Fréttablaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 26
Leyfishafanámskeið fólks- og farmflutninga
Með vísun til laga nr. 73/2001
gengst Samgöngustofa fyrir námskeiði fyrir
fólks- og farmflutninga í Ökuskólanum í Mjódd
6. – 11. mars 2017
Þátttaka tilkynnist fyrir föstudaginn 3. mars
til Ökuskólans í Mjódd í síma 567-0300
Það var uppgangur og myndlistin í hávegum höfð þegar ég tók við árið 2007. Enginn kvart-aði og allir kátir. En þrátt fyrir það var í raun ekki
verið að gera betur við safnið og það
var ekkert í farvatninu,“ segir Halldór
Björn Runólfsson, safnstjóri Lista-
safns Íslands frá árinu 2007, en hann
lætur af störfum um næstu mánaða-
mót. „Það er synd að segja en ári áður
en ég tók við þá kom út mikil skýrsla
um geymslumál opinberra safna og
þar var mikill barlómur. Ráðuneytið
fékk alla til þess að taka sameigin-
lega á þessu máli en þrátt fyrir það
þá gerðist ekkert. Menn bara skelltu
skollaeyrum við þessu og litu á þetta
sem eitthvert lúxusvandamál sem
væri nú ekki ástæða til þess að sinna.
En nú liggja þessi verðmæti þannig
að þau eru einfaldlega í stórhættu og
hafa verið lengi. Eitt fyrsta skipti sem
ég kom í ráðuneytið, eftir að ég varð
safnstjóri, þá nefndi ég þetta og þá var
mér tjáð að við svo búið mætti ekki
standa og menn ætluðu sér að bretta
um ermarnar en það hefur reynst
þrautin þyngri.“
Pólitískt skilningsleysi
Geymslumálum safnsins er þannig
háttað að rýmisverkin eru í geymslu
inni í Laugarnesi en málverkin að
stærstum hluta í kjallara undir skrif-
stofuhúsnæðinu við Laufásveg.
Þar eru vatnslagnarör í lofti og því
þarf ekki meira út af að bera en eitt
sprungið rör til þess að gríðarleg
menningarverðmæti verði fyrir
óbætanlegu tjóni. Halldór Björn
segir að þrátt fyrir það hafi honum í
kjölfar efnahagshrunsins einfaldlega
verið sagt að bíða. „En það sem mér
finnst vandræðalegast í þessu öllu
er þegar maður spyr hvernig eigi að
taka á vanda safnsins, hvort heldur
sem er varðandi geymslumálin eða
sýningarrýmið, þá eru engin svör. Það
er engin sýn til staðar í ráðuneytinu.
Því miður. Þetta held ég að hái stofn-
unum eins og Listasafninu og að þetta
í raun eitri út frá sér á meðal almennra
starfsmanna safnsins. Það er svo erfitt
að hafa enga framtíðarsýn.“
Halldór Björn hefur á orði að
viðhorfið gagnvart Listasafninu í
mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu sé í raun að safnið sé aðeins
þjónustu- og varðveisluaðili en að
stofnun á borð við listasafn geti
ómögulega skilað einhverju til baka
til samfélagsins. „Það er allt lagt upp
úr því að einungis fræðsla og kynning
skili sér til samfélagsins en að fjár-
hagslegur eða stórmenningarlegur
ávinningur geti verið til staðar er ekki
til í þessum kokkabókum stjórnmála
og stjórnsýslu á Íslandi.“
Engin mörk, engin stefna
Þjóðarlistasöfn eru nánast án undan-
tekninga þannig búin að hafa sýning-
arsali þar sem listarfur viðkomandi
þjóðar er til sýnis en slíkt hefur ekki
enn gengið eftir hjá Listasafni Íslands.
Halldór segir að það sé hverri þjóð
mikilvægt að hafa aðgengi að þessum
menningarverðmætum en það hafi
enn ekki heppnast að fá viðurkenn-
ingu á því. „Ég byrjaði að berjast
fyrir þessu fljótlega eftir að ég settist
í stólinn. Þá hitti ég gamlan hauk í
ferðamennskunni, Hörð Erlingsson
menningu landsins í gegnum söfnin
og ég sagðist berjast fyrir þessu ef ég
mögulega gæti.
En svo kom það 2010 þegar farið
var að viðra þessa hugmynd að taka
Þjóðmenningarhúsið undir stóra
sýningu á menningararfinum. Þetta
tók tímana tvenna og sýningin
Sjónarhorn sem var opnuð 2015
var útkoman. Hún er reyndar ekki
bundin við listasöguna heldur snýst
um sjónrænan arf þjóðarinnar. Það
er þarna ákveðið vandamál sem má
rekja aftur til þess að Þjóðminjasafnið
tók að sér að varðveita allt sem er
gamalt, gamlar altaristöflur, líkneski
frá miðöldum og fleira en þegar kom
að Listasafninu var því fengið meira
hlutverk með nítjándu en þó mest
tuttugustu öldinni. Það voru þó aldrei
sett skýr mörk eða stefna sem sannast
svo best á því að Þjóðminjasafnið er
ekki með listfræðing á sínum snærum
og prófílerar sig ekki sem listasafn. En
ég verð að segja það að það var mikið
afrek að koma sýningunni Sjónar-
horni á laggirnar. Í fyrsta skipti tókst
að koma Þjóðminjasafninu, Þjóð-
skjalasafninu, Listasafninu, Árna-
stofnun, Náttúruminjasafninu og
Þjóðarbókhlöðunni til þess að sam-
einast um að skapa þessa sjónrænu
sýningu. Þetta er afrek út af fyrir sig.“
Is this all?
