Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 20
Mörg íslensk fyrirtæki hafa á undanförnum misserum sýnt eftirtektarvert frum
kvæði um samfélagsábyrgð. Fyrir
rúmu ári skrifuðu liðlega 100 fyrir
tæki undir yfirlýsingu um að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda
og sorps, og fyrr í þessum mánuði
undirrituðu tæplega 300 ferðaþjón
ustufyrirtæki yfirlýsingu um ábyrga
ferðaþjónustu. Þetta gerðu fyrir
tækin af fúsum og frjálsum vilja, án
íhlutunar stjórnvalda. Fyrirtækin
vilja með þessu hafa jákvæð áhrif á
umhverfi sitt og samfélagið og eru
sammála um að samfélagsábyrgð
er lykilþáttur í að treysta ímynd og
sjálfbærni Íslands.
Loftslagsmál ekki loftkennd mál
Með loftslagsyfirlýsingu sem Festa,
miðstöð um samfélagsábyrgð, og
Reykjavíkurborg hvöttu fyrirtæki til
að skrifa undir, heita fyrirtæki því
að setja sér mælanleg markmið um
að minnka losun gróðurhúsaloft
tegunda og að minnka losun sorps.
Dæmi eru um að fyrirtæki hafi náð
miklum árangri í loftslagsmálum og
snúið umtalsverðum kostnaði, til
dæmis með því að minnka urðun
sorps og fá tekjur af flokkuðum
afurðum eins og pappa. Fyrirtæki
hafa einnig náð að minnka jarð
efnaeldsneytisnotkun og spara
þannig mikla fjármuni á sama tíma
og mengun þeirra hefur minnkað.
Ábyrg ferðaþjónusta
Þann 10. janúar síðastliðinn skrif
uðu tæplega 300 fyrirtæki undir
yfirlýsingu um ábyrga ferðaþjón
ustu. Í því felst að ferðaþjónustu
fyrirtækin ætla með markvissum
hætti að vernda náttúruna, tryggja
öryggi ferðamanna, virða rétt
indi starfsfólks og hafa jákvæð
áhrif á nærsamfélögin sem ferða
menn sækja heim. Það eru Festa og
Íslenski ferðaklasinn sem standa
að hvatningarverkefninu í sam
starfi við aðila í ferðaþjónustunni.
Fyrirtækjunum er boðið upp á
fræðslu og stuðning út árið 2017 til
að innleiða ábyrga ferðaþjónustu í
rekstur sinn. Mörg ferðaþjónustu
fyrirtæki eru nú þegar að vinna af
mikilli ábyrgð gagnvart náttúrunni
og samfélaginu og önnur eru að
hefja þá vegferð. Þau reyndari geta
því miðlað til annarra fyrirtækja og
haft áhrif á ábyrga ferðaþjónustu á
Íslandi. Það er hagur allra.
Alþjóðleg þróun
Fleiri og fleiri fyrirtæki úti um allan
heim hafa opnað augun fyrir því
að árangur næst ekki ef fókusinn
er á skammtímagróða án tillits til
þess hvaða afleiðingar reksturinn
hefur á samfélagið nær og fjær.
Ábyrg félög eru þau sem með mark
vissum hætti skipuleggja starfsemi
sína þannig að þau skili fjárhags
legum ávinningi og hafi á sama
tíma jákvæð áhrif á samfélagið og
umhverfið. Framtíðarsýn okkar hjá
Festu er að íslensk fyrirtæki verði
þekkt fyrir samfélagsábyrgð sína,
ábyrga umgengni um náttúruna og
þann ávinning sem þau skapa fyrir
samfélagið.
Stjórnvöld sýni ábyrgð í verki
Stjórnvöld geta haft mikil áhrif á
samfélagsábyrgð fyrirtækja. Þar
er það einkum þrennt sem Festa
leggur til. Í fyrsta lagi ættu stjórn
völd að setja fram skýra og spenn
andi framtíðarsýn um sjálfbærni og
samfélagsábyrgð á Íslandi.
Í öðru lagi mætti styðja betur við
og hvetja fyrirtæki og einstaklinga
til góðra verka með skattaafsláttum,
innviðauppbyggingu og öðrum
stuðningsleiðum.
