Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 22
Í dag
12.20 Chelsea - Arsenal Sport
14.25 Bayern - Schalke Sport 5
14.50 Hull - Liverpool Sport
15.10 Barcelona - Athletic Sport 2
16.50 Valur - Keflavík Sport 4
17.20 Tottenh. - Middlesb. Sport
15.30 Njarðvík-Skallagr. Njarðvík
18.00 Valur - Keflavík Valshöllin
18.00 Haukar - Quintus Ásvellir
18.00 Stjarnan - Haukar Ásgarður
Á morgun
13.20 Man. City - Swansea Sport
15.50 Leicester - Man. Utd Sport
19.40 Celta - Real Madrid Sport 2
22.30 Upphitun/Super BOWL Sport
23.30 NFL: Super BOWL 51 Sport
16.00 FH - Akureyri Kaplakriki
18.00 Haukar - Quintus Ásvellir
19.15 Snæfell - Grindavík Stykkish.
Hlaup anítu Hápunktur
aníta Hinriksdóttir er nú komin til
landsins eftir góðan árangur á móti
í Düsseldorf á miðvikudag þar
sem hún varð þriðja. aníta mun í
dag heyja harða keppni á rIG við
nokkrar úr hópi fremstu 800 metra
hlaupara heimsins. aníta á bestan
tíma keppenda (2:00,14 mín. frá
Ól í ríó 2016), lítið eitt betri en
Sanne Verstegen frá Hollandi.
Frjálsíþróttakeppni rIG 2017 er í
laugardalshöll frá 13.00 til 15.00.
EyþÓra á íSlanDI í DaG
Meðal keppenda í fimleikakeppni
reykjavíkurleikanna í dag er
gull- (tvíslá) og silfurhafi (fjöl-
þraut karla) frá Ól í ríó 2016,
Oleg Verniaiev frá Úkraínu, og svo
hin íslensk ættaða Eyþóra þórs-
dóttir, sem lenti í 9. sæti í fjölþraut
kvenna í ríó og var seinna kjörin
bjartasta von
Hollendinga
í íþróttum.
Fimleika-
keppnin fer
fram í laugar-
dalshöllinni
og stendur frá
15.00 til
18.00.
Urðarhvarfi 4 / 203 Kópavogi
Sími 557 4848 / www.nitro.is
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ!
Dúndurtilboð á Beta hjólum í febrúar
Þrefaldir
heimsmeistarar
árið 2016
TILBOÐSVERÐ
300RR Racing 2016 - 1.390.000,-
350RR 2016 - 1.390.000,-
480RR 2016 - 1.390.000,-
480RR 2015 - 1.290.000,-
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar sigurmarki sínu gegn Southampton á dögunum. Það var hans sjöunda mark í ensku úrvalsdeildinni í vetur. NORdiCpHOTOS/GeTTy
Fótbolti það er óhætt að segja að
janúarmánuður hafi verið gjöfull
fyrir Gylfa þór Sigurðsson og félaga
hans í Swansea City. þegar árið
2017 gekk í garð voru Svanirnir á
botni ensku úrvalsdeildarinnar
með aðeins 12 stig, fjórum stigum
frá öruggu sæti.
Mánuði síðar er staðan allt önnur.
Swansea hefur unnið þrjá af síðustu
fjórum leikjum sínum og er komið
með 21 stig. Og það sem mikilvæg-
ast er, liðið er komið upp úr fallsæti.
„andrúmsloftið er miklu betra
og það er léttara yfir hópnum,
enda hefur janúar verið fínn. níu
stig gera heilmikið fyrir lið í neðri
hlutanum,“ sagði Gylfi í samtali við
Fréttablaðið í gær.
Ánægður með nýja stjórann
í byrjun árs var paul Clement ráðinn
knattspyrnustjóri Swansea. Clem-
ent hafði getið sér gott orð sem
aðstoðarmaður Carlos ancelotti en
reynsla hans sem aðalþjálfari var
Ábyrgðin heldur mér gangandi
Gylfi Þór Sigurðsson hefur átt stærstan þátt í upprisu Swansea City. Hann kveðst sáttur við sína frammi-
stöðu og líður vel með þá miklu ábyrgð sem er á hans herðum. Það kom ekki til greina að fara frá Swansea.
lítil. Gylfi ber honum vel söguna.
„Hann er góður og veit alveg hvað
hann er að gera. það er ekki hægt að
kvarta neitt yfir því. Síðan hann kom
höfum við spilað mjög vel og sótt
stig,“ sagði Gylfi.
Í frjálsu hlutverki á kantinum
í öllum þremur sigurleikjum Swan-
sea í janúar hefur Gylfi spilað úti á
vinstri kantinum. Framan af tíma-
bili spilaði hann bæði sem fremsti
miðjumaður og framherji. Hann
segir að þetta hringl með stöður hafi
ekki mikil áhrif á sig og þegar honum
sé stillt upp á kantinum hafi hann
mikið frjálsræði.
