Morgunblaðið - 01.12.2016, Síða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**
Síðumúla 21, Selmúlamegin, sími 533 6040, www.stimplar.is
Einnig mikið úrval af hurða-
og póstkassaskiltum,
barmmerkjum og
hlutamerkjum
og fleira
Stimplar eru okkar fag
Áratuga reynsla
Örugg þjónusta
Magnús Carlsen varðiheimsmeistaratitilinn ískák með því að vinnaatskákhluta einvígisins
3:1 og einvígið samtals 9:7. Hann
knúði fram sigur í síðustu skákinni
með glæsilegri drottningarfórn.
Carlsen vann 15. einvígisskák sína og
þá 16. við Sergei Karjakin skömmu
fyrir miðnætti að íslenskum tíma.
Gríðarleg taugaspenna einkenndi
skákirnar í gær en þær hófust kl. 19
að íslenskum tíma og virtist norski
heimsmeistarinn, sem varð 26 ára
þennan dag, staðráðinn í að vinna en
mætti að venju harðvítugri mót-
spyrnu. Skákirnar vöktu mikla at-
hygli um allan heim og voru t.a.m.
sýndar á risatjaldi á Times square í
New York.
Kvöldið hófst á fjórum atskákum
með tímamörkunum 25 10 en síðan
var gert ráð fyrir tveim hraðskákum,
5 3 ef ekki fengjust úrslit og loks
bráðabanaskák. Carlsen var yfirleitt
með betri tíma og í 2. skákinni í gær
munaði á köflum á þeim um tíu mín-
útum. Fyrsta skákin, sú þrettánda í
einvíginu, var fremur bragðdauf og
lauk með jafntefli eftir 37 leiki en í
þeirri næstu dró til tíðinda:
14. einvígisskák:
Magnús Carlsen – Sergei Karjak-
in
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4.
0-0 Rf6 5. d3 0-0 6. a4 a6 7. c3 d6 8.
He1 Ba7 9. h3 Re7 10. d4 Rg6 11.
Rbd2 c6 12. Bf1 a5 13. dxe5 dxe5 14.
Dc2 Be6 15. Rc4 Dc7 16. b4!?
Reynir að þenja út svæði sitt á
drottningarvæng.
16. … axb4 17. cxb4 b5!?
Karjakin hefði betur sleppt þessu
þó að leikurinn sé freistandi þar sem
lúmsk gildra leynist í stöðunni, 18.
axb5 Bxf2+! og hrókurinn á a1
stendur valdlaus eftir.
18. Re3! bxa4 19. Hxa4
Tímamismunur 10 mínútur Carl-
sen í vil.
19. … Bxe3!? 20. Bxe3
Fórnar e-peðinu en öruggara var
20. Hxe3.
20. … Hxa4 21. Dxa4 Rxe4 22.
Hc1 Bd5 23. b5
23. … cxb5?!
Sú ákvörðun að leysa upp stöðuna
og tefla með hrók og peði á móti
tveim léttum var vafasöm en tíminn
var að styttast hjá Karjakin.
24. dxe4 Dxc1 25. Dxd5 Dc7 26.
Dxb5 Hb8 27. Dd5 Hd8 28. Db3 Hb8
29. Da2 h6 30. Dd5 De7 31. De4 Df6
32. g3 Hc8 33. Bd3 Dc6 34. Df5 He8
35. Be4 De6 36. Dh5 Re7?
37. Dxe5
Magnús var fljótur að grípa e-
peðið en hann gat unnið með 37.
Rg5! Df6 (37. … hxg5 tapar eftir 38.
Dh7+ Kf8 39. Dh8+ Rg8 40. Bc5+
He7 41. Bh7.) 38. Bh7+ Kf8 39. Bd3
Kg8 40. Rxf7! Dxf7 41. Bc4! o. s.frv.
37. .. Dxe5 38. Rxe5 Rg6 39.
Bxg6 Hxe5 40. Bd3
Þessa stöðu með tvo biskupa ætti
að vera hægt að vinna en í fram-
haldinu lék Magnús af sér f-peðinu
og varð að sætta sig við jafntefli eft-
ir 84 leiki.
En hann var ekki af baki dottinn
og tefldi af miklum þrótti í næstu
skák:
New York 2016; 15. einvíg-
isskák:
Sergei Karjakin – Magnús Carl-
sen
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. d3 b5 7. Bb3
d6 8. a3 0-0 9. Rc3 Ra5 10. Ba2 Be6
11. b4 Rc6 12. Rd5 Rd4 13. Rg5
Bxd5 14. exd5 Rd7 15. Re4 f5 16.
Rd2 f4 17. c3 Rf5 18. Re4 De8 19.
Bb3 Dg6 20. f3 Bh4 21. a4 Rf6 22.
De2 a5 23. axb5 axb4 24. Bd2 bxc3
25. Bxc3 Re3 26. Hfc1 Hxa1 27.
Hxa1 De8 28. Bc4 Kh8 29. Rxf6
Bxf6 30. Ha3
30. … e4 31. dxe4 Bxc3 32. Hxc3
De5 33. Hc1 Ha8 34. h3 h6 35. Kh2
Dd4 36. De1 Db2 37. Bf1 Ha2 38.
