Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 111
Því myndin byrjar einhvers staðar
Myndlistarsýning í Arion banka
Laugardaginn 4. febrúar kl. 13.30 verður myndlistarsýning opnuð í höfuðstöðvum
Arion banka, Borgartúni 19. Þar verða verk í eigu bankans frá 1939–1993 pöruð
við verk yngri listamanna frá 2010–2016.
Við opnunina heldur Dorothée Kirch fyrirlestur um verkin og enduróm hugmynda.
Listamenn / Bragi Ásgeirsson / Davíð Örn Halldórsson / Guðmundur Thoroddsen
/ Heimir Björgúlfsson / Helgi Már Kristinsson / Helgi Þorgils Friðjónsson / Helgi
Þórsson / Hildur Bjarnadó
ir / Ingunn Fjóla Ingþórsdó
ir / Jóhanna Kristbjörg
Sigurðardó
ir / Jóhannes Jóhannesson / Magnús Helgason / Magnús Kjartansson
/ Marta María Jónsdó
ir / Ragnheiður Jónsdó
ir Ream / Snorri Arinbjarnar /
Svavar Guðnason / Vilhjálmur Bergsson / Þorvaldur Jónsson / Þorvaldur Skúlason
Laugardagur til lista
Allir velkomnir – sýningin stendur til 17. mars.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
7-
03
50
TónlisT
HHHHH
Caput hópurinn flutti verk eftir Jónas
Tómasson, Sigurð Árna Jónsson,
Áskel Másson og Niels Rosing-Schow
á Myrkum músíkdögum.
Stjórnandi: Guðni Franzson.
Einleikari: Helene Navasse.
Norðurljós í Hörpu
Laugardaginn 28. janúar
Átta hægir dansar handa Láru eftir Jónas Tómasson, sem fluttir voru á tónleikum
Caput hópsins á Myrkum músík-
dögum, vöktu spurningar. Fyrir það
fyrsta var tónlistin einn samfelldur
kafli og erfitt að greina hvenær einn
dansinn endaði og sá næsti tók við. Í
öðru lagi var fráleitt að um dans væri
að ræða, því takturinn í tónlistinni
var svo torkennilegur að hann var í
rauninni ekki til staðar.
Nú getur nútímadans auðvitað
verið nokkurn veginn hvað sem er
og vissulega hægt að dansa við takt-
lausa tónlist, en þá finnst manni að
eitthvað grípandi þurfi að vera við
hana. Það sem hér var boðið upp
á var hins vegar flatt og leiðinlegt,
gersneytt öllum innblæstri. Verkið
samanstóð af löngum, samhengis-
lausum tónum sem mynduðu ein-
staklega fráhrindandi hljóma. Það
var engin stígandi, engin framvinda,
enginn fókus.
Ég hef heyrt glæsileg tónverk eftir
Jónas; hann getur gert betur en þetta.
Flashlight eftir Niels Rosing-
Schow kom ekki heldur vel út. Þar
var eins konar einleikur, sem var í
höndunum á Helene Navasse, en
hún lék á bassaflautu. Einnig komu
rafhljóð við sögu, og svo var meðleik-
urinn í höndunum á Caput hópnum.
Mestmegnis grundvallaðist tónlistin
á hröðum nótum og fínlegri áferð,
sem náði aldrei að virka lokkandi.
Grunnhugmyndirnar voru fyrst og
fremst klisjur, og því risti heildar-
myndin ekki djúpt. Einleikurinn var
auk þess lítt krassandi, aðallega fálm-
kenndar tónahendingar sem höfðu
ekkert að segja.
Annað á dagskránni var tilkomu-
meira. Shades eftir Áskel Másson var
að hluta til byggt á þjóðlaginu við
textann „Kvinnan fróma, klædd með
sóma“. Úr því vann tónskáldið stór-
brotinn vef fjölbreytilegra litbrigða
sem einkenndust af kröftugri fram-
setningu. Form verksins var nokkurs
konar frásögn með spennuþrunginni
uppbyggingu og sterkum hápunkti
og niðurstöðu. Það var ánægjulegt
áheyrnar.
Referral Stampede eftir Sigurð
Árna Jónsson var líka flott. Tónahug-
myndirnar voru að vísu ekki sérlega
skemmtilegar og minntu mjög á aka-
demíska samtímatónlist frá áttunda
áratuginum, en úrvinnslan var snörp
og fókuseruð. Framvindan var því
ávallt athyglisverð.
Caput hópurinn spilaði vel í alla
staði, leikurinn var nákvæmur og
samtaka. Dagskráin hefði aftur á
móti þurft talsvert meiri yfirlegu.
Jónas Sen
niðursTaða: Misjöfn dagskrá en
flutningurinn var góður.
Kvinnan fróma,
klædd með sóma
Sýning á yfir 300 refilsaumuðum
myndum verður opnuð í Laugar-
borg í Eyjafjarðarsveit í dag klukk-
an 14, að frumkvæði Bryndísar
Símonardóttur, fjölskylduráðgjafa
og handverkskonu í Eyjafirði.
Myndirnar eru saumaðar af
afkomendum skoskra innflytj-
enda í 33 löndum og sýningin, sem
nefnist Scottish Diaspora Tapestry,
hefur verið á ferð milli þeirra landa
síðustu tvö ár. Ísland er síðasti við-
komustaðurinn á leið til Skotlands
aftur og hér munu fimm myndir
bætast við eftir Kristínu Rögnu
Gunnarsdóttur, teiknara og rit-
höfund.
Myndirnar segja sögu systranna
Þórunnar hyrnu og Auðar djúp-
Saga landnámskvenna á saumuðum myndum
Vilborg Davíðs-
dóttir, Bryndís
Símonardóttir
og Kristín Ragna
Gunnarsdóttir með
mynd af Þórunni
hyrnu.
úðgu Ketilsdætra sem komu hingað
til lands með fjölskyldur sínar frá
Skotlandi á níundu öld.
„Ég teiknaði myndirnar undir
handleiðslu Vilborgar Davíðsdótt-
ur sem er sérfræðingur í þeim Auði
og Þórunni,“ segir Kristín Ragna.
„Nú er saumaskapurinn að
mestu eftir en ég held þó að fimm
konur séu þegar byrjaðar. Það
verður hægt að sjá þær að verki á
opnuninni í dag og alltaf er gaman
að fylgjast með verki í vinnslu.“
– gun
Nú er saumaskapur-
iNN að mestu eftir
eN ég held þó að fimm koNur
séu þegar byrjaðar.
M e n n i n g ∙ F r É T T a B l a ð i ð 67l a u g a r D a g u r 4 . F e B r ú a r 2 0 1 7
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-0
1
6
C
1
C
2
9
-0
0
3
0
1
C
2
8
-F
E
F
4
1
C
2
8
-F
D
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K