Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 44
„Eric starfaði sem blaðamaður í
Barcelona í mörg ár. Við urðum
mjög góðir vinir eftir að hann
flutti til Íslands og þessi hug-
mynd var lengi að gerjast með
okkur og konunni hans, henni
Azahöru,“ segir Xavier sem
starfar sem lögfræðingur og að-
stoðarmaður spænska ræðis-
mannsins á Íslandi. Azahara er
kennari en Eric starfar sem leið-
sögumaður hér á landi og hefur
gefið út tvær bækur um krepp-
una á Íslandi á katalónsku.
Vitinn Varpar ljósi
El faro þýðir Vitinn. „Okkur
langaði til að varpa ljósi á hið
rétta Ísland,“ segir Xavier en
hann segir ótrúlega mikið af
fréttum og lýsingum á Íslandi
ekki eiga við rök að styðjast. Ís-
landi sé oft lýst í dýrðarljóma,
hér séu allir hávaxnir, ljóshærðir
og mjóir, hér kosti ekkert að fara
til læknis og svo framvegis. „Við
vildum bara segja fréttir úr sam-
tímanum og sýna fólki raunveru-
leikann sem er jafn margvísleg-
ur og annars staðar í heiminum.“
Viðfangsefnin í El Faro eru
af ýmsum toga. „Flest eru frétt-
ir sem við þýðum úr íslenskum
fjölmiðlum en einnig erum við
með okkar eigin fréttamál. Svo
erum við einnig með ýmsar um-
fjallanir um önnur málefni, til
dæmis ferðabransann, íslenska
menningu og sögu,“ segir Xav-
ier en þó nokkrir koma að skrif-
um á síðunni. „Eric er ritstjór-
inn en ég og fleiri skrifum líka
á síðuna, bæði Spánverjar og Ís-
lendingar.“
lesin Víða um heim
Xavier segir þörfina á slíkri
fréttasíðu hafa verið nokkra.
„Það er fullt af fólki frá Spáni og
Suður-Ameríku sem talar ekki
góða íslensku og veit lítið hvað er
um að vera. Og þó að hægt sé að
finna töluvert af íslenskum frétt-
um á ensku er alltaf best að lesa
á móður málinu.“
Hann segist geta sér til að
Spánverjar á Íslandi séu í kring-
um átta hundruð og enn fleiri
frá spænskumælandi löndum í
Suður-Ameríku. „Ég giska á að
við séum á annað þúsund sem
búum hér á landi,“ segir hann
en bendir á að lesendur síðunn-
ar séu ekki aðeins búsettir hér
á landi. „Við höfum oft hitt fólk
sem er að koma hingað til Íslands
og hefur lesið síðuna fyrir heim-
sóknina. Einnig höfum við talað
við blaðamenn sem fylgst hafa
með ýmsum málum, til dæmis
um Birnu og alþingiskosningarn-
ar, í gegnum síðuna,“ lýsir hann
en um þúsund manns skoða síð-
una daglega.
Hörður útskrifaðist
sem leikari 1970 og sama
ár hljóðritaði hann sína
fyrstu breiðskífu
Fólk er kynningarblað sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367
Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
sólveig
gísladóttir
solveig@365.is
Flest eru fréttir
sem við þýðum úr
íslenskum fjölmiðlum en
einnig erum við með
okkar eigin fréttamál.
Xavier Rodriguez
eric lluent, azahara bejarano og Xavier rodriguez skrifa meðal annarra á vefsíðuna www.elfaro.is þar sem sagðar eru
íslenskar fréttir á spænsku. mynd/gVa
íslenskar Fréttir og
greinar á spænsku
Eric Lluent, Xavier Rodriguez og Azahara Bejarano, sem búa og starfa á Íslandi, settu í október
síðastliðnum í loftið vefsíðuna www.elfaro.is þar sem sagðar eru íslenskar fréttir á spænsku.
Um þúsund manns bæði á Íslandi og úti í heimi skoða síðuna á degi hverjum.
BÍLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Mest lesna bílablað landsins kemur næst út
þriðjudaginn 7. febúrar.
Ritstjóri blaðsins er Finnur Thorlacius sem er
bílaáhugamaður af líf og sál.
Umsjón auglýsinga:
Atli Bergmann • atlib@365.is • sími 512 5457
Sagnakaffi er skemmtileg viðburð-
aröð í Gerðubergi. Hugmyndin er
að víkka út ramma hefðbundinnar
sagnamennsku. Sagðar eru sögur í
tali, tónum, takti, ljóðum og leik.
Á miðvikudaginn næsta, 3. febrú-
ar klukkan 20, er komið að söngva-
skáldinu Herði Torfasyni. Lög hans
og textar hafa hljómað í eyrum
Íslendinga í áratugi.Textar hans
eru oft mjög beitt ádeila og lögin
grípandi en það er ekki síst túlk-
un Harðar sem þykir lifandi og
skemmtileg.
Hörður útskrifaðist sem leikari
1970 og sama ár hljóðritaði hann
sína fyrstu breiðskífu. Hörður hefur
starfað sjálfstætt síðan 1972 sem
söngvaskáld, leikari og leikstjóri.
Hann hefur sent frá sér 24 plöt-
ur, ljóðabók, ævisögu, söngva-
hefti og nokkur leikrit. Þá er hann
margheiðraður fyrir framlag sitt til
mannréttindamála á Íslandi.
Sagnakaffið fer fram í kaffihúsinu
í Gerðubergi og geta gestir fengið
sér kaffi og með því á meðan dag-
skráin stendur yfir.
Allir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir en aðgangur er ókeypis.
hörður
torFa í
sagnakaFFi
Hörður torfason tónlistarmaður.
mynd/gVa
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r2 f ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X Xf ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
2
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-6
9
1
C
1
C
2
9
-6
7
E
0
1
C
2
9
-6
6
A
4
1
C
2
9
-6
5
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K