Fréttablaðið - 04.02.2017, Síða 50
| AtvinnA | 4. febrúar 2017 LAUGARDAGUR4
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Skrifstofustjóri
Starfssvið:
• Daglegur rekstur og stjórnun skrifstofu
• Yfirumsjón og ábyrgð á bókhaldi og
uppgjörum
• Gerð rekstraráætlunar og eftirfylgni
• Þátttaka í markmiðssetningu
• Yfirumsjón og vinnsla launa
• Umsjón með tækni- og tölvubúnaði
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærileg
menntun sem nýtist í starfi
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Færni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og
jákvætt viðmót
• Reynsla af rekstri, stjórnun og áætlanagerð
• Reynsla af bókhaldi, uppgjörum og kjarasamningum
• Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu
og rituðu máli
Upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Fatlaðir eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar nk.
Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir að ráða skrifstofustjóra til starfa. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri. Leitað er að
metnaðarfullum einstaklingi til að sinna krefjandi verkefnum á góðum vinnustað. Um er að ræða 80% starf.
Sjálfsbjargarheimilið er hjúkrunar- og endurhæfingarstofnun ætluð fötluðu fólki. Starfsemin fer fram í
Sjálfsbjargarhúsinu við Hátún 12 í Reykjavík. Starfsmenn eru um 75 talsins. Sjá nánar á sbh.is
Sjálfsbjargarheimilið á því láni að fagna að hafa á að skipa góðum starfsmannahópi. Lögð er áhersla á að koma
til móts við starfsmenn eins og hægt er, hvort sem það varðar öflun viðbótarmenntunar eða aðstæður í einkalífi
svo dæmi séu tekin. Við höfum verið svo lánsöm að hljóta útnefninguna fyrirmyndarstofnun fjórum sinnum og
árið 2014 var Sjálfsbjargarheimilið Stofnun ársins í vali SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Sjóðsstjóri
Starfssvið
• Ábyrgð á stýringu skuldabréfasafns sjóðsins
• Greining markaða og fjárfestingarkosta
• Arðsemis- og áhættumat
• Uppbygging og utanumhald verðbréfasafna
• Fjárfestingar og eftirfylgni þeirra
• Upplýsingagjöf, greining og skýrslugjöf
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. á sviði viðskipta-
fræði, verkfræði og hagfræði eða sambærileg menntun
• Haldgóð reynsla af störfum á fjármálamarkaði
a.m.k. 3ja ára reynsla
• Próf í verðbréfamiðlun er kostur
• Reynsla af skuldabréfastýringu
• Reynsla af gerð verðmatslíkana er kostur
• Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Upplýsingar veitir:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar. nk.
Íbúðalánasjóður er með efnahagsreikning sem nemur ríflega 800 milljörðum. Afkoma rekstrar Íbúðalánasjóðs ræðst
annars vegar af rekstri útlánasafnsins og fjárfestingu lausafjár utan lánasafns hins vegar. Íbúðalánasjóður ásamt
viðskiptabönkunum þremur fellur undir skilgreiningu FME sem kerfisleg, mikilvæg stofnun og þarf að uppfylla sömu
kröfur og önnur fjármálafyrirtæki gagnvart FME hvað varðar lánastarfsemi, eignastýringu, áhættustýringu, innri
endurskoðun og regluvörslu.
Íbúðalánasjóður óskar eftir að ráða sjóðsstjóra til að stýra skuldabréfasafni sjóðsins. Leitað er að öflugum einstaklingi
sem er með reynslu af störfum í eignastýringu og er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni í breytilegu umhverfi.
Íbúðalánasjóður starfar skv. lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál og ber ábyrgð á framkvæmd húsnæðisstefnu
stjórnvalda. Hlutverk Íbúðalánasjóðs er að þjóna íslensku samfélagi með veitingu stofnframlaga, lána og greiningum
á húsnæðismarkaði til þess að stuðla að stöðugleika og auka möguleika almennings á að eignast eða leigja
húsnæði á viðráðanlegum kjörum.
Starfsmannastefna Íbúðalánasjóðs tekur mið af jafnréttisáætlun.
Um fullt starf er að ræða. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-5
0
6
C
1
C
2
9
-4
F
3
0
1
C
2
9
-4
D
F
4
1
C
2
9
-4
C
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K