„Ég er mikið inni á miðjunni og
ekki að hanga úti á kanti. Hann
gefur mér frjálst hlutverk til að fara
inn á miðjuna þegar við erum með
boltann og erum að sækja,“ sagði
Gylfi og bætti því að hann færði sig
vanalega út til vinstri þegar Swansea
er ekki með boltann.
Gylfi hefur skorað sjö mörk og
gefið sjö stoðsendingar og komið
með beinum hætti að helmingi
marka Swansea í úrvalsdeildinni.
Hann kveðst ánægður með frammi-
stöðu sína á tímabilinu.
„Ég er mjög sáttur. það hefur
gengið vel að skora og leggja upp
mörk. Vonandi heldur það áfram og
við bætum aðeins fleiri sigrum við,“
sagði Gylfi sem setur sér alltaf mark-
mið varðandi mörk og stoðsendingar
fyrir hvert tímabil. Hann segist vera á
góðri leið með að ná þeim.
Aldrei minn vilji að fara
Gylfi var orðaður við ýmis félög í
janúarglugganum en hann segir að
það hafi ekki komið til greina að fara
frá Swansea.
„það var einhver áhugi en ég ætl-
aði ekki að skipta um lið. Mig langar
að vera hérna áfram, snúa blaðinu
við og halda okkur í deildinni. það
var aldrei minn vilji að fara neitt,“
sagði Gylfi.
Sú saga flaug nokkuð hátt að
Swansea hefði hafnað 30 milljóna
punda tilboði frá kínversku liði í
Gylfa í janúarglugganum.
„Ég heyrði ekkert af neinu til-
boði. Ég veit ekkert hvort það er
satt. En það var einhver áhugi frá
asíu,“ sagði Gylfi.
landsliðsmaðurinn hefur verið
besti leikmaður Swansea á tíma-
bilinu og er án efa mikilvægasti
leikmaður velska liðsins. Gylfi er
meðvitaður um ábyrgðina sem er
á hans herðum og segist þrífast á
henni.
„Mér finnst það fínt. Ég veit að
ég þarf að standa mig vel í hverjum
einasta leik og það er undir mér, og
nokkrum öðrum, komið að skora
og búa til mörk. þetta heldur mér
gangandi,“ sagði Gylfi.
yndisleg stund á Anfield
Swansea ræðst ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur á morgun en
þá sækir liðið Manchester City
heim. Gylfi hefur á ferli sínum í
úrvalsdeildinni skorað á völlum
eins og Old trafford og anfield.
Hann skoraði sigurmark Swansea
gegn liverpool á anfield fyrir
tveimur vikum og segir það hafa
verið draumi líkast, enda stuðnings-
maður Man chester united frá æsku.
„það var frábært og eitthvað sem
mann dreymdi um þegar maður var
lítill. þetta var yndisleg stund,“ sagði
Gylfi þór Sigurðsson að lokum.
ingvithor@365.is
4 . F e b r ú a r 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r22 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
Haukar - Þór Ak. 79-72
Stigahæstir: Sherrod Nigel Wright 42 (12
frák.), Hjálmar Stefánsson 12, Haukur
Óskarsson 10, Emil Barja 7 (9 frák., 6 stoðs.)
- George Beamon 22, Darrel Keith Lewis 14,
Ragnar Helgi Friðriksson 10, Tryggvi Snær
Hlinason 9 (14 frák., 4 varin).
Þór Þorl. - KR 91-95
Stigahæstir: Tobin Carberry 23 (10. frák., 7
stoðs.), Maciej Baginski 19, Halldór Garðar
Hermannsson 14 - Brynjar Þór Björnsson
21, Jón Arnór Stefánsson 21 (6 stoðs.), Pavel
Ermolinskij 18 (10. frák., 6 stoðs.), Philip
Alawoya 14 (12 frák.). KR aftur á toppinn.
Nýjast
domino’s-deild karla
Valur - Grótta 22-26
Markahæstar: Morgan Marie Þorkelsdóttir
6, Kristín Guðmundsdóttir 6, Diana Sat-
kauskaite 6 - Unnur Ómarsdóttir 8, Anna
Úrsúla Guðmundsdóttir 6, Þórey Anna Ás-
geirsdóttir 4, Emma Havin Sardarsdóttir 4.
ÍBV - Fram 32-26
Markahæstar: Ester Óskarsdóttir 11, Greta
Kavaliuskaite 8/1, Sandra Dís Sigurðardóttir
6, Telma Silva Amado 3, Karólína Bæhrenz
Lárudóttir 3 - Steinunn Björnsdóttir 5,
Ragnheiður Júlíusdóttir 5 , Fyrsta tap Fram-
liðsins á tímabilinu eftir 14 taplausa leiki.
Fylkir - Stjarnan 24-34
Markahæstar: Thea Imani Sturludóttir 9 -
Helena Rut Örvarsdóttir 9.
Olís-deild kvenna
sport
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-2
8
E
C
1
C
2
9
-2
7
B
0
1
C
2
9
-2
6
7
4
1
C
2
9
-2
5
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K