Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 46
„Við rottuðum okkur saman
nokkrir krakkar hér í hverfinu
og leggjum undir okkur Kaffi
barinn í dag. Hann er að verða
einn af fáum stöðum í miðbæn
um sem eru að gera skemmti
lega hluti fyrir kúnnahópinn
sinn,“ segir Árni Sveinsson kvik
myndagerðarmaður, sem stend
ur fyrir flóamarkaði á Kaffi
barnum ásamt Helga Snæ Jónas
syni Kjeld, Kristínu Johnsen,
Gná Jónsdóttur og Wiolu Önnu.
„Ég er gamli karlinn í hópnum,“
segir hann.
„Stelpurnar ætla að koma
sér fyrir á efri hæðinni og við
strákarnir verðum niðri. Við
erum með þyngra stöff, dekk,
loftpressur og verkfæri en þær
verða með föt og húsmuni,“ segir
Árni, en er svo bara að grínast.
Strákarnir munu einnig selja úr
fataskápnum sínum, hljómplöt
ur og diska. Hann á von á góðri
stemmingu.
„Það verður spiluð einhver
tónlist og boðið upp á góð tilboð
á mat og fleiru. Það verður ýmis
legt í boði þarna á barnum annað
en áfengi, það er alveg hægt að
koma með krakkana. Við hugs
uðum reyndar ekki fyrir nein
um hressum skemmtiatriðum.“
Hvernig eyðirðu helgunum
yfir leitt? „Það fer nú bara eftir
því hvað er í gangi, fer í sund, fæ
mér ís. Djammið er alveg dautt.
Það er mun skemmtilegra að fara
eitthvað í eftirmiðdaginn og vera
þá kominn heim á skikkanlegum
tíma,“ segir Árni. Það sé nota
legra að skemmta sér heima í
góðra vina hópi. „Maður hefur
alveg reynt að kíkja eitthvað út
mjög seint og manni bara líst
ekki á blikuna. Kannski er það
bara aldurinn,“ segir hann, helg
arnar snúist að miklu leyti um að
finna afþreyingu fyrir einkadótt
urina.
„Hún er orðin 9 ára svo rólu
vallahangsi er lokið, nú verð
ur maður bara að vera hress
og finna eitthvað skemmtilegt
að gera, sem er reyndar hæg
ara sagt en gert í þessari borg.
Þegar maður er búinn með Hús
dýragarðinn hvað er þá eftir,
bókasöfnin? Það vantar meira
fjör. Hnignunin er reyndar alls
staðar ef út í það er farið,“ segir
hann glottandi. „Ég fór á Holtið
um daginn og barþjónninn kunni
ekki að blanda drykk! Þetta er
ekki bara í heilbrigðiskerfinu.
En ég ætla ekkert að vera svart
sýnn.“
Þegar Árni er ekki að leita
uppi skemmtilegheit um helg
ar er hann á kafi í kvikmynda
gerð. Heimildarmynd um hina
nýhættu hljómsveit Retro Stef
son er væntanleg á næstu vikum.
„Við tókum upp lokatónleika
Retro Stefson og ýmislegt fleira
í kringum það. Sú mynd kemur
vonandi út í mars. Svo eru ýmis
fleiri spennandi verkefni í
vinnslu.“
Flóamarkaðurinn hefst á Kaffi-
barnum klukkan 16 og stendur til
klukkan 20.
Gamli karlinn
oG krakkarnir
með markað
Fatnaður, nýr sem vintage, fyrir stráka og stelpur, vínyll og list
er meðal þess sem finna má á flóamarkaði á Kaffibarnum í
dag. Árni Sveinsson kvikmyndagerðarmaður er einn þeirra
sem selja út úr skápunum hjá sér á barnum.
