Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 90
Þó svo að okkar fremsta afreksfólk í íþróttum sé jafn ólíkt og það er margt á það langflest það sam-eiginlegt að hafa stefnt á toppinn í sinni grein alla sína ævi. Árangurinn er afrakstur þrotlausar vinnu, einbeitts vilja og þeim sem komast alla leið tekst um leið að uppfylla sinn stærsta æsku- draum. Þetta er í grófum dráttum sú saga sem ótal íþróttamenn hafa ætíð sagt og munu gera áfram um ókomna tíð. Ég staldraði því við þau tíðindi að sænski handboltamaðurinn Kim Ekdahl du Rietz væri að hætta, aðeins 27 ára gamall og af þeirri ein- földu ástæðu að hann hafi ekki lengur áhuga að spila handbolta. Raunar hafi hann aldrei haft raunverulegan áhuga á íþróttinni. „Nú þegar ég veit að ég er að hætta er þetta eins og að draumur sé að rætast,“ segir Kim í samtali við Frétta- blaðið. „Þetta hljómar ef til vill öfga- kennt en svona líður mér.“ Kim tók vel í viðtalsbeiðni frá mér. Þegar ég hafði fyrst samband við hann var hann reyndar staddur í fríi í Helsinki og bað hann um að viðtalið yrði tekið þegar hann væri kominn aftur til Þýskalands, þar sem hann spilar með ríkjandi meisturum Rhein-Neckar Löwen. Við náðum svo loksins saman eitt síðdegið. Kim var þá staddur á bókasafni en hann klárar í vor BA-gráðu í sálfræði. Kim Ekdahl Du Rietz er 27 ára. Hann er lykilmaður í liði Löwen sem varð Þýskalandsmeistari í vor. Hann hafði áður orðið Evrópumeistari með ljónunum frá Mannheim. Þar að auki vann hann silfur með landsliði Svía á Ólympíuleikunum í London árið 2012 en hefur reyndar síðan þá hætt að gefa kost á sér í landsliðið. Hann var samningsbundinn Löwen til loka næsta tímabils en fékk samningi sínum rift frá og með lokum þessa tímabils. Þá mun hann hætta að spila handbolta fyrir fullt og allt. Vildi fyrst hætta 14 ára Kim segir að ákvörðun hans hafi ekki komið hans nánustu á óvart. Þvert á móti. „Ég hugsaði fyrst um að hætta í handbolta fjórtán ára. Þá voru margir af mínum bestu vinum að spila körfubolta sem mér fannst mun skemmtilegri íþrótt,“ útskýrir hann. Forráðamenn félagsins hafi hins vegar ekki átt von á þessu. „Þeir höfðu aldrei heyrt um hand- boltamann sem vill hætta 27 ára og ég reyndar ekki heldur. Þeir reyndu að telja mér hughvarf í langan tíma.“ Kim segir hins vegar að það hafi ekki tekist og að engar líkur séu á að hann skipti um skoðun áður en tímabilinu lýkur í vor. „Eftir því sem liðið hefur á ferilinn hjá mér hefur löngun mín til að hætta orðið sterkari, sérstaklega síðustu 2-3 árin. Ég sagði við sjálfan mig nokkrum sinnum að taka bara eitt ár í viðbót Kim Ekdahl du Rietz er ein besta vinstri skytta heims og er í lykilhlutverki hjá Rhein-Neckar Löwen. Hann hefur nú, 27 ára og á hátindi ferilsins, ákveðið að hætta allri handboltaiðkun. FRéttabLaðið/GEtty Hamingjusamur inn í óvissuna Einn besti handboltamaður heims ætlar að hætta í íþróttinni í sumar fyrir fullt og allt, aðeins 27 ára gamall. Kim Ekdahl du Rietz ræðir við Fréttablaðið um ákvörðun sína sem er byggð á því að hann nýtur þess ekki að vera handboltamaður og hefur aldrei gert. Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@365.is Skilaboð frá Ólafi í viðnum Kim Ekdahl du Rietz getur ekki annað en hlegið þegar ég nefni að í spjalli okkar minni hann mig á Ólaf Stefánsson, sem lék einnig með Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi á sínum tíma. Þeir náðu þó aldrei að vera liðsfélagar. „Margir hjá félaginu hafa líka sagt þetta við mig, að ég minni þá á Ólaf,“ segir Kim sem hefur ákveðið að hætta að spila handbolta í sumar, 27 ára. Ólafur spilaði fram yfir fertugt og náði að verða meðal bestu handboltamanna sögunnar. Þó svo að það séu líkindi með þeim eru þeir þó afar ólíkir að því leyti. „Ólafur hafði meiri metnað en ég. Ég man að ég fékk sama bás í búningsklef- anum okkar og hann. Þar hafði hann rist í viðinn: „Strive for perfection or do some- thing else“,“ rifjar Kim upp. Leggðu þig allan fram til að ná fullkomnun eða snúðu þér að einhverju öðru. Kim nefnir að hann reyni að leggja sig allan fram þegar hann er inni á vellinum og að hann vilji ganga ánægður frá loknu verki. „En þetta síðasta skref sem þeir allra bestu hafa – þessi mikla innri hvatning verður líka að koma frá því að þú njótir þess sem þú ert að gera. Ef þú gerir það ekki þá kemur hvatningin aldrei.