Fréttablaðið - 04.02.2017, Page 34
Bragi Valdimar Skúlason er ein aðalsprautan í Baggalút og Memfismafíunni. Hann er einn eigenda auglýsingastofunnar Brandenburg,
hefur skrifað barnabækur og stýrt
sjónvarpsþáttum.
Sameiginlegur þráður í gegnum
öll hans störf er íslenskt mál sem
hann hefur gaman af að leika
sér með. „Ég er að leika mér með
íslensku allan daginn og finnst ég
heppinn,“ segir Bragi.
„Ég dróst inn í auglýsingabrans
ann fyrir einhverja tilviljun fyrir um
áratug. Ég hefði aldrei getað ímynd
að mér hvað þetta er skemmtilegur
og skapandi iðnaður. Auglýsinga
iðnaðurinn er á háu plani og
metnaðurinn er mikill. Þessi vinna
hentar mér vel, ég hef gaman af því
að vinna með hugmyndaríku fólki
og engir tveir vinnudagar eru eins,“
segir Bragi.
Bragi og Brynja Þorgeirsdóttir
hafa fengið mikið lof fyrir þátta
raðir sínar Orðbragð á RÚV þar
sem meginmarkmiðið er að kveikja
áhuga Íslendinga á tungumálinu.
Nokkur stór verkefni Brandenburg
hafa einnig þetta sama markmið.
Bragi vann að verkefni fyrir Nova,
Tölum saman, sem hvetur fólk til að
bæta við orðaforðann. Hugmyndin
kviknaði að sögn Braga út frá öllum
þeim aragrúa orða sem Íslendingar
eiga yfir ýmiskonar tjáningu og
samskipti á íslensku
„Ég er svo illa haldinn af orða
blæti að ég fór í að finna öll orðin
sem eru til yfir það að tala. Yfir
það hvernig við tjáum okkur. Þau
eru fjölmörg,“ segir hann og hefur
upptalningu. „Spjalla, fjasa, masa,
blaðra, bulla. Það er mikill fjár
sjóður í samheitaorðabókinni og
eftir grams í orðabókum töluðum
við svo við Arnar og Helga í hljóm
sveitinni Úlfur Úlfur sem lögðu
grunninn að því að nýta þessi fjöl
mörgu ólíku orð og semja og útfæra
lag. Emm sjé Gauti flutti svo verkið
í auglýsingu sem Magnús Leifsson
leikstýrði,“ segir Bragi.
Sms og skinnhandrit
Herferðin Tölum saman beinist að
yngra fólki, en talar eldra fólk endi
lega betri íslensku?
„Nei, alls ekki, það talar ekkert
endilega betri íslensku. Tungumálið
er alltaf að þróast, ég held að það
sem háir okkur mest er að orðaforð
inn fer minnkandi. Orðafátækt er
varasöm. Við eigum svo mörg falleg
orð sem við notum ekki,“ segir Bragi
og segir yngra fólk jafnvel líklegra til
að nota ný orð og skapandi leiðir til
að nota tungumálið.
Á það þá líka við um það hvernig
það notar sms og styttir mál sitt í
spjalli á Snapchat eða Facebook?
„Já. Þessar styttingar eða notkun
íslenskunnar miðast við plássið,
tímann. Þegar þú flettir skinnhand
ritum þá sérðu svipaðan ritstíl. Í
gömlu handritunum er mikið um
styttingar og skammstafanir, enda
skinnin takmörkuð auðlind. Það
var ekki alltaf bara hægt að slátra
öðrum kálfi!“
Letiframburður í höfuðborginni
Bragi er einnig stoltur af öðru
verkefni sem
Orðafátækt varasöm
Orðafátækt er varasöm, segir Bragi Valdimar Skúlason sem vonar að færeyska verði þjóð-
tungan deyi íslenskan út. Hann segir leitt að mismunandi framburður eftir landshlutum
heyrist lítið lengur en á móti komi að letiframburðurinn sé orðinn áberandi í borginni.
Orðskrúð eða fá-
breytni, hvOrt tveggja
getur verið vOnt. Það
er hugurinn að baki
sem skiptir máli
— ætli Það sé ekki fal-
legasti framburður-
inn, Þegar hugur fylgir
máli.
