Fréttablaðið - 25.02.2017, Síða 30

Fréttablaðið - 25.02.2017, Síða 30
Samspil vísinda og skáld-skapar er flókið og marg-slungið. Frumlegar upp-götvanir vísindanna eru rithöfundum innblástur, en þeir gefa ímyndunar- aflinu lausan tauminn og spinna ævintýralegan söguþráð sem aftur getur orðið kveikjan að nýjum til- raunum vísindamanna. Ótal dæmi má nefna um uppfinningar sem lýst var í skáldskap áður en þær urðu að veruleika. Vísindaskáldskapurinn á sömuleiðis stóran þátt í að móta hug- myndir almennings, raunhæfar jafnt sem fjarstæðukenndar, um mögu- leika vísinda og tækni. Kvikmyndin um Júragarðinn (e. Jurass ic Park), eftir samnefndri sögu Mich aels Crichton er dæmi um verk sem tvinnar saman alla fyrrnefnda þætti. Þar segir frá auðkýfingi sem lætur vísindamenn endurskapa risa- eðlur með erfðaefni úr blóði þeirra, sem fundið var í meltingarvegi flugna Lifandi afturgöngur Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um kvöggur. sem fest höfðu í trjákvoðu. Risa- eðlurnar voru svo hafðar til sýnis í skemmtigarði, þar sem allt gekk á afturfótunum. Fléttan var snjöll og fangaði huga lesenda, þótt raunsæismenn bendi á að útilokað sé að heillegt erfðaefni geymist í svo langan tíma, þótt það sé varðveitt í steingerðu rafi. Sagan hefur hins vegar reynst hvatning til dáða þeim vísindamönnum sem vilja endurskapa loðfíla sem hjálp erfðatækni, með líf sýnum úr loð- fílshræjum sem fundist hafa í sífrera Síberíu. Ef marka má nýlegar fregnir eru þær tilraunir langt á veg komnar og mögulegt að fyrstu loðfílarnir líti dagsins ljós á næstu misserum eftir þúsunda ára aldauða. Læknirinn Crichton sótti hug- myndina að Júragarðinum meðal annars úr smiðju þýsks náttúruvís- indamanns, Reinholds Rau. Rau fæddist árið 1932 og hóf þegar á táningsaldri störf við Senckenberg- náttúrugripasafnið í Frankfurt. Sú vinna leiddi hann til Suður-Afríku árið 1951. Fágæt furðuskepna Meðal fjölmargra merkra gripa í eigu Senckenberg-safnins er feldur af hinni útdauðu dýrategund kvagga. Rétt rúmlega tuttugu slíkir feldir eða uppstoppaðar skepnur eru til í ver- öldinni. Talið er að kvöggur hafi lifað villtar í Afríku til ársins 1878 og fimm árum síðar drapst síðasta dýrið í evr- ópskum dýragarði. Dýrafræðingar voru hins vegar grandalausir um hið slæma ástand stofnsins og til marks um það var aðeins ein kvagga ljós- mynduð, það var kvaggahryssa í dýragarði í Lundúnum árið 1870. Kvöggur voru náskyldar sebrahest- um. Höfuðið og fremri hluti líkamans voru alsett röndum, þó ekki svörtum og hvítum heldur brúnum og hvítum. Rendurnar voru sömuleiðis daufari en hjá ættingjum kvöggunnar. Aftari hlutinn var brúnleitur og minnti dýrið því á hálfan sebrahest en hálfan smáhest eða asna. Enn í dag vita náttúrufræðingar ekki með fullri vissu hvernig stendur á röndum sebrahestsins. Sumir telja að rendurnar gegni einhvers konar feluhlutverki og auðveldi skepn- unum að leyna sig fyrir rándýrum. Önnur skýring er sú að rendurnar hjálpi dýrunum að bera kennsl á hvert annað og að finna rétta hjörð, en engir tveir sebrahestar hafa nákvæmlega eins rendur. Enn aðrir hallast að því að röndunum sé ætlað að fæla frá flugur sem sjúga blóð, en þekkt er að flugur forðist röndótta fleti. Síðastnefnda tilgátan virðist trúleg ef kvaggan er höfð í huga, því heimkynni hennar voru syðst í Afríku þar sem loftslag er mildara en nær miðbaug og flugnaplágur ekki eins miklar. Þörfin á áberandi röndum um allan líkamann er því ekki sú sama á þeim slóðum. Talið er að stórar hjarðir af kvögg- um hafi mátt finna víðs vegar um Suður-Afríku, þar sem dýrin áttu fáa náttúrulega óvini aðra en menn, ljón og hýenur. Með tilkomu hollenskra landnema – Búanna svokölluðu – sem hófu að hreiðra um sig á svæðinu í lok sautjándu aldar, tók hins vegar að halla undan fæti. Búarnir bjuggu yfir skotvopnum og uppgötvuðu skjótt að kvöggurnar voru auðveld bráð og gáfu af sér ágætt kjöt. Stór- felld slátrun átti sér stað sem lauk með útrýmingu dýrategundarinnar á innan við tveimur öldum. Náttúruvísindamenn vöknuðu upp við vondan draum þegar kvagg- an var horfin af yfirborði jarðar.En þá kom Reinhold Rau til skjalanna. Nýjar uppgötvanir Ef til vill var það hamurinn af kvögg- unni á Senckenberg-safninu sem vakti áhuga unga mannsins á dýrinu útdauða, en hver svo sem ástæðan var sökkti Rau sér í rannsóknir á þeim kvöggu-feldum og beinagrindum sem til voru á víð og dreif um nátt- úrugripasöfn veraldar. Fljótlega komst hann að þeirri niðurstöðu