Í þriðja lagi ættu stjórnvöld og
sveitarfélög að ganga fram með
góðu fordæmi og tryggja ábyrga
og gagnsæja stjórnarhætti stjórn
sýslunnar en ekki síður að stofnanir
og fyrirtæki í eigu hins opinbera
séu fyrirmyndir og innleiði sam
félagsábyrgð í alla starfsemi sína.
Ýmislegt í nýjum stjórnarsáttmála
bendir til að samfélagsábyrgð verði
á dagskrá núverandi ríkisstjórnar.
Má þar nefna áherslur í umhverfis
málum, mannréttindi og jafnrétti.
Festa hvetur stjórnvöld til að styðja
við samfélagsábyrgð fyrirtækja og
býðst til að leggja því verkefni lið.
Suðurlandsbraut 34 / S. 517 3900
Útsala
Fyrirmyndir stúlkubarna hafa lengi vel verið áberandi í umræðunni og þykir mér góð
ástæða til þeirrar umræðu. Hvað
með fyrirmyndir ungra drengja?
Þegar ég fékk að vita að ég ætti
von á strák fór hugur minn að reika.
Það voru svo sannarlega mikil gleði
tíðindi þar sem lítið er um karlmenn
í minni stórfjölskyldu. Ég hef alist
upp með systrum, móðursystrum,
frænkum og ömmum og veit því ekki
mikið um strákamenningu. Eftir að
hafa fylgst með litlum frændum
og drengjunum á leikskólum sem
ég hef unnið á þá vissi ég nokkurn
veginn að eitt er óumflýjanlegt, ofur
hetjutímabilið. Ég vissi til dæmis að
ég gæti átt von á því að þurfa einn
daginn að gefa mig og kaupa Spider
manstígvél. Jafnvel þótt ofurhetju
kvikmyndir séu vinsælar núna og
ekki ætlaðar börnum þá virðast
ungir drengir vera aðalskotmark
varnings sem tengist ofurhetjum. En
fyrst ofurhetjur eru góðar og bjarga
heiminum er það ekki bara hið besta
mál?
Að mínu mati eru þetta ekki æski
legar fyrirmyndir fyrir unga drengi
þar sem þeirra helsta og eina lausn
á vandamálum er ofbeldi. Slagsmál,
vopn og sprengjur eru oftast megin
þema þessara kvikmynda og birtist
þetta einnig í teiknimyndaþáttum
um þessar ofurhetjur sem eru ekki
bannaðir börnum. Nútíma ofur
hetjur eru í breyttri mynd, þær setja
ákveðna líkamsstaðla sem erfitt er
að fylgja. Hægt er að kaupa ofur
hetjubúning með viðbættum vöðv
um, því ofurhetjur eru og eiga að
vera vöðvastæltar. Hetjurnar starfa
flestar einar, eru miklir einfarar og
virka oft félagslega bældir menn
sem eiga erfitt með að festa ráð sitt.
Ofurkraftar þeirra og vopn gera
þeim kleift að sigrast á illmennum
sem heilum her af lögregluþjónum
er ógerlegt. Ef ofurhetjurnar hafa
ekki ofurkrafta þá hafa þeir vopn
eða rosalega bardagahæfileika.
Bardagarnir aðalatriðið
Þegar ungir drengir eru að leika
Spiderman eða Batman þá hlaupa
þeir um, sparka og kýla út í loftið.
Þeir virðast ekki vera með neitt sér
staklega djúpar pælingar um neinn
boðskap eða þess háttar. Þeir vita
að þessar ofurhetjur eru „góðar“ en
samt sem áður eru slagsmálin eða
bardagarnir aðalatriðið.
Skilaboðin sem ég tel að ungir
drengir skynji einna helst eru: Vertu
sterkur, ekki treysta á neinn og ef
einhver er vondur – kýld'ann. Vilj
um við ekki kenna okkar drengjum
aðrar lausnir?
Ég vil að drengurinn minn eigi
aðrar fyrirmyndir en þegar ofur
hetjurnar eru teknar í burtu þá er
ekki mikið í boði. Mikið hefur verið
fjallað um neikvæðar fyrirmyndir
stúlkna, mittismjóar prinsessur í
neyð, og aukist hefur aðeins við
framboð á þeim fyrirmyndum með
sterkari kvenpersónum. Prinsess
urnar virðast þó ná að halda velli.
Margir lofsama litlar dömur sem
segja nei við prinsessukjólunum
og mæta í ofurhetjubúningi á ösku
daginn. Er það eitthvað skárri fyrir
mynd?
