Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 36

Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 36
Þ að er fallegur dagur hér við Breiðafjörðinn og ég hef það ágætt,“ segir Stykkishólmsbúinn Jón Torfi Arason þegar hringt er í hann vestur. Hann er ferjumaður á Baldri í vetur en stundar fiskveiðar við strendur landsins á sumrin. Síðast en ekki síst er hann tónlistarmaður og er í hljómsveitinni Þrír sem nú er að gefa út sína fyrstu plötu. Hún heitir Allt er þegar Þrír er. Þar á Jón Torfi stóran hlut, hann er höfundur laga og texta auk þess að spila á gítar og syngja. Aðrir liðsmenn sveitarinnar eru Sigurbjörg María Jósepsdóttir sem einnig er úr Hólminum, hún spilar á kontrabassa, og Þórdís Claessen sem býr í Reykjavík og er grafískur hönnuður og trommari. Þau gefa út plötuna bæði á vínyl og geisladiski og láta ekki Spotify nægja. „Okkur finnst skemmtilegra að hafa eitthvað í höndunum,“ segir Jón Torfi. Áður en ég forvitnast um tón- listarmanninn Jón Torfa langar mig að spjalla aðeins við sjómann- inn Jón Torfa. Hvernig er að vera ferjumaður á Breiðafirði? „Það er fínt. Reyndar kemur fyrir að við verðum veðurteppt á Brjáns- læk og bíðum eftir að báran minnki aðeins en langoftast höldum við áætlun,“ lýsir hann. Segir vöruflutninga helsta hlut- verk Baldurs á veturna, meðal annars fiskflutninga að vestan. „Núna er frekar lítið um farþega en það getur breyst ef færð versnar á vegum.“ Hann kveðst sjá um kaffiteríuna Báruna um borð. „Svo tek ég á móti far- þegum í Flatey og fer með póstinn í land. Skipsfélagar mínir vilja kalla mig aðstoðar- matsvein en ef ég væri kona teldist ég þerna og ég held mig við þann titil, óháð kyni,“ segir hann sposkur. Rétt rekinn upp í fjöru Jón Torfi er uppalinn í Hólm- inum. „Foreldrar mínir fluttu með mig hingað mjög ungan og hér hef ég átt heima mestan partinn, en búið í Reykjavík, kannski tíu ár í allt, í tveimur lotum.“ Hann kveðst hafa stundað sjómennsku meðfram menntaskólanámi og háskólanámi. „Í svona plássum þá lenda menn á sjó, það vantar svo oft í afleysingar. Ég byrjaði á trillu á sumrin með öðrum þegar ég var 16 ára, á hand- færum og beitukóngsveiðum.“ Hann segir þó mikið vanta upp á að hann þekki Breiðafjörðinn eins og lófann á sér. „Þegar maður er að sigla er aðalatriði að hafa sjó undir en hér er mikið af eyjum og skerj- um og kortin ótrúlega ónákvæm, stór svæði í firðinum eru bara ekki mæld. Það er því lærdómur fyrir mig að flakka um á ferjunni með mönnum sem eru aldir upp í eyj- unum, þeir horfa mikið til fjalla, spekúlera í gömlum miðum og vita allaf nákvæmlega hvar þeir eru.“ Jón Torfi keypti sér litla trillu fyrir fimm árum og hélt á strandveiðar. „Fyrstu sumurin á trillunni minni var ég á vestursvæðinu og reri bæði frá Hólminum og Patró en færði mig yfir á Strandirnar fyrir tveimur sumrum. Lét flytja bátinn á bíl, þetta er svo löng sigling og allra veðra von á leiðinni fyrir Horn. Við erum nokkrir vinir sem höfum verið á Norðurfirði og haldið til í bátunum. Það er heilmikil útilega en við stönd- um þétt saman og okkur er vel tekið af heimafólki. Það er mikils virði.“ Báturinn hans Jóns Torfa heitir Torfi, eins og bátur langafa hans. Hann er smíðaður í Finnlandi og þeir eru jafnaldrar svo þeir eiga ýmislegt sameiginlegt. „Torfi er lítill bátur. Ég mundi ekki vilja taka meira á hann en eitt tonn í einu. Samkvæmt strandveiðireglum má ég heldur ekki taka meira en 770 kíló á dag.“ Eitt sinn kveðst Jón Torfi hafa komist í háska. „Bátur- inn varð vélarvana og var rétt rek- inn upp í fjöru, það var guðslán að Sævar, félagi minn, var nærstaddur og náði að koma taug í hann áður en illa fór. Þegar menn eru einir um borð má ekkert út af bregða til að illa fari en við félagarnir vitum alltaf hvor af öðrum.