Hxc7??
Mistök í miklu tímahraki. Hann
gat varist með 38. Hb1.
38. … Ha1!
– og Karjakin gafst upp.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Gríðarlega mikil tauga-
spenna á úrslitastundu
AFP
Skák Peter Thiel leikur fyrsta leikinn í einvíginu í gær.
Í gamalli bók úr
safni Veda-ritanna ind-
versku segir: „Full-
komnun mannlegs lífs
getur aðeins orðið að
veruleika, þegar hinni
fullkomnu heild er
þjónað.“ (Sri Isop-
anishad bls. 3) Í Post-
ulasögunni í Nýja-
Testamentinu segir
svo frá einingu hinna
frumkristnu: „Allir þeir sem trúðu
voru saman og höfðu allt sameig-
inlegt. Þeir seldu eigur sínar og fjár-
muni og skiptu því meðal allra, eftir
því, sem hver hafði þörf til.“ (Post-
ulasagan 2:44-45)
Þessi kommúnuhugsjón, sem þarna
greinir frá er þó nokkuð öðruvísi en
kommúnisminn, sem byggður var upp
á síðustu öld víða um heim. Komm-
únismi ritninganna er allt annar, enda
viðurkennir hann æðsta Drottin, arki-
tekt alheimsins, skaparann, sem
stjórnar veröldum öllum og himin-
geimi. Í því gerðu rauðliðarnir mistök.
Öll erum við einstaklingar sömu
heildar, sama heims. Samfélag manna
verður því aldrei heilt og laust við hin
mýmörgu samfélagsvandamál, fyrr
en fólki lærist þessi algildu sannindi,
sem byggð eru á boðorði Jesú Krists,
sem var til áður en veröldin var sköp-
uð og er á þessa leið: „Allt sem þér
viljið að aðrir menn gjöri yður, það
skuluð þér og þeim gjöra.“ (Matteus
7:12)
Í Markúsarguðspjalli 12:31 segir
einnig eftir Jesú Kristi: „Þú skalt
elska náungann eins og sjálfan þig.
Ekkert boðorð er þessu æðra.“
Græðgistefnan í þjóðfélaginu á ekk-
ert skylt við hinar ofangreindu háleitu
hugsjónir kærleikslögmálsins. Stjórn-
mál græðgisvæðingarinnar fót-
umtroða velferð heildarinnar, eða
þann hluta, sem fátækir tilheyra. Ef
ofangreindu lögmáli væri framfylgt
myndi án efa byggjast upp þjóðfélag
samhjálpar; heilbrigðisvandinn yrði
leystur og öll önnur samfélagsmein
þjóðfélagsins, sem grassera í græðgi-
svæðingunni og guðleysinu. Á meðan
boðorðin eru hunsuð: Þú skalt ekki
ljúga og þú skalt ekki
stela (2. Mósebók 20:14)
og elska skaltu náung-
ann, munum við ekki lifa
í hinum fyrirmyndar
heimi. Samfélagsmein
nútímans stafa því fyrst
og fremst af siðferð-
isbresti og lögmáls-
brotum og verða ekki
læknuð nema með for-
skrift hins himneska
hæstaréttar og löggjaf-
arvalds. Forskriftin er
einföld, en virðist óframkvæmanleg í
ófullkomnu þjóðfélagi manna.
Reyndar hafa menn í sértrúarsöfn-
uðum fengið að njóta þeirra blessana,
sem hljótast af iðkun þjónustu við
náungann og að deila því, sem þeir
eiga með trúbræðrum sínum og
systrum. Það er synd að ávextir
þessa lögmáls fái ekki að vaxa víðar í
því þjóðfélagi, sem við þekkjum og
hrærumst í í dag. Kristur Jesús sagði
að auki: „Torvelt verður auðmanni
inn að ganga í himnaríki.“ (Matteus
19:23) Þangað inn kaupir sér enginn
aðgang með öðru en fjársjóðum á
himnum, sem menn öðlast með góð-
um verkum á jörðu niðri. Þau verk
felast m.a. í því, að deila eigum sínum
með fátækum. (Matteus 19:21) Mikið
væri gott ef fólk hefði það hugfast
fyrir jól og myndi láta fátæka njóta
fjármuna sinna í staðinn fyrir að bera
gjafir í þá sem allt eiga. En kannski
eru margir moldríkir menn nógu ein-
lægir til að staðfesta það með breytni
sinni, að þeir séu hvort eð er ekkert á
leiðinni til himna. En allavega mætti
halda, að þeir gerðu ráð fyrir því að
lifa eilíflega á jörðu, eftir jarðneskum
auðæfum þeirra að dæma.
Forskrift að
samfélagi fólks
Eftir Einar Ingva
Magnússon
Einar Ingvi Magnússon
» Græðgistefnan
í þjóðfélaginu á
ekkert skylt við hinar
ofangreindu háleitu
hugsjónir kærleiks-
lögmálsins.
Höfundur er áhugamaður
um samfélagsmál