“ en í haust fann ég að ég var kominn á endastöð.“ Ég spurði hann hvort eitthvað hefði gerst, sem varð þess valdandi að hann missti áhugann á handbolta. Svo er ekki og er skýringin líklega sú að honum finnst bara ekki skemmti- legt að spila handbolta. „Ég hef hugsað þetta í mörg ár og ekki fundið skýrari svör. Ég verð bara að taka þessu eins og það er. Ég nýt þess ekki að spila handbolta og ég er að bregðast við því.“ Engin innri hvatning Þrátt fyrir að líf afreksíþróttamanna hafi ákveðið glansyfirbragð er það fremur einhæft. Að minnsta kosti eins og Kim lýsir lífi sínu sem atvinnu- maður í handbolta. „Allir dagar eru eins. Maður fer í vinnunna og veit nákvæmlega hvað maður á að gera. Svo gerir maður það og fer heim. Næsti dagur er svo nákvæmlega eins. Þannig er þetta, hvert ár og hvert tímabil. Þegar því lýkur tekur annað við. Það er ekkert að því ef maður nýtur þess. En ég vil gera eitthvað annað.“ Markmiðssetning er afar algeng hjá íþróttamönnum. Þeir setja sér mark- mið sem hvetja þá áfram til að leggja sig fram og verða betri í sinni íþrótt. Þegar einu markmiði er náð er markið sett enn hærra og ný markmið – nýir draumar – verða að veruleika. „Ég hef áður sett mér markmið en það er langt síðan. Ég hef ekki endilega hugsað um að vinna titla. Þetta hefur breyst síðan ég var yngri og í dag veit ég í raun ekki hver mín innri hvatning er.“ Talið berst að peningum. Hand- boltamenn í fremstu röð í Þýskalandi fá vel borgað og Kim er í aðstöðu til að fá góð laun næsta áratuginn eða svo. „Ég hef vissulega sparað síðustu árin til að gefa mér meira svigrúm fyrir framtíðina. En svo kemur að þeim tímapunkti að maður segir við sjálfan sig að það sé ekki hægt að sjá fyrir öllu í framtíðinni. Maður gæti glatað öllu einn daginn og þá hefur maður varið öllu lífinu að gera eitthvað sem maður vill ekki gera.“ Fólk má hafa sínar skoðanir Kim finnst ekki að hann skuldi neinum neitt. Jafnvel þótt hann sé stútfullur af hæfileikum sem nýtast vel til að spila handbolta og hann sé í stöðu sem svo marga dreymir um að vera í. En hefur hann skilning á því  ef einhver myndi  gagnrýna ákvörðun hans og teldi hann sóa hæfileikunum sínum? „Já, ég skil alveg pælinguna. Fólk má halda það sem það vill. En mér finnst skrýtið að maður verði að gera eitthvað bara af því að maður er góður í því. Það finnst mér raunar bara heimskulegt.“ Hann segist þó hafa upplifað reglulega á ferli sínum að fólk í kringum hann sé óánægt með að hann hefi ekki gefið sig allan að íþróttinni. „Þau sáu hæfileikana og töldu að ég hefði ekki ræktað þá eins vel og ég hefði getað. Ég hefði örugglega getað gert meira en áhug- inn var ekki nógu mikill. Þannig er það bara.“ Eins og barn á jólum Að öllu óbreyttu verður leikur Rhein-Neckar Löwen og Melsungen þann 10. júní síðasti handbolta- leikur Kims á ferlinum. Hann hugsar um þann leik daglega. „Mér líður eins og barni sem er að bíða eftir að jólin komi. Það verður mjög stór stund fyrir mig enda hef ég stundað liðsíþróttir síðan ég var fimm ára og handboltinn verið mjög stór hluti af lífi minni, hvort sem mér líkar betur eða verr.“ Kim vill nýta tímann sem hann fær til að sjá heiminn og læra ný tungumál. Hann segir að tungumál séu í dag hans helsta ástríða. En veit hann hvernig hann mun að öðru leyti verja ævinni og hvað hann muni taka sér fyrir hendur á nýjum vettvangi? „Nei, ég hef ekki hugmynd. Það er allt opið. Ég ætla að njóta lífsins og njóta þeirrar tilfinningar að vita ekki hvar ég verð eftir þrjú ár, fimm ár eða tíu ár. Ég nýt óöryggisins sem því fylgir – það er hreinræktuð ánægja. Það eina sem ég veit er að ég þarf að afhenda íbúðina mína í lok júní. Ég þarf að koma dótinu mínu fyrir og eftir það veit enginn hvað tekur við.“ 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r46 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 0 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 2 8 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 9 -7 C D C 1 C 2 9 -7 B A 0 1 C 2 9 -7 A 6 4 1 C 2 9 -7 9 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.