“ En er hann alltaf með hugann við fiskinn eða er hann líka að semja lög eða texta þegar hann er á sjó? „Það er allur gangur á því. Fiskeríið getur verið mjög tregt og lífið um borð er viss jafnvægiskúnst. Maður fer á ein- hverja bleyðu sem manni finnst lík- legri en allt annað og bleytir færin en ekkert gerist. Þá fer maður að efast um sjálfan sig. En ég er alltaf með gítar með, festan upp í loft, og gríp stundum í hann á rekinu eða þegar komið er í land, flest mín lög hef ég samið um borð í Torfa eða öðrum bátum sem ég hef verið á í gegnum tíðina.“ Spilar á vindlakassagítar Hann kveðst hafa verið með laga- smíðar bak við eyrað frá því að opnaðist fyrir þá rás fyrir tíu árum. „Annað slagið dúkka upp einhverjar línur eða melódíur sem maður losnar ekki við. Þá er ágætt að hafa þann hátt á að leyfa öðrum að njóta þeirra og sjá hvað verða vill. Ég byrja stundum á að taka þær upp á sím- ann. Þegar ég var á línu á Bíldsey úr Stykkishólmi kom fyrir að ég varð andvaka uppi í koju, fékk hugmynd að lagi og reyndi að raula það inn á símann í gegnum vélarhljóðið, án þess að vekja Birki Kúld vélstjóra sem lá sirka 30 sentimetra frá mér.“ Á nýju plötunni eru ellefu lög, öll frumsamin af Jóni Torfa. „Þrjú laganna gerði ég í samstarfi við aðra og í einu tilfelli er textinn ekki eftir mig. Sumt er svolítið blúsað og kannski ádeila, svo eru angurværir ástarsöngvar og lög um sjómennsk- una. „Í dag eru sjómenn með hár- net,“ er sungið í einu þeirra – sem sagt af sem áður var. Einn textinn er málsvörn fyrir skítseiðin í landinu sem enginn virðist vilja taka upp hanskann fyrir. Svolítið grín. Það er engin samfella í efni disksins, heldur er það bara eins og það kemur af skepnunni.“ Ég rifja upp tónleika sem ég naut í Hörpunni á Menningarnótt fyrir nokkrum árum, þegar Jón Torfi var í Varsjárbandalaginu og fleygði frá sér hljóðfærum og greip önnur í miðjum lögum. Þar gekk mikið á. Hann kannast við það en segir spilamennsku í tríói ekki gefa mikla möguleika á svoleiðis glensi. „Í einu laganna á plötunni spila ég á vindlakassagítar sem mér áskotnað- ist í Eyjafirði. Það eykur smá á fjöl- breytnina.“ Gott lag er á tónlistarkennslu í Hólminum að sögn Jóns Torfa. „Ég fékk að byrja í tónlistarskólanum þegar ég var fimm ára því þá öfund- aði ég Dag, stóra bróður, svo mikið af því að vera þar. Var svo þar við nám þar til ég fór í framhaldsskól- ann. Það var ómetanlegt.“ Hann kveðst hafa verið í og úr framhaldsskóla um tíma, byrjað í MH og orðið stúdent úr Fjöl- braut í Ármúla. „Mér tókst ekki að útskrifast fyrr en ég var kominn á sjó, þá var ég að leysa prófverkefni í pásum. Seinna fór ég í sagnfræði í Háskólanum. Þar varð saga mín lík margra annarra, ég er búinn með allt nema að skila BA-ritgerðinni. En meðan ég var í sagnfræðinni var ég líka að vinna í Bæjarins bestu í Tryggvagötunni og á Þjóðskjala- safninu, auk þess að spila í Varsjár- bandalaginu.“ Grípur í gítarinn á rekinu Hólmarinn Jón Torfi Arason er með gítarinn festan upp í lofti stýrishússins þegar hann rær til fiskjar og seilist í hann þegar lögin koma til hans. Hann er höfundur laga og texta á plötu sem nefnist Allt er þegar Þrír er sem nú er að renna glóðvolg af bandinu. „Þegar menn eru komnir með reynslu þá leiðast menn á þessa braut,“ segir Jón Torfi um sjómennskuna. FRéTTablaðið/STeFán Umslagið hönnuðu þær Þórdís og Sigurbjörg eftir ljósmynd Stefáns Karlssonar, í frummynd þess fór 6.561 perla. ÞegAr ég vAr á línu á Bíldsey úr sTykkis- hólmi kom fyrir Að ég vArð AndvAkA uppi í koJu, fékk hugmynd Að lAgi og reyndi Að rAulA ÞAð inn á símAnn í gegnum vélArhlJóðið. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r36 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 0 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 2 8 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 2 9 -5 A 4 C 1 C 2 9 -5 9 1 0 1 C 2 9 -5 7 D 4 1 C 2 9 -5 6 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 8 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.