Hvað er þá til ráða? Erum við for
eldrarnir gjörsamlega varnarlausir
gegn þessari markaðssetningu?
Verðum við að sætta okkur við þá
staðreynd að póníhestarnir séu
komnir með mjótt mitti og augn
háralengingu og að ofurhetjurnar
verði sífellt sterkari, vopnaðri og
ofbeldishneigðari?
Batman betri en Barbie?
Árið 1944 kom út á ensku bókin Age of Extremes eftir Eric Hobsbawm. Bókin kom
út í íslenskri þýðingu 1999 og var
nefnd Öld öfganna, saga heimsins
á 20. öld. Eric Hobsbawm fæddist í
Alexandríu 1917 – á dögum breska
heimsveldisins, en ólst upp í Vínar
borg og Berlín. Hann var af gyðinga
ættum og í Berlín varð hann vitni að
valdatöku Hitlers 1933. Þá fluttist
hann til Bretlands, las sagnfræði við
King’s College í Cambridge, mótaðist
af Marxisma og varð einn af stofn
endum tímaritsins Past and Present
1952 sem hafði mikil áhrif á viðhorf
í sagnfræði. Hobsbawm kenndi lengi
sagnfræði við London University og
voru einkunnarorð hans: „Hlutverk
sagnfræðinga er að muna það sem
aðrir gleyma.“
Tuttugasta öld er mesta framfara
skeið í sögu mannkyns en um leið
skeið mestu grimmdarverka sem
sögur fara af, öld glundroða, örbyrgð
ar og siðleysis, öld göfugra hugsjóna,
menningarafreka og mikilla lífsgæða
hjá hluta jarðarbúa en hungurs og
dauða hjá íbúum þriðja heimsins.
Öldin var einnig öld grimmdar
verka og þjóðarmorða sem eiga sér
fáar hliðstæður. Háð voru langvinn
stríð þar sem drepnir voru mun fleiri
óbreyttir borgarar, konur og börn, en
hermenn.
Öld andstæðna og grimmdar
Nú er risin ný öld, sem margir bundu
vonir við. Enn eru þó háð grimmileg
stríð og réttur einstaklinga fyrir borð
borinn. Fleiri eru nú á flótta undan
harðrétti, rangsleitni og fátækt en
nokkru sinni. Þá vekur tilhneiging
í stjórnmálum meðal voldugustu
þjóða heims ugg í brjósti, nú síðast
framferði Trumps í Bandaríkjunum,
og aukið fylgi öfgaflokka í Þýskalandi,
Frakklandi og Austurríki – að ekki sé
talað um framferði Rússlands undir
stjórn Pútíns en í því landi hefur
misrétti og yfirgangur viðgengist frá
ómunatíð. Alþýðulýðveldið Kína,
þar sem býr fimmtungur jarðarbúa,
er farið að haga sér í samræmi við
reglur auðvaldsins, auk þess sem til
hneiging til að leggja undir sig lönd og
þjóðir hefur einkennt stjórnarhætti
Kínverja lengi.
Kenningar um frið og bræðralag
Kristin trú, gyðingdómur og íslam,
sem merkir „friður“, boða frið og
bræðralag – frið á jörðu. Fimm reglur
búddismans að góðu líferni kveða
á um, að ekki skuli drepa, ekki stela
og ekki ljúga, eins og í öðrum megin
trúarbrögðum heimsins. Engu að
síður standa samtök kristinna manna,
gyðinga – að ekki sé talað um samtök
múslíma – fyrir ofbeldi og manndráp
um víða um heim, þótt alls staðar séu
þar minnihlutahópar á ferð.
Sameinuðu þjóðirnar
Sameinuðu þjóðirnar voru stofn
aðar í lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
Markmið með stofnun þeirra var að
varðveita frið og öryggi, efla vinsam
lega sambúð þjóða byggða á virðingu
fyrir jafnrétti og sjálfsákvörðunarrétti
einstaklinga og þjóða, koma á sam
vinnu um lausn alþjóðavandamála
og stuðla að virðingu fyrir mannrétt
indum án tillits til kynþáttar, kyns,
tungu eða trúarbragða.
