Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 36
Þ að er fallegur dagur hér við Breiðafjörðinn og ég hef það ágætt,“ segir Stykkishólmsbúinn Jón Torfi Arason þegar hringt er í hann vestur.
Hann er ferjumaður á Baldri í vetur
en stundar fiskveiðar við strendur
landsins á sumrin. Síðast en ekki
síst er hann tónlistarmaður og er
í hljómsveitinni Þrír sem nú er að
gefa út sína fyrstu plötu. Hún heitir
Allt er þegar Þrír er. Þar á Jón Torfi
stóran hlut, hann er höfundur laga
og texta auk þess að spila á gítar og
syngja. Aðrir liðsmenn sveitarinnar
eru Sigurbjörg María Jósepsdóttir
sem einnig er úr Hólminum, hún
spilar á kontrabassa, og Þórdís
Claessen sem býr í Reykjavík og er
grafískur hönnuður og trommari.
Þau gefa út plötuna bæði á vínyl
og geisladiski og láta ekki Spotify
nægja. „Okkur finnst skemmtilegra
að hafa eitthvað í höndunum,“ segir
Jón Torfi.
Áður en ég forvitnast um tón-
listarmanninn Jón Torfa langar
mig að spjalla aðeins við sjómann-
inn Jón Torfa. Hvernig er að vera
ferjumaður á Breiðafirði? „Það er
fínt. Reyndar kemur fyrir að við
verðum veðurteppt á Brjáns-
læk og bíðum eftir að
báran minnki aðeins en
langoftast höldum við
áætlun,“ lýsir hann. Segir
vöruflutninga helsta hlut-
verk Baldurs á veturna,
meðal annars fiskflutninga
að vestan. „Núna er frekar
lítið um farþega en það
getur breyst ef færð versnar
á vegum.“ Hann kveðst sjá
um kaffiteríuna Báruna um
borð. „Svo tek ég á móti far-
þegum í Flatey og fer með
póstinn í land. Skipsfélagar
mínir vilja kalla mig aðstoðar-
matsvein en ef ég væri kona
teldist ég þerna og ég held mig
við þann titil, óháð kyni,“ segir
hann sposkur.
Rétt rekinn upp í fjöru
Jón Torfi er uppalinn í Hólm-
inum. „Foreldrar mínir fluttu með
mig hingað mjög ungan og hér hef
ég átt heima mestan partinn, en
búið í Reykjavík, kannski tíu ár í
allt, í tveimur lotum.“ Hann kveðst
hafa stundað sjómennsku meðfram
menntaskólanámi og háskólanámi.
„Í svona plássum þá lenda menn á
sjó, það vantar svo oft í afleysingar.
Ég byrjaði á trillu á sumrin með
öðrum þegar ég var 16 ára, á hand-
færum og beitukóngsveiðum.“
Hann segir þó mikið vanta upp á
að hann þekki Breiðafjörðinn eins
og lófann á sér. „Þegar maður er að
sigla er aðalatriði að hafa sjó undir
en hér er mikið af eyjum og skerj-
um og kortin ótrúlega ónákvæm,
stór svæði í firðinum eru bara ekki
mæld. Það er því lærdómur fyrir
mig að flakka um á ferjunni með
mönnum sem eru aldir upp í eyj-
unum, þeir horfa mikið til fjalla,
spekúlera í gömlum miðum og vita
allaf nákvæmlega hvar þeir eru.“
Jón Torfi keypti sér litla trillu fyrir
fimm árum og hélt á strandveiðar.
„Fyrstu sumurin á trillunni minni
var ég á vestursvæðinu og reri bæði
frá Hólminum og Patró en færði
mig yfir á Strandirnar fyrir tveimur
sumrum. Lét flytja bátinn á bíl, þetta
er svo löng sigling og allra veðra
von á leiðinni fyrir Horn. Við erum
nokkrir vinir sem höfum verið á
Norðurfirði og haldið til í bátunum.
Það er heilmikil útilega en við stönd-
um þétt saman og okkur er vel tekið
af heimafólki. Það er mikils virði.“
Báturinn hans Jóns Torfa heitir
Torfi, eins og bátur langafa
hans. Hann er smíðaður
í Finnlandi og þeir eru
jafnaldrar svo þeir eiga
ýmislegt sameiginlegt.
