneyt-
endur greinst síðan árin 2010 og 2011
þegar þeir voru tíu og þrettán, var þá
talað um faraldur í hópi fíkla.
Bergþóra Karlsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur á göngudeild smitsjúkdóma
á Landspítalanum, segir að þau hafi
haldið að náðst hefði fyrir smit meðal
fíkla en að utanaðkomandi aðstæður
eins og erfiðleikar við að koma fólki í
húsnæði spili þar inn í. Ef fólk á ekki
fastan samastað getur verið erfitt að
halda því á lyfjunum sem bæla niður
veiruna og geta því komið í veg fyrir
smit. „Húsnæðisvandræði og skortur
á geðheilbrigðisþjónustu fyrir þennan
hóp eykur hættuna á smitsjúkdómum.
Þetta er spurning um þjóðfélags-
aðstæður og það er það sem veldur
okkur sem vinnum við þetta miklum
áhyggjum,“ segir Bergþóra.
Nærri 100% greindra í meðferð
Hinir fjórtán sem eru nýgreindir
koma úr ýmsum áttum. Fjórir eru er-
lendir ríkisborgarar sem komu hingað
vegna vinnu en þeir vissu að þeir væru
með HIV og komu á göngudeildina til
að halda meðferð sinni áfram hér á
landi og þá teljast þeir nýir í íslensk-
um skrám. Bergþóra segir enga sam-
kynhneigða Íslendinga hafa greinst á
árinu en nokkrir gagnkynhneigðir ein-
staklingar eru í hópnum.
Sex einstaklingar hafa greinst með
alnæmi (AIDS) á árinu, sem er alvar-
legasta stig sjúkdómsins. Það mynd-
ast smám saman, á 8-10 árum, hjá ein-
staklingum með HIV, ef þeir fá ekki
lyfjameðferð, og veikir ónæmiskerfi
líkamans. Ekki hafa svona margir
greinst með alnæmi hér á landi síðan
árið 1994 þegar þeir voru líka sex.
„Þeir sem greinast með alnæmi eru
oft fólk sem hefur verið í heilbrigð-
iskerfinu áður, en það gleymist að
huga að þessu þegar fólk kemur inn
með ýmis einkenni. Við sjáum eldri
einstaklinga sem engum dettur í hug
að hafi smitast af HIV og þá fara þeir
seint í próf og greinast því ekki fyrr en
sjúkdómurinn er kominn á þetta stig,“
segir Bergþóra. Fólkið sem hefur
greinst í ár er á aldrinum frá 25 ára og
uppúr að sögn Bergþóru.
Nú eru skráðir yfir 200 ein-
staklingar með HIV á Íslandi og segir
AFP
Rauði borðinn Í dag, 1. desember,
er Alþjóðlegi alnæmisdagurinn.
Mikil fjölgun HIV- og
alnæmissmitaðra í ár
24 greinst hér á árinu og þar af tíu fíklar Met í Evrópu
Fjöldi greindra með HIV og alnæmi á Íslandi
2006 til 2016
25
20
15
10
5
0
* 11 mánuðir ársins
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016*
HIV
Alnæmi
11
13
10
15
24
23
20
11
10
13
18
1 1
3
1 1
2
6
0 0 0
3
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ákveðið hefur verið að opna Lands-
mót ungmennafélaganna. Öllum
verður gefinn kostur á að skrá sig til
leiks; vinahópum, félögum og ein-
staklingum. Opnunin er í anda ung-
lingalandsmóta og landsmóta fyrir
50 ára og eldri sem bæði hafa gengið
hafa vel.
Á næsta ári verður unglingalands-
mótið á Egilsstöðum, að vanda um
verslunarmannahelgina, og nú hefur
verið gengið frá því að landsmót 50+
verði í Hveragerði í júní á næsta ári.
Landsmótin fyrir 50 ára og eldri
hafa verið haldin sex sinnum og hafa
farið stækkandi. „Við sjáum mikil
tækifæri í 50+ mótunum. Fólk sem
komið er yfir fimmtugt er miklu bet-
ur á sig komið en áður og meðvitað
um gildi hreyfingar og heilbrigðra
lífshátta,“ segir Ómar Bragi Stefáns-
son, framkvæmdastjóri landsmóta
Ungmennafélags Íslands.
Hann segir að fleiri á aldrinum 50
til 65 mættu koma á mótin. Fólk á
þeim aldri sé enn á fullu í sínu sporti,
hjóli, hlaupi eða stundi golf. „Við ætl-
um að sækja meira inn á það og
bjóða greinar við hæfi,“ segir Ómar.
„Við teljum að mótið verði mjög
stórt, það stærsta til þessa.“
Tímabært að endurskoða
Hin almennu landsmót ung-
mennafélaganna hafa verið haldin í
meira en öld. Þau hafa verið helsta
íþróttamót og samkoma félaga í ung-
mennafélögum landsins. Ómar segir
að fyrirkomulagið þarfnist endur-
skoðunar vegna breyttra tíma. Nefn-
ir sem dæmi að aðrir stórir íþrótta-
viðburðir taki mikið til sín og margir
íþróttaviðburðir í boði fyrir fjöl-
skyldurnar á sumrin.
„Við höfum verið að endurskoða
dagskrá og fyrirkomulag. Niður-
staðan er að opna mótin, í anda ann-
arra landsmóta okkar, undir kjör-
orðinu: Leikur og lýðheilsa. Fólk á
að geta komið og fundið sér hreyf-
ingu og íþrótt við hæfi,“ segir Ómar.
Í þessu felst að stigakeppni ung-
mennasambandanna sem verið hefur
ríkur þáttur í landsmótunum leggst
niður.
Látið verður reyna á nýtt fyrir-
komulag á Sauðárkróki 2018. Þar
verður landsmót 50+ hluti af dag-
skránni. Lögð verður áhersla á að fá
inn jaðaríþróttir, eins og hjólreiðar,
víðavangshlaup og aukin áhersla á
golf. Fólk á að geta fundið grein við
hæfi og prófað, kannski í fyrsta
skipti.
Landsmót UMFÍ
verður opnað
Búist við stóru 50+ móti í Hveragerði
Morgunblaðið/Eggert
Breytingar Keppni undirbúin á
unglingalandsmóti.
24
hafa greinst með HIV og alnæmi
á Íslandi síðustu 11 mánuði.
153.000
greindust í Evrópu árið 2015 sem
er met. Fjöldi HIV greindra í Evrópu
fór þá yfir 2 milljónir í fyrsta sinn.
2030
er árið sem stefnt er að búið
verði að koma í veg fyrir HIV- og
alnæmis-faraldurinn í heiminum.
HIV OG AIDS
»