Fréttablaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 25.02.2017, Blaðsíða 33
Kransæðaþræðing (einnig köll- uð hjartaþræðing eða kransæða- myndataka) er í senn rannsókn og möguleg meðferð. Berglind Gerða Libungan er hjartalæknir með kransæðaþræðingar og -víkkanir sem undirgrein. Hún fer yfir fram- kvæmdina. Hvernig fer rannsóknin fram? Sjúklingar eru vakandi meðan á rannsókninni stendur, en boðið er upp á róandi lyf fyrir rannsókn. Eftir sótthreinsun og dúkun er ástunga gerð á slagæð á úlnlið eða í sumum tilfellum nára. Þunnur, um 2 mm æðaleggur, er þræddur að hjartanu. Litlu magni af skugga- efni er sprautað í gegnum æðalegg- inn og röntgenmyndir teknar sam- tímis. Myndir eru teknar frá mis- munandi sjónarhornum. Skipta þarf um æðalegg að minnsta kosti einu sinni til að geta myndað bæði hægri og vinstri kransæð. Þá er fyrst hægt að sjá hvort kransæðar séu með þrengsli. Í hvaða tilfellum er rannsóknin gerð? Fyrst og fremst er rannsóknin gerð á sjúklingum sem hafa einkenni og lækni grunar að einkennin útskýr- ist af kransæðasjúkdómi. Einkenni eru fyrst og fremst brjóstverkir (stundum kallað hjartaöng) eða verkur í kjálka, hálsi, baki eða handlegg sem oft- ast tengist áreynslu. Aðrar ábendingar geta verið: l Ný eða versnandi einkenni um brjóstverk (hvikul hjartaöng eða kransæðastífla). l Vegna hjartagalla (meðfæddur hjartasjúkdómur). l Hjartabilun. l Hjartalokusjúkdómar sem gætu þurft meðferð með skurðaðgerð. l Alvarlegar takt truflanir Fylgikvillar Vegna þess að það er hætta á fylgi- kvillum eru kransæðaþræðingar gerðar eftir að aðrar hjartarann- sóknir hafa verið gerðar, svo sem hjartalínurit, áreynslupróf og/eða kransæðasneiðmyndataka. Algengasti fylgikvillinn er blæð- ing frá stungustað, en tíðnin er þó undir 5%. Alvarlegir fylgikvillar eru sjaldgæfir (<1%) en helst má nefna: heilablóðfall, æðavandamál og ofnæmisviðbrögð. Hvað gerist eftir kransæðamyndatöku? Eftir að búið er að mynda krans- æðarnar er rætt við sjúklinginn um niðurstöðurnar. Eftir þetta samtal, sem oftast fer fram á meðan sjúklingurinn liggur enn á borðinu, getur þrennt gerst: 1. Sjúklingur fær enga meðferð eða lyfjameðferð. Venjulega er þá um að ræða engan/vægan kransæðasjúkdóm eða sjúkdóm sem erfitt er að meðhöndla með víkkun eða hjáveituaðgerð. 2. Sjúklingur fer frá þræðingar- stofu, en myndirnar eru sýnd- ar á svokölluðum hjartafundi. Venjulega eru þetta sjúkling- ar með flókinn kransæðasjúk- dóm eða sjúklingar sem eru með lokusjúkdóm. Á slíkum fundum er tekin ákvörðun um hvort eigi að bjóða upp á hjá- veituaðgerð. 3. Sjúklingur fer í kransæðavíkk- un sem er gerð í beinu fram- haldi af kransæðaþræðingunni. Kransæðavíkkun Kransæðavíkkun er að jafnaði ár- angursrík fyrir fólk með krans- æðaþrengsli. Þá er þröng krans- æð víkkuð út og við það eykst blóðflæðið til hjartans. Þá geta ein- kenni minnkað eða horfið sem fólk hafði vegna þrengslanna. Aðgerðin fer þannig fram að mjór vír er þræddur fram hjá þrengslasvæðinu. Síðan er belg- ur blásinn upp á þrengslasvæð- inu. Oftast er sett stoðnet á svæð- inu til að minnka líkurnar á endur- þrengslum. Kransæðaþræðingar á Íslandi Fyrsta kransæðavíkkunin var gerð á Íslandi árið 1987. Hröð þróun hefur átt sér stað frá því að fyrsta þræðingin var gerð og aðferðin verður stöðugt öruggari. Tvær hjartaþræðingarstofur eru starfandi hérlendis og gerð- ar eru um 5-10 þræðingar á virk- um dögum. Árið 2014 kom nýtt hjartaþræðingartæki á Landspít- alann sem var að mestu fjármagn- að með gjafafé. Í dag er hægt að meðhöndla fleiri og fleiri með flók- inn kransæðasjúkdóm með víkkun á kransæð/um. Vakt er á hjarta- þræðingarstofunni allan sólar- hringinn alla daga ársins. Tafar- laus kransæðavíkkun er kjörmeð- ferð við bráðri kransæðastíflu og þarf því að vera í boði hvenær sem er sólarhringsins. Fyrirbyggjandi aðgerðir Það besta sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir kransæðasjúk- dóm er fyrirbyggjandi meðferð, helst má nefna: l Hætta að reykja, mjög mikil- vægt! l Huga vel að mataræðinu. Borða hollan mat sem ekki inniheldur of mikið af kolvetnum og fitu. l Hreyfa sig reglulega. l Halda kjörþyngd. l Fylgjast með blóðþrýstingi, efri mörk blóðþrýstings eiga að jafnaði að liggja <140mmHg en strangara <135mmHg hjá þeim sem eru með sykursýki. l Fylgjast með blóðfitu (kólester- ól í blóði). Sumir þurfa kólester- óllækkandi lyf til að lækka blóð- fitu. Það er mismunandi eftir ein- staklingum hvað telst vera of hátt kólesteról, og er miðað við undir- liggjandi áhættu fyrir æðasjúk- dómi. Rannsókn og möguleg meðferð í senn Kransæðaþræðing er rannsókn þar sem skuggaefni og röntgengeislun er beitt til að mynda æðarnar umhverfis hjartað. Kransæðaþræðing er ein besta rannsókn sem völ er á til að greina kransæðasjúkdóm og gefur möguleika á meðferð eins og kransæðavíkkun eða -aðgerð. Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, var stofnað þann 9. maí 1995. Félagið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á velferð hjartveikra barna og fullorðinna með hjarta- galla. Í dag eru rúmlega 400 fjöl- skyldur í félaginu en árlega grein- ast um 70 íslensk börn með hjartagalla. Gallarnir eru mis- flóknir og þurfa sum börn að fara í nokkrar hjartaaðgerð- ir. Neistinn leggur mikla áherslu á að styðja við bakið á fjölskyld- um hjartveikra barna, félagslega jafnt sem fjárhagslega svo að þau geti tekist á við þetta mikla verk- efni sem er fyrir höndum þar sem mörg hver þurfa að ferðast til út- landa til að gangast undir flókn- ar aðgerðir. Einnig miðlar Neistinn fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjarta- göllum og meðferð þeirra, til dæmis með útgáfu frétta- blaðs og upplýsingavef sínum, Hjartagáttinni, sem hefur komið sér vel fyrir foreldra í undirbún- ingi sínum. Neistinn er með öflugt félags- starf, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings. Má þar nefna reglulegan hitting mæðra hjartabarna, sumarhá- tíð, árshátíð, spilakvöld foreldra og bingó. Unglingastarfið, sem þétt- ir hóp hjartveikra unglinga, þykir líka einkar líflegt með alls kyns uppákomum svo sem norrænum sumarbúðum, bíókvöldum, keilu og mörgu fleira. Neistinn stendur líka að baki og vinnur náið í samstarfi með styrktarsjóði hjartveikra barna, sem styrkir hjartafjölskyldur fjár- hagslega. Húfuverkefni Neistans Vikuna 7. til 14. febrúar stóð yfir alþjóðleg vitundarvika um með- fædda hjartagalla. Þá var vakin athygli á fræðslu til almennings um meðfædda hjartagalla og um leið á starfi Neistans. Stjórn Neistans ákvað að hefja vinnu á húfuverkefni að amerískri fyrirmynd, eftir hugmynd banda- rísku hjartasamtakanna og félagi hjartveikra barna í Ameríku sem kallast „Little hats, big hearts“. Þá prjónaði Neistinn og gaf, með aðstoð sjálfboðaliða og hjartavina, öllum nýburum sem fæddust þessa viku rauða húfu til að heiðra baráttu hjartveikra barna og minnast um leið þeirra barna sem látist hafa. Sjá nánar á neistinn.is NeistiNN – styrKtArFélAg HjArtveiKrA bArNA Samtök slagþolenda, að- standenda og fagað- ila, voru stofnuð 1. des- ember 1994 og hétu þá Félag heilablóðfallssjúkl- inga og stofnfélagar voru um 65, flestir slagsjúkling- ar, vandamenn þeirra og velunn- arar. Fagaðilar bættust við á síðari árum. Árið 2006 var nafni samtak- anna breytt í Heilaheill. Hlutverk Heilaheilla er: l að sameina heilablóðfallssjúkl- inga, aðstandendur þeirra og áhugafólk um heilbrigðan heila og gæta hagsmuna þeirra. l að stuðla að betri heilsu og bætt- um lífsgæðum í íslensku samfélagi, með áherslu á framfarir í forvörn- um, fræðslu og meðferð heila- og æðasjúkdóma. l að standa vörð um hagsmuni og réttindi þeirra er hafa fengið heila- blóðfall. Framtíðarsýn Heilaheilla: l Heilaheill hafa verið leiðandi með öðrum félögum við að bæta lífsgæði landsmanna með eflingu forvarna og fræðslu um heilablóð- fall. l Heilaheill verði öflugri hags- munasamtök á sviði heilbrigðis- mála á Íslandi með stóran og virk- an hóp félagsmanna. Samtökin hafa staðið fyrir fræðslu á áhættu- þáttum er leiða til slags s.s. gátta- tifi, blóðþrýstingsmælingum o.fl. og almennri lýðheilsu. Árlega fá 343 Íslendinga heila- blóðfall í fyrsta sinn og er það talið þriðja algengasta dánarorsök í heiminum. Sjá nánar á heilaheill.is HeilAHeill – FélAg HeilAblóðFAllssjúKliNgA Að sögn Berglindar Libungan hjartasérfræðings eru gerðar fimm til tíu þræðingar á dag á virkum dögum. Ingibjörg Guðmundsdóttir yfirlæknir myndar kransæðar. Séð inn á þræðingarstofu frá stjórnstöð. Elín Eiríksdóttir, formaður Neistans Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla Kynningarblað HjARtAmáNuðuR - Go REd 25. febrúar 2017 3 2 5 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 5 0 -0 2 4 8 1 C 5 0 -0 1 0 C 1 C 4 F -F F D 0 1 C 4 F -F E 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 1 2 s _ 2 4 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.