Aðspurður hvernig Halldór Björn
upplifi þessi tíu ár sem hann hefur
starfað sem safnstjóri Listasafns
Íslands þá segir hann að það sé nú
ekki endilega beiskur bikar. „Við
erum búin að gera fullt af hlutum sem
er gaman að hugsa til þegar litið er til
baka. En það setur strik í reikninginn
að húsið hér við Fríkirkjuveg er í raun
löngu sprungið. Það er ekki
nema fjórir til fimm salir og
stundum heyri ég útlendu
gestina spyrja: „Is this all?“
Það stingur og svíður undan
slíku. Það er hörmulegt til
þess að vita þegar safneign-
in er skoðuð að hún er að
nálgast tólf þúsund muni en
aðeins brot af þessu er hægt
að sýna, annað liggur enda-
laust í geymslum.
Ég hef verið að reyna að
berjast. Ég fór þá leið að ég
valdi safn á Norðurlönd-
unum sem fyrirmyndar-
safn sem við ættum að setja
okkur sem viðmið með það
að markmiði að nálgast
í gæðum. Það er ARoS í
Árósum sem er frábært safn
en það þjónustar einmitt svipaðan
mannfjölda og okkur er ætlað að
sinna. Við þjónum hins vegar marg-
falt fleiri ferðamönnum en það er
ekki tekið tillit til þess – því miður.
Nú er svo komið að meirihluti gesta
eru erlendir ferðamenna og á sumrin
er það mikill meirihluti.“
Halldór Björn segir að safnið
hafi lengi notið þess hversu frá-
bæru starfsliði það hefur á að skipa.
„Það er reyndar allt of fámennt og
til að mynda hefur fræðsludeildin
eiginlega legið á einni manneskju í
gegnum tíðina þó svo nú hafi bæst
aðeins í varðandi kynningar og slíkt.
Þetta hefur gengið furðanlega vel en
ég verð að játa að við náum ekki að
sinna fræðsluhlutverki okkar með
viðlíka hætti og gert er í nágranna-
löndum okkar. Langt í frá. Ástandið
er svo jafnvel enn verra þegar kemur
að rannsóknum sem hafa lengi setið
á hakanum. Frá því fyrir minn dag hér
þá höfum við verið að berjast fyrir
rannsóknarstöðu en hún er ekki enn
þá komin. Þetta er ekki gott.“
Öll ljós slökkt
Halldóri Birni er hugleikið það
umhverfi sem menning og listir búa
við innan stjórnsýslunnar. Hann seg-
ist telja að það sé sitthvað til
í þeirri kenningu að samlíf
mennta- og menningar-
mála í einu ráðuneyti standi
menningu og listum fyrir
þrifum. „Það er vandræða-
legt að segja það en það eru
sífellt fleiri sem hafa nefnt
það við mig að okkur vantar
bakland og ráðuneytið vant-
ar í raun líka bakland. Það
er eins og samfélagið bakki
ekki ráðuneytið upp með
sama hætti og t.d. bændur
og sjávarútvegurinn er á bak
við sitt ráðuneyti. Við eigum
engan hauk í horni í stjórn-
sýslunni. Við Íslendingar
erum soldið fyrir að göslast
bara áfram í þessum efnum
og mér finnst stundum eins
og það sé örlítill Trump í okkur þar
sem við metum ekki menntun og
færni að verðleikum. „I love the un-
educated!“ sagði Trump og við eigum
þetta soldið til,“ segir Halldór Björn
og hlær við tilhugsunina.
„Það örlar enn á fordómum gagn-
vart menntun í listum og listfræðum.
Sumir virðast enn halda að þetta snú-
ist um fínar frúr og sjá fyrir sér Gissur
gullrass og frú Rassmínu að reyna að
draga hann á Wagner-sýningar en
hann vill bara fara að spila við strák-
ana í bakherberginu. Þessi ranghug-
mynd er föst í okkur sem er synd og
Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, lætur af störfum um næstu mánaðamót eftir farsælan áratug í sögu safnsins. FRéttaBLaðIð/StEFán
Öll ljós
slökkt
Halldór Björn Runólfsson lætur senn af
störfum sem safnstjóri Listasafns Íslands.
Hann segir að enn örli á fordómum í garð
myndlistar á Íslandi og að talsvert skorti á
skilning og stuðning innan úr stjórnsýslunni.
nánar tiltekið, og hann sagði við mig
að það vantaði meira af söfnum þar
sem fólk dvelur. Fólk getur komið og
kíkir ekki bara inn og rýkur svo út.
Hann sagðist vera með marga gesti,
einkum frá Þýskalandi, sem vilja ein-
mitt þetta. Vilja dvelja og kynnast
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Við erum
búin að gera
fullt af
hlutum sem
er gaman að
hugsa til
þegar litið
er til baka.
2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r26 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
2
5
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
4
F
-F
8
6
8
1
C
4
F
-F
7
2
C
1
C
4
F
-F
5
F
0
1
C
4
F
-F
4
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
1
2
s
_
2
4
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K