að hugmyndir náttúru- fræðinga um kvöggur væru bjagaðar. Skýringin á því væri meðal annars sú að við uppstoppanir á slíkum dýrum hefðu hamskerar freistast til að nota höfuðkúpur úr hestum eða ösnum, sem gerðu kvöggurnar talsvert frá- brugðnar sebrahestum í útliti. Með því að rýna í feldina og bera saman við ýmsar undirtegundir sebrahesta sannfærðist Rau um að kvaggan hefði í raun verið miklu skyldari ættingjum sínum norðar í Afríku en flestir höfðu talið. Framfarir í lífsýnarannsóknum gerðu það síðar unnt að bera saman sýni úr kvöggum og ákveðnum teg- undum sebrahesta og finna þannig frekari vísbendingar um skyldleika. Rannsóknir þessar urðu til þess að dýrafræðingar tóku ríkjandi kenningar til endurmats og féllust á að skyldleiki kvöggunnar og ann- arra sebrahesta hefði verið meiri en gömlu fræðiritin vildu ætla. Rau taldi hins vegar ekki nógu langt gengið. Að hans mati var ekki hægt að tala um kvöggur sem sjálfstæða dýrategund heldur bara annað afbrigði sem þró- ast hefði með lítillega öðrum hætti. Á grunni þeirrar sannfæringar sinnar taldi Rau að unnt væri að end- urheimta kvögguna með kynbótum. Með því að leita uppi sebrahesta með svipuð einkenni og para þá saman mætti rækta upp nýjan stofn og bæta þannig fyrir mistök forfeðranna. Smáhross og úruxar Hugmyndin var ekki fordæmalaus, því á þriðja áratugnum höfðu þýsku bræðurnir Heinz og Lutz Heck gert tilraunir í svipaða veru í Evrópu með bæði hesta og uxa. Bræðurnir freistuðu þess að endurskapa úrux- ann, sem var risavaxið uxakyn með gríðarmikil horn. Úruxar teljast for- feður nútíma nautgripa, en dóu út snemma á sautjándu öld. Með því að para saman óvenju gildvaxin og stór- hyrnd nautgripakyn reyndu þeir að fá út dýr sem sem svipaði til lýsinga og teikninga af úruxum úr fornum ritum. Tilraunir Heck-bræðra til að end- urskapa útdautt pólskt smáhestakyn var af sama meiði. Þeir álitu, raunar ranglega, að smáhestar þessir hefðu verið forfeður allra evrópskra hesta og leituðust við að endurgera þá, meðal annars með kynbótum við smágerð hestakyn á borð við íslenska hestinn og þann frá Gotlandi í Sví- þjóð. Heck-bræður voru um margt merk- ir vísindamenn og áttu til að mynda stóran þátt í því að vernda og byggja upp evrópska vísundastofninn. Til- raunirnar til að skapa úruxa og smá- hesta hafa þó fengið lakari eftirmæli. Benda gagnrýnendur á að þótt til- raunirnar hafi skilað dýrum sem svip- aði í útliti til fyrirmyndanna, þá hafi arfgerð þeirra verið allt önnur og því fráleitt að láta eins og um sömu teg- und sé að ræða. Þá varð ekki hjá því komist að kynbótatilraunir þýskra vísindamanna á þessum árum vektu hugrenningatengsl við kynþátta- stefnu nasista og hugmyndir þeirra um kynbætur á mönnum. Í ljósi þeirrar sögu allrar, er ekki að undra þótt hugmyndir vísindamanns í Suður-Afríku, sem alinn var upp í Þýskalandi nasismans, um stórfelldar kynbótatilraunir hafi fallið í grýttan jarðveg þegar Reinhold Rau tók að kynna þær upp úr 1970. Hann skellti skollaeyrum við öllum gagnrýnis- röddum og reyndi að vekja athygli ráðamanna og fjárfesta á Kvagga- verkefninu, áætlun um að endur- skapa kvögguna í lífríki Suður-Afríku. Árið 1987 tókst Rau loks að hrinda verkefninu úr vör í þjóðgarði í Suður- Afríku og þar er það enn í fullum gangi þrátt fyrir fráfall stofnandans árið 2006. Á vefsíðu verkefnisins er hamrað á nánum skyldleika kvöggu og sebrahesta og vissulega hefur aðstandendum tekist nokkuð vel upp, því dýrin í garðinum eru brún- leit og aðeins með rendur á fremri hluta skrokksins. Engu að síður treysta stjórnendurnir sér ekki til að kalla sköpunarverk sitt kvöggu, heldur hafa þeir búið til nýtt heiti: Rau kvagga. Eftir standa svo ótal heimspeki- legar vangaveltur um rétt mannsins til að breyta dýrategundum og því hvort hægt sé að tala um að dýra- tegund sé endursköpuð þótt rækta megi önnur dýr með svipaða útlits- eiginleika? Slíkum spurningum eru þó rithöfundarnir oft betri í að svara en líffræðingarnir. kvöggurnar voru auðveld bráð og gáfu af Sér ágætt kjöt. Snyrtistofan Hafblik OKKAR SÉRSVIÐ ER Háræðaslitsmeðferðir HENDUR – ANDLIT – HÁLS – BRINGA Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r30 h e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð 2 5 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 4 F -D 0 E 8 1 C 4 F -C F A C 1 C 4 F -C E 7 0 1 C 4 F -C D 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 1 2 s _ 2 4 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.