„Ég er gamli karlinn í hópnum,“ segir Árni Sveins kvikmyndagerðarmaður en hann blæs til flóamarkaðar á Kaffibarnum ásamt
Helga Snæ Jónassyni Kjeld, Kristínu Johnsen, Gná Jónsdóttur og Wiolu Önnu milli klukkan 16 og 20 í dag. mynd/Gva
Það verður spiluð
einhver tónlist og
boðið upp á góð tilboð á
mat og fleiru. Það verður
ýmislegt í boði þarna á
barnum annað en áfengi,
það er alveg hægt að
koma með krakkana.
Árni Sveins
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Eggjamúffur í morgunmat.
Grænmetisþeytingur úr bland
aranum er fljótlegur morgun
matur og örugg leið til þess að
innbyrða haug af vítamínum og
trefjum að morgni þegar lítill
tími er til stefnu. Ávaxtaþeyt
ingar eru einnig vinsælir en þó
má deila um hversu hollt það er
að skella í sig svo miklu magni
af ávaxtasykri í einu. Þar fyrir
utan hentar ekki alltaf að svolgra
í sig ískaldan drykk að morgni.
Til dæmis er gott á köldum vetr
armorgnum að fá eitthvað heitt
í kroppinn en samt fljótlegt. Þá
koma eggjamúffurnar inn en
þær er auðveldlega hægt að baka
fyrirfram og hita upp á örfáum
mínútum í örbylgjunni.
Saxið niður grænmeti, til dæmis
papriku, lauk, sveppi og spínat.
Brjótið 4 egg í skál og þeytið
saman.
Gljásteikið paprikuna í olíu á
pönnu í nokkrar mínútur, bætið
þá sveppunum út í, loks spínati og
mörðum hvítlauk.
Blandið grænmetinu saman við
eggjahræruna, hellið í múffu
form og bakið í ofni við 175 gráð
ur í fimmtán mínútur. Látið kólna á
grind og svo sett í frysti í loftþétt
um umbúðum.
Uppskrift fengin af www.show-
metheyummy.com.
Heit eggjamúffa
Vetraryfirhafnir - Sparidress - Peysur - Blússur - Bolir
Laugavegi 63 • S: 551 4422
ÚTSÖLU-sprengja
50-70%
afsláttur
www.laxdal.is
50–70%
afsláttur
Síðasta útsöluvika
Sérstök dagskrá verður í níu sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu.
Í kvöld er kjörið tækifæri að
skella sér í sund og upplifa magn
aða stund í lauginni þar sem ljós,
myrkur og gleði verður allsráð
andi. Á morgun er síðan hægt að
skemmta sér á skíðum í Bláfjöll
um þar sem snjó og birtu verður
fagnað.
Í tilefni Vetrarhátíðar verður
sérstök dagskrá í níu sundlaugum
á höfuðborgarsvæðinu. Á meðal
þess sem hægt er að velja um er
jóga, dans, samflot, kajaksigling
ar í sundi, sundpóló, sundlauga
diskó, Improv Ísland og tónleikar
með Jóni Jónssyni. Sundlaugarnar
sem um er að ræða eru Álftanes
laug, Árbæjarlaug, Ásvallalaug,
Klébergslaug, Lágafellslaug, Laug
ardalslaug, Salalaug í Versölum,
Sundlaug Kópavogs og Seltjarnar
neslaug. Á milli kl. 18 og 23 er að
gangur í þessar laugar ókeypis.
Á morgun verður síðan snjó
fögnuður í Bláfjöllum þar sem snjó
og birtu verður fagnað á lokadegi
Vetrarhátíðar. Frítt er fyrir 16 ára
og yngri í fjallið og 20% afsláttur
af skíðaleigu, auk þess sem tilboð
verða á veitingum í veitingasölu.
Synt í myrkri og
Skíðað í birtu
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r4 f ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X Xf ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-5
5
5
C
1
C
2
9
-5
4
2
0
1
C
2
9
-5
2
E
4
1
C
2
9
-5
1
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K