Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 32
KOMDU
Í
– dásamleg deild samfélagsins
OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17
Karólína tekur sjálf flestar myndirnar í bækurnar sína en fær
líka myndir hjá öðrum til að auka fjölbreytnina.
Hér er svo
stór Hluti
lands-
ins enn
ósnortinn
og ég tel
að það sé
það dýr-
mætasta
sem þarf að
viðHalda.
Þegar farið er að spjalla kemur
fljótt í ljós að Karólína metur
Ísland, víðerni þess og þjóðmenn
ingu meira en margur innfæddur.
En hvað leiddi hana hingað norður
á hjara? „Ég var svolítið í hesta
mennsku í Þýskalandi sem ungling
ur og þó ég kynntist ekki íslenska
hestinum þar vissi ég af honum og
fannst heillandi hvað íslenska sam
félagið var nátengt honum. Mig
langaði að kynnast því nánar og réð
mig sem vinnukonu að Húsatóftum
á Skeiðum. Kom fyrst til landsins
1989, strax eftir framhaldsskóla.
Á þeim tíma steig maður beint út
undir beran himin úr flugvélunum í
Keflavík og ég fann strax að hér vildi
ég eiga heima, þetta var mitt land. Ég
get ekki útskýrt tilfinninguna en það
sama gerðist þegar ég fór í fyrsta sinn
á bak íslenskum hesti sama kvöld.“
Fór strax að kynna Ísland
Karólína hélt aftur til Þýskalands,
lærði verkfræði og stofnaði auglýs
ingastofu í félagi við þáverandi kær
asta. Þegar upp úr sambúð þeirra
slitnaði sá hún sér leik á borði, flutti
til Íslands en hélt samt áfram að
vinna við fyrirtækið gegnum tölvu.
Nokkrum árum seinna stofnaði
hún forlag sem systurfyrirtæki þess
til að hefja útgáfu bæklinga um
Ísland. „Nú er ég sjálfstæð og það
er gott en ég og fyrrverandi sam
býlismaður minn eigum í ágætum
samskiptum,“ lýsir hún brosandi.
Bækurnar eru orðnar sjö talsins
sem Karólína hefur gefið út um sér
íslenskt efni á þýsku og sumar þeirra
hefur hún þýtt á ensku. Fyrir utan
bækur um íslenska hestinn, kindina
og smalahunda á Íslandi hefur hún
skrifað um torfbæi og ferðalög fyrr
á tíð.
„Ég fór strax að kynna Ísland
því að ég vil fræða fólk sem kemur
hingað um bakgrunn þjóðarinnar,
það er oft lítið um hann í almennum
ferðabæklingum,“ útskýrir hún. „Ég
er grúskari og hef gaman af þeirri
rannsóknarvinnu sem að baki bók
unum býr, bæði að rýna í gamlar
bækur og sækja fróðleik til eldra
fólks sem hefur frá svo mörgu að
segja.“
Ullin áhugamál og lifibrauð
Íslensk ull er í uppáhaldi hjá Kar
ólínu, prjónaflíkur, mislit reyfi,
rokkur og kambar heima hjá henni
eru til vitnis um það. „Ullin er bæði
áhugamál og lifibrauð hjá mér.
Íslenska ullin er svo einstök, ég tel
að Íslendingar meti hana ekki að
verðleikum. Mér finnst hún nýtast
best þegar tekið er ofan af, þannig
að togið og þelið er aðskilið. Hreint
þel er svo mjúkt, svo nota ég togið til
að skreyta með.“
Karólína er með kindur í fóstri
fyrir fólk í Þýskalandi sem borgar
henni fyrir fóður og lyf og fær ull í
staðinn. Svo kaupir hún mislita ull
af bændum fyrir betra verð en þeir
fá hjá Ístexi og selur úti. „Ég fer til
Þýskalands nokkrum sinnum á ári
og held námskeið þar um íslenska
ull, það bókast strax á þau,“ segir
hún. „Stundum fæ ég líka ferðahópa
til mín á sumrin til að skoða kind
urnar og fræðast um þær, þær eru
alltaf hér nálægt bænum því ég hef
30 hektara innan girðingar. Sumir
vilja kaupa ull strax. Þannig gerðist
ég ullarsölumaður.“
Engin tún tilheyra Hvammshlíð
og Karólína kaupir hey af næsta
nágranna, Braga bónda á Þverá,
sem aðstoðar hana líka í ýmsu öðru
kringum búskapinn. Hún á 600 hekt
ara af landi sem allt er vaxið lyng og
kjarrgróðri, þannig vill hún hafa
það. Hún sér kosti Íslands betur en
margir aðrir. „Ég held að hvergi í
heiminum sé jafn tæknilega háþróað
samfélag sem er svona nátengt nátt
úrunni og á Íslandi,“ segir hún og
heldur áfram: „Hér er svo stór hluti
landsins enn ósnortinn og ég tel að
það sé það dýrmætasta sem þarf
að viðhalda. En ég óttast að margir
Íslendingar kunni ekki að meta
það sem vert er. Mér finnst erfitt að
segja útlendingum að hér eyðileggi
menn náttúru hálendisins á stórum
svæðum bara til að selja útlendum
stóriðnaðarfyrirtækjum orku sem
græða á henni. Sjálfri finnst mér það
mikil skammsýni.“
Baugur fylgist
vel með hvernig
Karólínu gengur
yfir girðinguna í
bylnum.
↣
Karólína og
hennar grái
hrússi sem
gengur með
svuntu þegar
með þarf.
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r32 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
8
-F
C
7
C
1
C
2
8
-F
B
4
0
1
C
2
8
-F
A
0
4
1
C
2
8
-F
8
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K