Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 90
Þó svo að okkar fremsta afreksfólk í íþróttum sé jafn ólíkt og það er margt á það langflest það sam-eiginlegt að hafa stefnt á toppinn í sinni grein
alla sína ævi. Árangurinn er afrakstur
þrotlausar vinnu, einbeitts vilja og
þeim sem komast alla leið tekst um
leið að uppfylla sinn stærsta æsku-
draum. Þetta er í grófum dráttum sú
saga sem ótal íþróttamenn hafa ætíð
sagt og munu gera áfram um ókomna
tíð.
Ég staldraði því við þau tíðindi
að sænski handboltamaðurinn
Kim Ekdahl du Rietz væri að hætta,
aðeins 27 ára gamall og af þeirri ein-
földu ástæðu að hann hafi ekki lengur
áhuga að spila handbolta. Raunar
hafi hann aldrei haft raunverulegan
áhuga á íþróttinni.
„Nú þegar ég veit að ég er að hætta
er þetta eins og að draumur sé að
rætast,“ segir Kim í samtali við Frétta-
blaðið. „Þetta hljómar ef til vill öfga-
kennt en svona líður mér.“
Kim tók vel í viðtalsbeiðni frá
mér. Þegar ég hafði fyrst samband
við hann var hann reyndar staddur
í fríi í Helsinki og bað hann um að
viðtalið yrði tekið þegar hann væri
kominn aftur til Þýskalands, þar sem
hann spilar með ríkjandi meisturum
Rhein-Neckar Löwen. Við náðum svo
loksins saman eitt síðdegið. Kim var
þá staddur á bókasafni en hann klárar
í vor BA-gráðu í sálfræði.
Kim Ekdahl Du Rietz er 27 ára.
Hann er lykilmaður í liði Löwen sem
varð Þýskalandsmeistari í vor. Hann
hafði áður orðið Evrópumeistari með
ljónunum frá Mannheim. Þar að auki
vann hann silfur með landsliði Svía
á Ólympíuleikunum í London árið
2012 en hefur reyndar síðan þá hætt
að gefa kost á sér í landsliðið. Hann
var samningsbundinn Löwen til loka
næsta tímabils en fékk samningi
sínum rift frá og með lokum þessa
tímabils. Þá mun hann hætta að spila
handbolta fyrir fullt og allt.
Vildi fyrst hætta 14 ára
Kim segir að ákvörðun hans hafi
ekki komið hans nánustu á óvart.
Þvert á móti. „Ég hugsaði fyrst um
að hætta í handbolta fjórtán ára. Þá
voru margir af mínum bestu vinum
að spila körfubolta sem mér fannst
mun skemmtilegri íþrótt,“ útskýrir
hann. Forráðamenn félagsins hafi
hins vegar ekki átt von á þessu.
„Þeir höfðu aldrei heyrt um hand-
boltamann sem vill hætta 27 ára og
ég reyndar ekki heldur. Þeir reyndu
að telja mér hughvarf í langan tíma.“
Kim segir hins vegar að það hafi
ekki tekist og að engar líkur séu
á að hann skipti um skoðun áður
en tímabilinu lýkur í vor. „Eftir því
sem liðið hefur á ferilinn hjá mér
hefur löngun mín til að hætta orðið
sterkari, sérstaklega síðustu 2-3 árin.
Ég sagði við sjálfan mig nokkrum
sinnum að taka bara eitt ár í viðbót
Kim Ekdahl du Rietz er ein besta vinstri skytta heims og er í lykilhlutverki hjá Rhein-Neckar Löwen. Hann hefur nú, 27 ára og á hátindi ferilsins, ákveðið að hætta allri handboltaiðkun. FRéttabLaðið/GEtty
Hamingjusamur
inn í óvissuna
Einn besti handboltamaður heims ætlar að hætta í íþróttinni í
sumar fyrir fullt og allt, aðeins 27 ára gamall. Kim Ekdahl du Rietz
ræðir við Fréttablaðið um ákvörðun sína sem er byggð á því að
hann nýtur þess ekki að vera handboltamaður og hefur aldrei gert.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@365.is
Skilaboð frá Ólafi í viðnum
Kim Ekdahl du Rietz
getur ekki annað
en hlegið þegar ég
nefni að í spjalli
okkar minni
hann mig á Ólaf
Stefánsson, sem lék
einnig með Rhein-Neckar
Löwen í Þýskalandi á
sínum tíma. Þeir náðu þó
aldrei að vera liðsfélagar.
„Margir hjá félaginu hafa líka
sagt þetta við mig, að ég minni þá á
Ólaf,“ segir Kim sem hefur ákveðið að
hætta að spila handbolta í sumar, 27 ára.
Ólafur spilaði fram yfir fertugt og náði
að verða meðal bestu handboltamanna
sögunnar. Þó svo að það séu líkindi með
þeim eru þeir þó afar ólíkir að því leyti.
„Ólafur hafði meiri metnað en ég. Ég
man að ég fékk sama bás í búningsklef-
anum okkar og hann. Þar hafði hann rist í
viðinn: „Strive for perfection or do some-
thing else“,“ rifjar Kim upp. Leggðu þig
allan fram til að ná fullkomnun eða snúðu
þér að einhverju öðru. Kim nefnir að hann
reyni að leggja sig allan fram þegar hann
er inni á vellinum og að hann vilji ganga
ánægður frá loknu verki.