„Torfi er lítill bátur. Ég
mundi ekki vilja taka
meira á hann en eitt
tonn í einu. Samkvæmt
strandveiðireglum má
ég heldur ekki taka
meira en 770 kíló á
dag.“
Eitt sinn kveðst Jón
Torfi hafa komist í háska. „Bátur-
inn varð vélarvana og var rétt rek-
inn upp í fjöru, það var guðslán að
Sævar, félagi minn, var nærstaddur
og náði að koma taug í hann áður
en illa fór. Þegar menn eru einir um
borð má ekkert út af bregða til að
illa fari en við félagarnir vitum alltaf
hvor af öðrum.“
En er hann alltaf með hugann við
fiskinn eða er hann líka að semja lög
eða texta þegar hann er á sjó? „Það
er allur gangur á því. Fiskeríið getur
verið mjög tregt og lífið um borð er
viss jafnvægiskúnst. Maður fer á ein-
hverja bleyðu sem manni finnst lík-
legri en allt annað og bleytir færin
en ekkert gerist. Þá fer maður að
efast um sjálfan sig. En ég er alltaf
með gítar með, festan upp í loft, og
gríp stundum í hann á rekinu eða
þegar komið er í land, flest mín lög
hef ég samið um borð í Torfa eða
öðrum bátum sem ég hef verið á í
gegnum tíðina.“
Spilar á vindlakassagítar
Hann kveðst hafa verið með laga-
smíðar bak við eyrað frá því að
opnaðist fyrir þá rás fyrir tíu árum.
„Annað slagið dúkka upp einhverjar
línur eða melódíur sem maður
losnar ekki við. Þá er ágætt að hafa
þann hátt á að leyfa öðrum að njóta
þeirra og sjá hvað verða vill. Ég byrja
stundum á að taka þær upp á sím-
ann. Þegar ég var á línu á Bíldsey úr
Stykkishólmi kom fyrir að ég varð
andvaka uppi í koju, fékk hugmynd
að lagi og reyndi að raula það inn á
símann í gegnum vélarhljóðið, án
þess að vekja Birki Kúld vélstjóra
sem lá sirka 30 sentimetra frá mér.“
Á nýju plötunni eru ellefu lög,
öll frumsamin af Jóni Torfa. „Þrjú
laganna gerði ég í samstarfi við
aðra og í einu tilfelli er textinn ekki
eftir mig. Sumt er svolítið blúsað og
kannski ádeila, svo eru angurværir
ástarsöngvar og lög um sjómennsk-
una. „Í dag eru sjómenn með hár-
net,“ er sungið í einu þeirra – sem
sagt af sem áður var. Einn textinn er
málsvörn fyrir skítseiðin í landinu
sem enginn virðist vilja taka upp
hanskann fyrir. Svolítið grín. Það er
engin samfella í efni disksins, heldur
er það bara eins og það kemur af
skepnunni.“
Ég rifja upp tónleika sem ég
naut í Hörpunni á Menningarnótt
fyrir nokkrum árum, þegar Jón
Torfi var í Varsjárbandalaginu og
fleygði frá sér hljóðfærum og greip
önnur í miðjum lögum. Þar gekk
mikið á. Hann kannast við það en
segir spilamennsku í tríói ekki gefa
mikla möguleika á svoleiðis glensi.
„Í einu laganna á plötunni spila ég á
vindlakassagítar sem mér áskotnað-
ist í Eyjafirði. Það eykur smá á fjöl-
breytnina.“
Gott lag er á tónlistarkennslu í
Hólminum að sögn Jóns Torfa. „Ég
fékk að byrja í tónlistarskólanum
þegar ég var fimm ára því þá öfund-
aði ég Dag, stóra bróður, svo mikið
af því að vera þar. Var svo þar við
nám þar til ég fór í framhaldsskól-
ann. Það var ómetanlegt.“
Hann kveðst hafa verið í og úr
framhaldsskóla um tíma, byrjað
í MH og orðið stúdent úr Fjöl-
braut í Ármúla. „Mér tókst ekki að
útskrifast fyrr en ég var kominn á
sjó, þá var ég að leysa prófverkefni
í pásum. Seinna fór ég í sagnfræði í
Háskólanum. Þar varð saga mín lík
margra annarra, ég er búinn með
allt nema að skila BA-ritgerðinni.
En meðan ég var í sagnfræðinni var
ég líka að vinna í Bæjarins bestu í
Tryggvagötunni og á Þjóðskjala-
safninu, auk þess að spila í Varsjár-
bandalaginu.“
Grípur í
gítarinn
á rekinu
Hólmarinn Jón Torfi Arason er með gítarinn
festan upp í lofti stýrishússins þegar hann
rær til fiskjar og seilist í hann þegar lögin
koma til hans. Hann er höfundur laga og
texta á plötu sem nefnist Allt er þegar Þrír er
sem nú er að renna glóðvolg af bandinu.
„Þegar menn eru komnir með reynslu þá leiðast menn á þessa braut,“ segir Jón Torfi um sjómennskuna. FRéTTablaðið/STeFán
Umslagið hönnuðu þær Þórdís og
Sigurbjörg eftir ljósmynd Stefáns
Karlssonar, í frummynd þess fór
6.561 perla.
ÞegAr ég vAr á línu
á Bíldsey úr sTykkis-
hólmi kom fyrir Að ég
vArð AndvAkA uppi í
koJu, fékk hugmynd
Að lAgi og reyndi Að
rAulA ÞAð inn á símAnn
í gegnum vélArhlJóðið.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r36 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-5
A
4
C
1
C
2
9
-5
9
1
0
1
C
2
9
-5
7
D
4
1
C
2
9
-5
6
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K