Fréttablaðið - 04.02.2017, Síða 52
| AtvinnA | 4. febrúar 2017 LAUGARDAGUR6
RÁÐGJAFI
Í STRAUMLÍNUSTJÓRNUN
Vegna aukinna verkefna óskar Expectus eftir að fá til starfa ráðgjafa í straumlínustjórnun (Lean management).
Hjá Expectus starfar öflugur hópur reynslumikilla ráðgjafa sem hafa langa og fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu og hafa
sem ráðgjafar tileinkað sér framsæknustu aðferðir okkar tíma. Verkefni ráðgjafa í straumlínustjórnun fela í sér að greina
með starfsfólki fyrirtækja og stofnana, aðgerðir og ferli út frá aðferðafræði Lean og aðstoða við að innleiða umbætur.
Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar nk.
RÁÐUM EHF • Vegmúla 2, 108 Reykjavík • Sími 519 6770 • radum@radum.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Agla Sigr. Björnsdóttir, agla@radum.is.
Umsækjendur eru vinsam legast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Ráðum www.radum.is.
Expectus er ráðgjafafyrirtæki sem
aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að
nýta þekkingu og upplýsingatækni til
að auka hæfni, móta stefnu og koma
áherslum í framkvæmd og skila þannig
mælanlegum árangri.
Gildi Expectus eru kraftur, heiðarleiki
og samvinna.
Expectus var valið fyrirtæki ársins 2016
í hópi millistórra fyrirtækja hjá VR og
vottað sem Framúrskarandi fyrirtæki
2016 af Creditinfo. Starfsmenn
eru stoltir af þeim árangri sem er í
samræmi við þá framtíðarsýn sem
Expectus setti sér í upphafi, að vera
fyrirmynd annarra þekkingarfyrirtækja.
www.expectus.is.
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólamenntun á framhaldsstigi
• Stjórnunarreynsla
• Afburða greiningarhæfni
• Góð þekking á aðferðafræði straumlínustjórnunar og reynsla af árangursríkri innleiðingu hennar
• Drifkraftur og einlægur áhugi á umbótum
• Sannfæring, einstök samskiptahæfni og lausnamiðuð hugsun
• Metnaður, heiðarleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum samhliða teymisvinnu
• Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli
Sérfræðingar hjá Heilbrigðiseftirliti
Innan Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis eru Garðabær,
Hafnarfjörður og Kópavogur. Íbúafjöldi á
þjónustusvæðinu er um 80.000.
Heilbrigðiseftirlitið starfar samkvæmt
lögum um matvæli, hollustuhætti og
mengunarvarnir. Það hefur meðal annars
eftirlit með framleiðslu, dreifingu og sölu
matvæla, smásölu tóbaks, sinnir almennu
hollustuhátta- og umhverfiseftirliti og
fylgist með framkvæmd mengunarvarna.
Yfirstjórn stofnunarinnar er í höndum
heilbrigðisnefndar sem valin er af
eigendum hennar auk eins fulltrúa
tilnefndum af Samtökum atvinnulífsins.
Heilbrigðisnefnd leggur áherslu á
árangur og gæði í vinnubrögðum.
Samstarf starfsmanna er þverfaglegt og
liðsheildarhugsun höfð að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um eftirlitið má finna á
síðunni www.heilbrigdiseftirlit.is.
Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Bylgja Björk Pálsdóttir (bylgja@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2017. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf.
Intellecta Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Helstu verkefni/kröfur vegna MH
• Eftirlit með framkvæmd reglugerða
• Eftirlitsferðir, sýnatökur og skýrslugerðir
• Móttaka ábendinga og kvartana og úrvinnsla þeirra
• Ráðgjöf og aðstoð innan stofnunarinnar
Helstu verkefni/kröfur vegna UM
• Almennt eftirlit með dýrahaldi
• Annast búnað, tæki og bifreiðar
• Aðstoð við mengunarvarnar- og
hollustuverndareftirlit
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis óskar eftir að ráða sérfræðinga í tvö störf.
Megintilgangur starfanna er að stuðla að heilnæmum og öruggum lífsskilyrðum fyrir íbúa
sem og að vernda þau gildi sem felast í heilnæmi matvæla og ómenguðu umhverfi.
Annars vegar er staða sérfræðings í verkefnum er varða matvæli og hollustuhætti (MH).
Áhersla í starfinu er að tryggja gæði og öryggi neysluvatns og matvæla ásamt góðum
hollustuháttum.
Hins vegar er staða sérfræðings í umhverfismálum og mengunarvörnum (UM). Áhersla í
starfinu er að tryggja öryggi og lágmarka mengun á eftirlitsstöðum og í nærumhverfi þeirra.
• Framhaldsmenntun í iðnfræði, vélfræði eða önnur
sambærileg menntun er kostur
• Starfsreynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
• Hæfni til að skrá og varðveita gögn
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
• Gild ökuréttindi eru nauðsynleg
• Vilji til öflunar réttinda sem heilbrigðisfulltrúi
• Háskólanám í greinum sem tengjast matvælaöryggi
og heilbrigðiseftirliti auk sérnáms er æskilegt
• Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
• Samstarfshæfni
• Gild ökuréttindi eru nauðsynleg
• Réttindi sem heilbrigðisfulltrúi eru æskileg
0
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
2
9
-6
4
2
C
1
C
2
9
-6
2
F
0
1
C
2
9
-6
1
B
4
1
C
2
9
-6
0
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K