Braga leiðast ofnotuð orð og klisjur. „Svo sem orðið „frábært, sem er sennilega minn eini náttúrulegi óvinur. Ég þoli það ekki.“ FrÉttaBLaðið/Ernir
TÖLUM SAMAN
Þegar flett er upp á sögninni að blaðra
í samheitaorðabók koma þessi orð upp:
bu
lla
drabba fja
sa
flaprafleipra gapa
gaspra
geipa
gjamma
gjálfra
glamra
kjafta
malamalda
prata
ra
us
a
rugla
skvaldra
skvola
slafra
slagsa
*slufra
sl
úð
ra
snakka tala
vaða
gífra
pípa
rövla
vaða
elginn
þenja sig
þv
að
ra
þvogla
þvolgra
þvæla
drafadraflaþruglaþvaglaþvætta
stofan hans tók þátt í nýverið,
tengdu landsleik í lestri sem nú
stendur yfir, Allir lesa. „Við erum
mjög stolt af samstarfinu okkar við
Ævar vísindamann. Við hönnuðum
veggspjöldin fyrir lestrarátakið og
viljum þannig leggja okkar af mörk
um til að fá alla krakka til þess að
taka þátt í átakinu,“ segir Bragi.
„Sjálfur á ég þrjár stelpur. Sú
elsta les oft og mikið og sú í miðið
er á fullu í að læra að lesa núna.
Það er ótrúlega gaman að fylgjast
með og taka þátt í þessu ferli, sem
lestrarnámið er. Sjálfur var ég síles
andi sem krakki, en les alls ekki
nógu mikið í dag. Vonandi næ ég
mér aftur á strik síðar, ég á í það
minnsta nóg eftir. En það er algert
lífsspursmál fyrir tungumálið okkar
að halda lestri að börnum. Þar eru
orðin, hugsunin og samhengið.“
Hvað er falleg íslenska? Hvar á
landinu finnst Braga fallegasti fram
burðurinn?
„Það er leitt að mismunandi
framburður eftir landshlutum
heyrist lítið lengur. En á móti kemur
kannski letiframburðurinn, sem er
orðinn ansi áberandi, sérstaklega í
höfuðborginni,“ segir Bragi og segist
lítið hrifinn af því að fólk vandi sig
ekki við að tala skýrt. „Við verðum
samt að muna að það er innihaldið
sem skiptir máli. Hvernig við tjáum
okkur við fólkið í kringum
okkur. Hvaða orð við veljum.
Við megum hugsa meira um
það,“ segir Bragi. „Orðskrúð eða
fábreytni, hvort tveggja getur
verið vont. Það er hugurinn að
baki sem skiptir máli – ætli það
sé ekki fallegasti framburður
inn, þegar hugur fylgir máli.“
Þörf á mikilli fjárfestingu
Hann segir að ef Íslendingar
vilji bjarga íslenskunni verði
að umbera breytingar, en um
leið að fjárfesta í að halda henni
við. „Ég held að við verðum að
sætta okkur við þróun málsins
og hvetja til skapandi notkunar.
Varast klisjur og gæta orðaforð
ans. Það er hins vegar tæknin sem
gæti gert út af við íslenskuna. Það
þarf mikla fjárfestingu í máltækni,
til að gæta íslenskunnar þegar
kemur að snjalltækjum og hvers
konar talandi tækjum og tólum,“
segir hann. „Það þarf hreinlega að
ausa fjármagni í þetta verkefni. Og
þar þurfa allir að koma að borðinu,
ríki og fyrirtæki. Við höfum ekki
efni á neinni nísku þar. Upp með
budduna!“
En segjum sem svo að íslenskan
deyi út, hvaða tungumál kýs hann
að verði talað hér? „Úff, ég get nú
varla hugsað þá hugsun til enda. En
ætli ég myndi ekki velja færeysku!
Ég myndi tvímælalaust kjósa að það
yrði þá þjóðtungan.“
Skyldi hann vera mikið í að leið
rétta fólk?
„Nei, ég er nú frekar umburðar
lyndur, í það minnsta á yfirborð
inu. Ég set í mesta lagi upp mjög
áberandi vandlætingarsvip í bland
við yfirlætislega vorkunn.“
Orðið frábært er óvinur
En hvað með fegurð orða, eru sum
orð fallegri en önnur?
„Mér þykir nú ósköp vænt um
öll orð. Orð eins og „pungvörtu“
og „tussusnúð“ myndi ég senni
lega ekki nota fyrir framan móður
mína, en annars er ég almennt
mikill orðavinur og orðverndunar
sinni. Hins vegar leiðast mér klisjur
og ofnotuð orð, svo sem orðið „frá
bært“, sem er sennilega minn eini
náttúrulegi óvinur. Ég þoli það ekki.
Það er bannað að nota það orð hér
á auglýsingastofunni,“ segir hann
ákveðinn en dregur svo í land. „Ég
hef reyndar tapað nokkrum orr
ustum fyrir einhverjum skrambans
tilboðsheilsíðum — en stríðinu er
ekki lokið,“ segir hann og grettir sig.
kristjanabjorg@frettabladid.is
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r34 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-4
6
8
C
1
C
2
9
-4
5
5
0
1
C
2
9
-4
4
1
4
1
C
2
9
-4
2
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K