Sameinuðu þjóðirnar ráða ekki
sjálfar yfir herliði og þurfa aðildar
ríkin því að bjóða fram herlið og aðra
aðstoð. Öryggisráðið mælir með
aðgerðum til lausnar deilum milli
ríkja – eða átökum innan ríkja og
getur ákveðið að senda friðargæslulið
á átakasvæði. Ráðið getur einnig falið
ríkjum að beita þvingunaraðgerðum,
efnahagslegum refsiaðgerðum eða
gripið til sameiginlegra hernaðar
aðgerða gegn árásaraðila.
Neitunarvald
Fimm ríki, sigurvegarar í síðari heims
styrjöldinni, gegndu lykilhlutverki
við stofnun Sameinuðu þjóðanna:
Bandaríkin, Bretland, Frakkland,
Kína og Sovétríkin. Höfundar sátt
mála Sameinuðu þjóðanna gerðu
ráð fyrir að þessi fimm ríki héldu
áfram að tryggja frið í heiminum og
fengu þær því fastasæti í Öryggis
ráðinu. Auk þess var ákveðið að þau
fengju neitunarvald í ráðinu, þannig
að ef eitthvert þeirra greiddi atkvæði
gegn tillögum um aðgerðir, gæti ráðið
ekki samþykkt tillöguna. Þetta neit
unarvald hefur verið gagnrýnt, enda
reynst Akkillesarhæll í starfi sam
takanna, og í tvo áratugi hefur verið
reynt að finna leið til þess að höggva á
þennan Gordíonshnút, en lítið hefur
gengið, einkum vegna áhrifa frá vold
ugum vopnasölum heimsins.
Margir telja skipan í Öryggisráðið,
valdamestu stofnun Sameinuðu
þjóðanna, endurspegla úrelta heims
mynd. M.a. hafi ríki Evrópu meiri völd
en ríki annarra heimsálfa. Þriðjungur
fulltrúa í Öryggisráðinu kemur frá
Evrópu, enda þótt ríki þar séu aðeins
fimmtungur aðildarríkjanna sem eru
193. Auk fastafulltrúa Kína í ráðinu
eru aðeins tveir fulltrúar frá Asíu,
kjörnir til tveggja ára. Ríki Afríku
eiga engan fastafulltrúa en þrír full
trúar eru kjörnir til tveggja ára. Afríka
og Asía eiga því aðeins sex fulltrúa í
Öryggisráðinu þótt ríki úr þessum
heimsálfum séu helmingur aðildar
ríkja Sameinuðu þjóðanna.
Menning, listir og mannúð
Þrátt fyrir misrétti, manndráp og
ofbeldi blómstrar menning og
listir um allan heim: myndlist, bók
menntir, leiklist að ógleymdri tón
list af ýmsu tagi. Auk þess vinna
mannúðarsamtök og samtök sjálf
boðaliða ómetanlegt starf. Þá hefur
menntun aukist á öllum sviðum og
tækni opnað nýjar leiðir í atvinnulífi,
framleiðslu og tómstundum. Komin
er fram tækni sem á eftir að leysa flest
an þann vanda sem stafar af hlýnun
jarðar, en hitasveiflur á jörðinni eru
ekki nýtt fyrirbæri.
Á Íslandi vex upp kynslóð sem er
betur menntuð en nokkur fyrri kyn
slóð á þessu kalda landi, sem var eitt
fátækasta land í Evrópu fyrir einni öld
en er nú meðal ríkustu þjóða heims.
Því má segja að Ísland hafi ferðast
þúsund ár á einni öld. Við lifum því
enn á öld öfganna.
Öld öfganna
Kristín Kolbrún
Kolbeinsdóttir
Waage
mastersnemi í
foreldrafræðslu
og uppeldisráð-
gjöf hjá Háskóla
Íslands
Tryggvi
Gíslason
fv. skólameistari
Fyrirtæki í fararbroddi
um samfélagsábyrgð
Ketill Berg
Magnússon
framkvæmda-
stjóri Festu,
miðstöðvar um
samfélagsábyrgð
fyrirtækja
Erum við foreldrarnir gjör-
samlega varnarlausir gegn
þessari markaðssetningu?
Þann 10. janúar síðastliðinn
skrifuðu tæplega 300 fyrir-
tæki undir yfirlýsingu um
ábyrga ferðaþjónustu.
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r20 s k o ð U n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-1
5
2
C
1
C
2
9
-1
3
F
0
1
C
2
9
-1
2
B
4
1
C
2
9
-1
1
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K