Fréttablaðið - 04.02.2017, Qupperneq 38
Pawel er að koma sér fyrir í nýrri skrifstofu í Austurstræti, reyndar er það gamla skrifstofan hans Össurar Skarphéð-inssonar. Hann hefur
rutt út hillum og veggirnir eru mis-
litir. Flúrljós í loftinu og grænn sófi
í anda níunda áratugar. „Þessi skrif-
stofa minnir mig á herbergið sem ég
var í á námsárunum í Þýskalandi,“
segir Pawel léttur í bragði. Hann
segir móður sína boðna og búna til
að gera skrifstofuna hlýlegri. „Ég ætla
að fá aðstoð við þetta verkefni. Festa
upp myndir, ég ætla að hafa mynd
af Berlínarmúrnum og svona,“ segir
Pawel sem er umhugað um frelsi
enda alinn upp fyrstu árin í Póllandi
undir stjórn kommúnismans.
Pawel kom til landsins ásamt fjöl-
skyldu sinni átta ára gamall. Hann
ólst upp í Vesturbænum og síðar í
Seljahverfi.
Hann er nýliði á Alþingi fyrir Við-
reisn og fellur þingmannsstarfið vel.
„Mér finnst ég vera á réttum stað,“
segir Pawel og segir Alþingi góðan
og vinalegan vinnustað.
Hverjir eru sessunautar hans á
Alþingi og hefur hann eignast nýja
vini? „Mér semur almennt mjög
vel við mitt samstarfsfólk, hvort úr
verður vinátta, það kemur í ljós. Ég
sit við hliðina á góðu fólki, Kolbeini
Óttarssyni Proppé og Valgerði Gunn-
arsdóttur.“
Málefni innflytjenda eru honum
hugleikin, frelsi í viðskiptum og
menningu og skipulagsmál. Hann
segist sjá fyrir sér snarpan þingferil.
„Ég vil hafa áhrif á samfélagið til
lengri tíma með þörfum breyting-
um. Ég hef ákveðna kjarnahugsjón
sem byggir á frjálslyndi á nokkrum
sviðum. Efst í huga núna er að byggja
upp innflytjendavænt samfélag til
lengri tíma. Við höfum ef til vill ein-
hverjar hugmyndir um hversu inn-
flytjendavænt samfélag við erum. En
það eru til mælikvarðar sem mæla
þetta. Við skorum ekki mjög hátt á
þeim. Ég vil að eftir áratug mælumst
við mun hærri og er með ákveðinn
tékklista í því samhengi,“ segir Pawel
og bendir á að með almennt ódýrari
samgöngum um allan heim ætti að
vera auðveldara fyrir fólk að flytja á
milli landa. „Það er auðveldara fyrir
fólk innan Evrópu. En það er á sama
tíma miklu erfiðara fyrir fólk utan
EES,“ segir hann og bendir á að hans
eigin fjölskylda hefði átt mun erfið-
ara með að flytja til landsins í dag en
þegar þau gerðu það árið 1988. Þar
finnst honum skjóta skökku við.
Pawel er tiltölulega nýkominn úr
heimsókn frá Póllandi. Þangað fer
hann reglulega til að halda sterkum
tengslum við stórfjölskyldu sína og
ræturnar. „Ég fór með yngri syni
mínum og heimsótti systur mína
sem var að eignast barn og ömmu
sem er nú orðin 83 ára gömul. Við
skemmtum okkur vel, fórum í stór-
skemmtilegt vísindasafn og lékum
okkur,“ segir Pawel sem segir ferða-
lög til upprunalandsins auðveldari
en áður.
„Nú er orðið ódýrara og auðveld-
ara að ferðast til Póllands en þegar
ég var yngri. Ég fluttist þangað fyrir
fimm árum um nokkurra mánaða
skeið. Þá vildi ég gefa eldri syni
mínum færi á því að fara í pólskan
leikskóla um tíma, til að ná hinu
móðurmálinu betur.“
Pawel hefur líka áhuga á skipu-
lagsmálum í borginni og er ánægð-
ur með að í stjórnarsáttmálanum sé
lagt til að skoðaður verði möguleiki á
samstarfi við sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu um „Borgarlínu“.
„Borgarmál eru mér mjög hugleikin.
Maður tekur mikið eftir því hvað
þingið er miðað við hugsunarhátt
landsbyggðarinnar. Það þykir ekk-
ert tiltökumál að ræða legu vega á
landsbyggðinni en um leið og talið
berst að borginni þá þykir það ekki
viðeigandi. Það get ég ekki skilið því
skipulagsmál í borginni skipta alla
landsmenn máli líka.
Ég held að borgarlína yrði til mik-
illa bóta í Reykjavík sem er tiltölu-
lega stór borg.
Það sem ég er ánægðastur með
er nálgunin á innflytjendamálin.
Við viljum taka á móti fleiri flótta-
mönnum og lofum því að fólki utan
EES verði gert auðveldara að koma
til landsins. Þessar aðgerðir aðgreina
okkur frá því sem er að gerast víða
um heim.“
Já, tölum aðeins um Trump?
„Bandaríkin eru á margan hátt
algjörlega frábært ríki og að alast
upp í ríki handan járntjaldsins hafði
þau áhrif að maður dáðist að gildum
Bandaríkjanna. Þau voru eins og sið-
ferðilegur viti í heiminum, hvað sem
verður nú sagt um einstaka ákvarð-
anir í ýmsum málum. Staðreyndin
er sú að frábærar hugmyndir hafa
fæðst og þroskast í Bandaríkjunum
sem skipta okkur máli hér á Norður-
löndum til dæmis. Umhverfisvernd,
réttindi samkynhneigðra og breyt-
ingar á lögum um væg fíknefni.