„En þetta síðasta skref sem þeir allra
bestu hafa – þessi mikla innri hvatning
verður líka að koma frá því að þú njótir
þess sem þú ert að gera. Ef þú gerir það
ekki þá kemur hvatningin aldrei.“
en í haust fann ég að ég var kominn
á endastöð.“
Ég spurði hann hvort eitthvað
hefði gerst, sem varð þess valdandi
að hann missti áhugann á handbolta.
Svo er ekki og er skýringin líklega sú
að honum finnst bara ekki skemmti-
legt að spila handbolta.
„Ég hef hugsað þetta í mörg ár og
ekki fundið skýrari svör. Ég verð bara
að taka þessu eins og það er. Ég nýt
þess ekki að spila handbolta og ég er
að bregðast við því.“
Engin innri hvatning
Þrátt fyrir að líf afreksíþróttamanna
hafi ákveðið glansyfirbragð er það
fremur einhæft. Að minnsta kosti
eins og Kim lýsir lífi sínu sem atvinnu-
maður í handbolta.
„Allir dagar eru eins. Maður fer í
vinnunna og veit nákvæmlega hvað
maður á að gera. Svo gerir maður
það og fer heim. Næsti dagur er svo
nákvæmlega eins. Þannig er þetta,
hvert ár og hvert tímabil. Þegar því
lýkur tekur annað við. Það er ekkert
að því ef maður nýtur þess. En ég vil
gera eitthvað annað.“
Markmiðssetning er afar algeng hjá
íþróttamönnum. Þeir setja sér mark-
mið sem hvetja þá áfram til að leggja
sig fram og verða betri í sinni íþrótt.
Þegar einu markmiði er náð er markið
sett enn hærra og ný markmið – nýir
draumar – verða að veruleika.
„Ég hef áður sett mér markmið en
það er langt síðan. Ég hef ekki endilega
hugsað um að vinna titla. Þetta hefur
breyst síðan ég var yngri og í dag veit
ég í raun ekki hver mín innri hvatning
er.“
Talið berst að peningum. Hand-
boltamenn í fremstu röð í Þýskalandi
fá vel borgað og Kim er í aðstöðu til að
fá góð laun næsta áratuginn eða svo.
„Ég hef vissulega sparað síðustu árin
til að gefa mér meira svigrúm fyrir
framtíðina. En svo kemur að þeim
tímapunkti að maður segir við sjálfan
sig að það sé ekki hægt að sjá fyrir öllu
í framtíðinni. Maður gæti glatað öllu
einn daginn og þá hefur maður varið
öllu lífinu að gera eitthvað sem maður
vill ekki gera.“
Fólk má hafa sínar skoðanir
Kim finnst ekki að hann skuldi
neinum neitt. Jafnvel þótt hann sé
stútfullur af hæfileikum sem nýtast
vel til að spila handbolta og hann sé
í stöðu sem svo marga dreymir um
að vera í. En hefur hann skilning
á því ef einhver myndi gagnrýna
ákvörðun hans og teldi hann sóa
hæfileikunum sínum?
„Já, ég skil alveg pælinguna. Fólk
má halda það sem það vill. En mér
finnst skrýtið að maður verði að
gera eitthvað bara af því að maður
er góður í því. Það finnst mér raunar
bara heimskulegt.“
Hann segist þó hafa upplifað
reglulega á ferli sínum að fólk í
kringum hann sé óánægt með að
hann hefi ekki gefið sig allan að
íþróttinni. „Þau sáu hæfileikana
og töldu að ég hefði ekki ræktað þá
eins vel og ég hefði getað. Ég hefði
örugglega getað gert meira en áhug-
inn var ekki nógu mikill. Þannig er
það bara.“
Eins og barn á jólum
Að öllu óbreyttu verður leikur
Rhein-Neckar Löwen og Melsungen
þann 10. júní síðasti handbolta-
leikur Kims á ferlinum. Hann hugsar
um þann leik daglega. „Mér líður
eins og barni sem er að bíða eftir
að jólin komi. Það verður mjög stór
stund fyrir mig enda hef ég stundað
liðsíþróttir síðan ég var fimm ára og
handboltinn verið mjög stór hluti af
lífi minni, hvort sem mér líkar betur
eða verr.“
Kim vill nýta tímann sem hann
fær til að sjá heiminn og læra ný
tungumál. Hann segir að tungumál
séu í dag hans helsta ástríða. En veit
hann hvernig hann mun að öðru
leyti verja ævinni og hvað hann
muni taka sér fyrir hendur á nýjum
vettvangi?
„Nei, ég hef ekki hugmynd. Það
er allt opið. Ég ætla að njóta lífsins
og njóta þeirrar tilfinningar að vita
ekki hvar ég verð eftir þrjú ár, fimm
ár eða tíu ár. Ég nýt óöryggisins
sem því fylgir – það er hreinræktuð
ánægja.
Það eina sem ég veit er að ég þarf
að afhenda íbúðina mína í lok júní.
Ég þarf að koma dótinu mínu fyrir
og eftir það veit enginn hvað tekur
við.“
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r46 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
2
9
-7
C
D
C
1
C
2
9
-7
B
A
0
1
C
2
9
-7
A
6
4
1
C
2
9
-7
9
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K