Fréttablaðið - 04.02.2017, Blaðsíða 30
Það er ekki vandalaust að þræða vegarslóðann heim að Hvammshlíð í Húnavatnssýslu en ábú-andinn Karólína kemur niður að þjóðvegi til
að lóðsa okkur síðasta spölinn og
hundurinn Baugur fylgir henni. Það
er sex stiga frost og gengur á með
snörpum éljum og fjúki.
Heima við bæ láta kindurnar ekki
vetrargarrann aftra sér frá útivist, þó
dyr fjárhússins standi þeim opnar.
Þær eru bústnar og athygli vekur að
næstum allar eru mislitar. Baugur
setur upp smá gestasýningu, hann
telur það greinilega sína æðstu
skyldu að halda hópnum saman og
hleypur kring um hann sitt á hvað.
Karólína á líka fjögur hross, þau
eru á útigangi rétt við bæinn en
þennan dag eru þau í hvarfi niðri í
dal sem skýlir þeim.
Aldrei einmana
Dyrnar á litla húsinu hennar Kar-
ólínu ná ekki niður að jörð, því
þarf að glenna sig til að stíga inn
fyrir þröskuldinn. „Í fyrravetur
voru fannir hér upp á veggi og þá
kom sér vel að hafa svona hátt upp
í dyrnar. Á sumrin er ég hins vegar
með tröppur,“ útskýrir Karólína.
Hún teiknaði húsið sjálf og bjó í
því sex ár í Hegranesinu í Skagafirði.
Þar voru landþrengsli svo þegar hún
frétti af Hvammshlíð var hún ekki
lengi að hugsa sig um og flutti húsið
þangað. Jörðin er 600 hektarar að
stærð en hafði ekki verið setin síðan
1886 og var því húsalaus. „Það leið
mánuður frá því ég skrifaði undir
kaupsamninginn haustið 2015 þar
til ég var flutt inn, enda var vetur
að skella á og ég þurfti að gera allt
á háhraða. Ég var vatnslaus fyrsta
mánuðinn, frá miðjum desember,
þá fann ég góða lind með kalda-
vermsl uppi í fjallinu og þar með var
eina vandamálið úr sögunni,“ segir
hún brosandi. Bendir á að byggða-
línan liggi um landareignina og því
hafi verið auðvelt að ná í rafmagn.
En er hún aldrei einmana þarna
Fann að hér vildi ég eiga heima
Féð er hænt að Karólínu en hefur varann á sér gagnvart Baugi. Það er marglitt eins og sjá má enda fellur mislita ullin í kramið hjá þeim kaupendum sem Karólína er í sambandi við. FréttABlAðið/SteFán KArlSSon
Karólína
teiknaði húsið
sitt sjálf og situr
hér við þýska
eikarborðið sitt
sem er ættar-
gripur.
Gunnþóra Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Stefán Karlsson
stefank@365.is ljósmyndari
Hátt í hlíðum fjallanna á mótum
Húnavatnssýslu og Skagafjarðar, býr
Karólína verkfræðingur í Hvamms-
hlíð. Ekki á hlýlegasta stað plánet-
unnar en víðsýnið, landrýmið og
frelsið vega það upp. Hún hlakkar til
að vakna þar hvern morgun og sinna
sínum hugðarefnum, smábúskap,
ritstörfum og íslenskri ull.
uppi í fjalli? „Nei, ég er svo fegin að
vera hér í miðju náttúrunnar með
skepnunum mínum og hlakka til að
vakna á hverjum morgni. Veginum
yfir fjallið er alltaf haldið opnum
þannig að ég er ekki einangruð og
fæ oft vini í heimsókn eða öfugt en
fer yfirleitt ekki að heiman nema
ferðaveður sé.“
Það er hlýlegt innan dyra, hiti
í gólfinu og ull á stólum við eikar-
borðið þar sem við tyllum okkur.
Borðið er þýskur ættargripur því
Karólína fæddist í Bremen í Þýska-
landi, ólst upp í sveitinni nálægt
Hannover og heitir með réttu Caro-
line Kerstin Mende en sem jarðeig-
anda á Íslandi þótti henni við hæfi
að taka upp íslenskt nafn.
Ég var vatnslaus
fyrsta mánuðinn, frá
miðjum desember, þá
fann Ég góða lind með
Kaldavermsl uppi í
fjallinu og þar með var
eina vandamálið úr
sögunni. ↣
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r30 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-1
0
3
C
1
C
2
9
-0
F
0
0
1
C
2
9
-0
D
C
4
1
C
2
9
-0
C
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K