Fréttablaðið - 04.02.2017, Side 110

Fréttablaðið - 04.02.2017, Side 110
Ilmur Stefánsdóttir myndlist-arkona opnaði í gær einka-sýninguna Panik í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Ilmur sem hefur á undanförnum árum unnið jöfnum höndum við myndlist og leikmyndahönnun opnaði sýninguna með gjörningi sem hún segir að sé mjög í anda þeirrar innsetningar sem hún er með á sýningunni. Í framhaldinu var hún svo með atriði ásamt Cyber dúettnum sem tók svo við keflinu og rappaði fram eftir kvöldi. Nærir hvort annað Ilmur lærði myndlist hér heima og fór svo í framhaldsnám í London. „En svo æxlaðist það einhvern veg- inn þannig að myndlistin mín er svo leikbær að hún hreinlega þráði að komast í leikhús og það gerðist mjög fljótt. Skúlptúrarnir mínir og verkin eru tengd gjörðum og gjörn- ingum og fólki og það leiddi mig inn í leikhúsið. Þetta byrjaði með leik- sýningu sem hét CommonNonsense þar sem við notuðum skúlptúrana mína til þess að búa til spuna- sýningu. Þar snerist allt um þessa skrítnu stökkbreyttu hluti sem ég hafði búið til og þá bara varð ekki aftur snúið. Í framhaldinu fór ég að vinna með fleira fólki og leikhúsið tók í sífellu stærri hluta af því sem ég geri.“ Ilmur segir að þrátt fyrir þessa yfirtöku leikhússins hafi hún engu að síður náð að halda fótfestu í myndlistinni. „Það er einhvern veginn að næra hvort annað, mynd- listin og leikhúsið, og jafnvel stækka hvort annað. Ég upplifi það þannig sjálf að því meira sem ég er búin að gera í leikhúsinu þá er eins og ég hafi tekið skref í myndlistinni sam- hliða því. Hver og ein leiksýning sem ég geri þroskar mig sem mynd- listarmanneskju. Þessi sýning sem ég er með núna er t.d. ákveðið fram- hald af síðustu myndlistarsýningu en engu að síður gengur hún skrefi lengra. Sýningin er innsetning og sem slík er hún blanda af leikmynd og myndlistarsýningu og svo geng ég líka soldið nærri sjálfri mér.“ Leikhúsið er skóli Ilmur segir að Panik sé þema eða uppspretta sem hana hafi langað til þess að prófa að vinna með sem element. „Út úr því kom þessi þörf fyrir líkamlega hreyfingu í tækjum og tólum. Ég er sem sagt að nota hin og þessi tæki og tól til þess að búa til hreyfingu og út frá því kom ákveðinn taktur og þetta þróaðist þannig að öll vídeóin eru í ákveðn- um takti og þá fór ég að vinna meira með hljóðið. Salka Valsdóttir, sem er í Cyber, gerði hljóðmynd sem er í salnum ásamt vídeóverkunum.“ Aðspurð hvort það sé leikhús- listakonan í henni sem beinir heild- arverkinu á þessa braut þá segist Ilmur ekki geta tekið fyrir það. „Já, nú fæ ég að vera leikarinn,“ segir Ilmur og skellihlær og bætir við: „Já og leikstjórinn og búningahönnuð- urinn, sviðsmyndahöfundurinn og bara allt. Vinnustofan mín er bara búningaslá og tæki af öllu mögulegu tagi og ég er alltaf að nota mig sjálfa við þessa vinnu.“ En skyldi Ilmi ekki finnast erfitt að fá ekki að ráða þá öllu þegar hún er í leikhúsinu? „Nei, það er ekki þannig. Mér líður vel í leikhúsinu vegna þess að mér finnst gaman í samtali. Skólinn í leikhúsinu er sá að heyra og vera heyrður. Þetta samband á milli þess að hafa rödd og hlusta. Það er ákveðin kúnst að taka hvorki of lítið né of mikið pláss í leikhúsinu. Njála er svona dæmi um leik- sýningu þar sem ég var með risa- stór verk inni á sviðinu en það er í samræmi við allt sem er að gerast og í samtali við hitt listafólkið. Þetta finnst mér fela í sér frelsi fremur en skorður. Það er eitthvað sem leik- húsið hefur kennt mér.“ Panik eða hugarró Ilmur segir að kjarni sýningarinnar sé einhvers konar ótti ef talað er um innihaldið. „Mín upplifun er að hreyfingarnar séu eins og ein- hvers konar hugleiðsla. Ég er þann- ig efins um að fólk sem kemur inn í salinn upplifi panik heldur mun fremur hugarró. En það er svolítið eins og að salurinn sé að gefa sig undan öllum þessum hamagangi. Konurnar í þessum vídeóum eru eins og inni í loftinu, veggjunum og loftræstikerfi hússins og út úr þeim vella sölt í miklu magni sem er eins og útfelling frá bæði húsinu og konunum. Ég upplifi þetta eins og margar konur en það sést ekki í andlitið á performerunum heldur eru þetta í raun margir líkamar að vinna.“ En skyldi Ilmur upplifa líf sitt með þessum hætti, svona eins og líf hamstursins á hjólinu? „Já, að sumu leyti verð ég að viðurkenna það. Ég er að vinna með þetta að hlaupa og hætta ekki og hvað það er sem rekur okkur áfram. Af því að ég hef grun um að ég sé ekki ein um þessa tilfinningu fyrir þessum sífelldu hlaupum og þessum ótta. Hvað er það sem við óttumst? Mistök? Ég er líka sjálf dáldið hrædd við að stoppa Ilmur Stefánsdóttir, myndlistarkona og leikmyndahönnuður, opnaði sýninguna Panik í Hafnarhúsi Listasafns Reykja- víkur. Þar tekst Ilmur á við óttann sem rekur okkur áfram í lífinu á sinn einstaka og leikræna hátt í magnaðri innsetningu. Ilmur Stefánsdóttir var hin rólegasta fyrir opnun einkasýningar sinnar Panik í Hafnarhúsinu. FréttabLaðIð/SteFáN karLSSoN Mynd úr einu af vídeóverkum Ilmar á sýningunni. Hreyfing er mikil- vægur þáttur í verkum Ilmar. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Að standa sig ekki? Að bregðast öðrum? Hvað er það? Þetta er sterk tilfinning og ég verð að viðurkenna að ég er sjálf líka dáldið hrædd við að stoppa. En mér fer fram og ég held að þessi sýning sé mögulega þáttur í því. Mér finnst í rauninni athyglisvert hvað það var róandi að gera sýninguna enda var ég gjör- samlega búin eftir alla þessa vinnu á hverjum degi en á einhvern góðan hátt. Kannski er þetta bara lykill- inn? Að hamast bara nógu mikið. Klára þetta. En sjón er sögu ríkari eins og svo oft í myndlistinni.“ VInnuStofan mín eR baRa búnIngaSLá og tækI af öLLu mögu- Legu tagI og ég eR aLLtaf að nota mIg SjáLfa VIð ÞeSSa VInnu. 4 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r66 M e n n i n G ∙ f r É T T a b L a ð i ð menning 0 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 1 2 8 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 2 9 -1 0 3 C 1 C 2 9 -0 F 0 0 1 C 2 9 -0 D C 4 1 C 2 9 -0 C 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 8 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.