Morgunblaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2016
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, læknir við Borgarspítalann, á 30 áraafmæli í dag. Hún vinnur á svæfinga- og gjörgæsludeild og erað hefja sérnám í svæfingalækningum. „Þær hafa alltaf heillað
mig því þær eru með fjöl-
breyttari sérgreinum.
Svæfingarnar þurfa að taka
mið af því hvaða aðgerð
sjúklingurinn þarf að fara í
og hvernig heilsufar hans
er. Síðan vinna svæf-
ingalæknar líka á gjör-
gæsludeild, þar sem veik-
asta fólkið liggur, t.d. eftir
slys eða alvarleg veikindi.
Þeir vinna því með allt frá
hraustasta fólkinu sem fer í
minni háttar aðgerðir yfir í
veikasta fólkið sem þarf
mikinn stuðning og aðkomu
margra sérfræðinga.“
Þegar vinnunni sleppir
þá eyðir Jóhanna tíma með
fjölskyldunni en hefur einn-
ig gaman af útivist og al-
mennri hreyfingu. „Mér
finnst mikilvægt fyrir al-
menna líðan og heilsu að
hreyfa mig reglulega, sér-
staklega þegar mikið álag
er í vinnunni. Ég æfi cross-
fit og finnst það skemmti-
legt og hef farið þrisvar til
fjórum sinnum í viku á æfingar en þar sem ég er ófrísk þá fer ég
minna núna. Ég hjóla líka mikið, oft með syni mínum, sem finnst fátt
skemmtilegra en að vera í kerrunni aftan á hjólinu. Svo hef ég eins og
flestallir læknar líka gaman af því að lesa. Núna er ég að lesa sjálfs-
ævisögu eftir heila- og taugaskurðlækninn Paul Kalanithi sem
greindist ungur með lungnakrabbamein. Bókin heitir When Breath
Becomes Air og er fræðandi að lesa hana sem læknir, með tilliti til
samskipta við sjúklinga og aðstandendur en einnig sem manneskja og
hefur áhrif á sýn manns á lífið.
Í tilefni dagsins ætlum við fjölskyldan að hafa huggulegan kvöld-
mat í kvöld. Svo verður smá veisla um helgina en allt með frekar ró-
legu sniði, þetta verður meira svona aðventukaffi.“
Sambýlismaður Jóhönnu er Darri Hilmarsson, sérfræðingur í fjár-
máladeild Samskipa. Sonur þeirra er Róbert Leó Darrason sem er
tveggja ára gamall.
Fjölskyldan Jóhanna, Darri og Róbert
Leó stödd í Orlando í Flórída sl. sumar.
Spennt fyrir svæf-
ingalækningum
Jóhanna Gunnlaugsdóttir er þrítug í dag
H
araldur Reynisson
fæddist í Reykjavík á
fullveldisdaginn 1966,
yngstur fjögurra
systkina. Fyrstu ævi-
árin átti hann heima á Bergþórugötu
en flutti tveggja ára í Neðra-
Breiðholtið og hefur síðan lengst af
verið viðloðinn Breiðholtið. Halli var
alla sína grunnskólagöngu í Breið-
holtsskóla enda af fyrstu kynslóð
barna í þessu nýja hverfi sem var að
breytast úr sveit og óbyggðum holtum
og hæðum í fjölmennasta hverfi borg-
arinnar. Hann æfði og keppti með ÍR í
knattspyrnu og handbolta og er enn í
dag virkur ÍR-ingur.
Halli var í sveit á sumrin, eitt sumar
við Hornafjörð og síðan á Erpsstöðum
í Dalasýslu hjá frændfólki í föðurætt.
Frá barnæsku hafði hann svo verið
mikið á Hömrum í Þverárhlíð í Borg-
Haraldur Reynisson grunnskólakennari - 50 ára
Tónlistarmaðurinn Haraldur hefur sungið, leikið á gítar og samið eigin lög um árabil og er enn að með kennslunni.
Tónelskur kennari
í líkamsrækt og jóga
Flottir Hér eru synirnir, Reynir, Sölvi og Steinar, við Sigurbogann í París.
Arna Dögg Kristinsdóttir, Róbert Bragi Vestmann Kárason, Heiðar Þórarinn Jó-
hannsson, Júlía Sól Arnórsdóttir og Alís Helga Brynjudóttir héldu tombólu við
verslun Samkaupa við Borgarbraut á Akureyri. Þau söfnuðu 15.826 krónum sem
þau styrktu Rauða krossinn með.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isVeit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
MIKILVÆGUR
STUÐNINGUR
Bjóðum mikið úrval af vönduðum stuðningshlífum á góðu verði.
Kíktu til okkar og við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina fyrir þig.
HNÉSPELKUR MJÓBAKSSPELKUR ÚLNLIÐS- OG
ÞUMALSPELKURVið slitgigt í hné, liðbanda- og/eða
liðþófaskaða og óstöðugleika í hné.
Margar tegundir af stuðningshlífum
og spelkum fyrir hné.
Hentar við langvarandi bakverkjum
t.d. við samfallsbroti í mjóhrygg,
óstöðugleika í mjóbaki og
útbungun á brjóski.
Hentar eftir gifsmeðferð og alvarlegar
tognanir, við slitgigt eða liðagigt og við
verkjum í úlnlið.
Nú í samn
ingi við
Sjúkratryg
gingar
Íslands