Stundum láta Evrópubúar eins og
þetta séu allt sænskar hugmyndir.
Þess vegna er það mjög leiðinlegt
að Bandaríkin taki þessa stefnu sem
manni hugnast svo illa. Það skilur
eftir tóm að geta ekki lengur treyst á
þessi gildi í Bandaríkjunum í megin-
dráttum. Að efast.
Alverst af vondum ákvörðunum
er þetta fortakslausa ferðabann.
Þetta sló mig mest. Maður er því
miður vanur því að Repúblikanafor-
setar gefi út tilskipanir um til dæmis
fóstur eyðingar, það er dæmigerð
íhaldsvitleysa,“ segir Pawel sem
segir mikilvægt að bregðast við með
því að gera vel við flóttamenn hér
á landi. „Það er það sem við getum
gert. Við getum vandað okkur og
tekið á móti fleira flóttafólki.“
Hvenær fór hann að skipta sér
af stjórnmálum? „Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á pólitík. Ég skráði
mig þegar ég var nítján ára gamall
í Sjálfstæðisflokkinn. Einfaldlega
vegna þess að það var sá flokkur
sem átti hvað best við mínar hug-
sjónir. Það var ekki um marga flokka
á þeim væng stjórnmálanna að velja.
Þegar Viðreisn er stofnuð þá var þar
kominn flokkur sem stóð mér mun
nær að því leyti að hann er Evr-
ópusinnaður og tilbúinn að skoða
breytingar í landbúnaði og sjávarút-
vegi. Það er mikill hugmyndafræði-
legur munur á flokkunum tveimur,
Viðreisn og Sjálfstæðisflokki og því
eiginlega ekki hægt að segja að ég
sé í klofningsframboði. Flokkurinn
er stofnaður utan um hugsjónir en
ekki persónulegan metnað einhvers
sem tapaði í prófkjöri. Sambærilegir
flokkar eru víða í Evrópu og hann
gæti vel verið starfandi um ókomna
tíð.“
Hvaða áhugamál hefur hann?
„Mér finnst gott að fara út að hlaupa,
hef hlaupið maraþon í fjögur skipti.
Ég hef líka áhuga á borgarskipulagi,
finnst gaman að velta því fyrir mér.
Þá vita kannski fáir aðrir en þeir
sem standa mér næst og eru mikið
í kringum mig af áhuga mínum á
rúmenskri popptónlist. Ég hef mjög
gaman af henni. Rúmensk tónlist
er mjög stór iðnaður. Ein stærsta
stjarnan, Inna, nær svipaðri You-
Tube spilun og Beyoncé,“ nefnir
hann sem dæmi. „Mér finnst gott
að slaka á með því að hlusta á þessa
tónlist, stundum gleymi ég að stilla
Spotify á private og þá verður það
vandræðalegt.“
Hvaða kvikmynd er í uppáhaldi?
„2001 – Space Odyssey.“
Hvaða borg/land langar þig helst
að sækja heim? „Núna er það Suður-
Balkanskagi, til dæmis Serbía og
Króatía.“
Hvaða matur er í uppáhaldi? „Pitsa
– af því að frumleiki er ofmetinn.“
Alinn upp í
austantjaldsríki
Pawel Bartoszek er fæddur í Póllandi og flutti átta ára gamall til
Íslands ásamt foreldrum sínum. Honum er umhugað að gera fólki
auðveldara að flytjast hingað og starfa. Hann vill innflytjenda-
vænna samfélag. Frelsishugsjónin er sterk í Pawel og hann er
mótaður af barnæskunni í Póllandi undir stjórn kommúnismans.
Þekktu þingmanninn Pawel Bartoszek
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Í göngu með mömmu og pabba í Póllandi
snemma á 9. áratugnum.
Fyrsta heimilið á Íslandi.Á Ólympíuleikum í stærðfræði í Suður-
Kóreu árið 2000.
Með foreldrum sínum, Önnu og sonum sínum tveimur.
Fæddur: 25. september 1980 í
Poznan, Póllandi
Maki: Anna Hera Björnsdóttir,
danskennari og sérfræðingur
hjá Landsbankanum
Synir: Ágúst (2008), Ólafur Jan
(2012)
Foreldrar: Stanislaw Jan Bart
oszek (fæddur 20. júní 1956),
sérfræðingur hjá Valitor, og
Emilia Mlynska (fædd 7. ágúst
1957), náms og starfsráðgjafi
hjá Mími og kennsluráðgjafi hjá
grunnskólum Reykjavíkur
Menntun Stúdentspróf MR
2000. B.Sc.próf í stærðfræði HÍ
2003. Meistarapróf í stærðfræði
HÍ 2005
Fyrri störf Pistlahöfundur á
Deiglan.is frá 2002, pistla
höfundur á Fréttablaðinu
2010–2016. Aðjúnkt við HR
2006–2010. Fulltrúi í stjórn
lagaráði, formaður nefndar C
2011. Verkefnastjóri hjá Qlik
Datamarket 2012–2016
Í stjórn Sambands ungra sjálf
stæðismanna 2007–2009
Áhugamál: Hlaup, rúmensk
popptónlist og borgarskipulag
Pawel hefur gaman af því að hlusta á rúmenska tónlist og hefur líka mikinn áhuga á borgarskipulagi. Fréttablaðið/anton brinK
Rúmensk tónlist eR
mjög stóR iðnaðuR.
ein stæRsta stjaRnan,
inna, næR sviPaðRi
YoutuBe sPilun og
BeYoncé
4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r38 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-6
E
0
C
1
C
2
9
-6
C
D
0
1
C
2
9
-6
B
9
4
1
C
2
9
-6
A
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K