Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.02.2017, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 25.02.2017, Qupperneq 34
Þeim einkennum sem sjúklingarnir fá svipar á margan hátt til einkenna við bráða kransæða- stíflu. Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Hjartahnoð er framkvæmt með því að krjúpa við hlið einstaklingsins, leggja þykkhönd hinnar handarinnar ofan á þá fyrri og læsa fingrunum saman. Í hjartastoppi hættir hjartað að dæla blóði til líkamans og heilans annað hvort af því að það slær of hratt og óreglulega eða af því að það hefur stoppað. Ef einstakling- ar fá enga meðferð eftir hjarta- stopp verður heilinn fyrir skaða eftir 4-6 mínútur. Einstakling- urinn deyr nema viðstaddir hefji endurlífgun. Hjartahnoð getur viðhaldið blóðflæði þar til sérhæfð aðstoð berst. Rétt fyrstu viðbrögð geta skipt sköpum fyrir horfur einstaklinga sem fara í hjartastopp en þau eru að kalla strax eftir aðstoð í Neyð- arlínu (112) og hefja tafarlaust hjartahnoð. Ekki er lögð áhersla á munn við munn blástur fyrstu mínútur eftir hjartastopp og ekki þarf lengur að staðfesta púlsleysi með þreifingu enda hefur komið í ljós að slíkt er ekki áreiðanlegt og getur tafið fyrir að endurlífg- un sé hafin. Hjartahnoð er fram- kvæmt með því að krjúpa við hlið einstaklingsins, leggja þykkhönd hinnar handarinnar ofan á þá fyrri og læsa fingrunum saman. Gæta þarf þess að axlirnar séu beint yfir hnoðstað og hendur séu á miðju bringubeini. Ýta á bringubeini 4-5 cm niður í hverju hnoði og ekki minna en 100 sinn- um á mínútu. Halda skal áfram að hnoða þar til sérhæfð aðstoð berst. Sá sem veitir hjartahnoð finnur að hann þreytist fljótt. Ef mögu- leiki er á, er mælt með að skiptast á að hnoða, á um tveggja mín- útna fresti og með sem minnst- um töfum, til þess að tryggja að hjartahnoðið verði sem áhrifarík- ast. Í mörgum opinberum bygg- ingum, líkamsræktarstöðvum, íþróttahúsum og verslunarmið- stöðvum eru sjálfvirk hjartastuð- tæki. Gott að er að kynna sér hvar slík tæki eru til staðar og hvar þau eru geymd. Ef sjálfvirkt hjarta- stuðstæki er nálægt á að sækja það eins fljótt og hægt er. Sjálf- virk hjartastuðtæki eru einföld í notkun og getur nánast hver sem er notað tækið með því að fylgja leiðbeiningum þess. Hjartastuð- tæki gefur ekki rafstuð nema ástæða sé til. Rafstuð er heldur ekki trygging fyrir því að hjart- að byrji aftur að slá. Nokkrir staðir, eins og Rauði krossinn, bjóða upp á námskeið í skyndihjálp og grunn endurlífg- un fyrir almenning. Þú gætir bjargað mannslífi með kunnáttu í skyndihjálp og endurlífgun. Auðvelt er að muna rétt viðbrögð, með því að hafa í huga orðin hringja og hnoða. Einkenni kransæðastíflu Stigun bráðra kransæðaheilkenna fer eftir alvarleika þeirra en vægasta formið er kallað hvikul hjartaöng. Þá verður ekki drep í hjartavöðvanum þrátt fyrir alvar- leg einkenni eins og brjóstverk. Næst er svokallað brátt hjarta- drep en þá koma fram breyting- ar á hjartalínuriti og ensím úr hjartanu losna út í blóðið. Alvar- legasta formið af bráða kransæða- heilkenni er síðan skyndidauði en þá hættir hjartað að slá. Í öllum þessum tilvikum er um að ræða skerðingu á blóðflæði til hjartans. Brjóstverkur er helsta ein- kenni á bráðum kransæðaheil- kennum en birtingarmynd hans getur verið mjög breytileg og sumir fá jafnvel engan verk en aðrir fá afar slæman verk og oft- ast yfir miðjan brjóstkassann. Sjúklingar með bráða kransæða- heilkenni leita í flestum tilfell- um á heilsugæslustöð eða sjúkra- hús vegna brjóstverkja enda er brjóstverkur helsta einkenni kransæðastíflu. Verkurinn er oft- ast mjög óþægilegur og er gjarn- an lýst sem herpingi í bringunni, seyðings- eða þyngslaverk yfir brjóstkassann og oft leiðir verk- urinn upp í axlirnar og handleggi og upp í háls, kjálka eða tungu. Verkurinn stendur yfir í 15 mín- útur eða lengur. Fyrirvari bráðs kransæðaheil- kennis getur komið fram klukku- stundum, dögum eða vikum fyrir áfallið. Snemmkomin einkenni áfalls eru endurteknir verkir sem koma fram við líkamlega áreynslu en láta undan í hvíld. Brátt kransæðaheilkenni, byrjar skyndilega og getur falið í sér öll eða nokkur af eftirfarandi einkennum: l Brjóstverkur eða óþægindi, oft lýst sem þrýstingur, herpingur eða sviði. l Leiðni frá brjóstkassa og út í axlir, hendur, efra kviðarhol, bak, háls eða kjálka. l Ógleði eða uppköst. l Meltingartruflanir. l Andþyngsli. l Svitakóf. l Svimi eða yfirlið. l Óeðlileg eða óútskýrð þreyta. l Eirðarleysi eða kvíði. Viðbrögð við brjóstverk: l Hringja eftir hjálp, í 112. l Láttu aðra í kringum þig vita af einkennum þínum og líðan. l Ekki fara afsíðis eða vera ein/ einn, vertu innan um aðra. l Ekki keyra bíl á bráðamóttöku, það setur þig og aðra í hættu ef ástand þitt breytist skyndilega. Hildur Rut Albertsdóttir og Bylgja Kærnested, hjúkrunarfræðingar Skyndihjálp getur skipt sköpum Árangur endurlífgunar utan sjúkrahúss á Íslandi er góður í samanburði við önnur lönd. Hægt er að bjarga mannslífi með kunnáttu í skyndihjálp og endurlífgun. Brjóstverkur er helsta einkenni á bráðum kransæðaheilkennum en birtingarmynd hans getur verið breytileg. Japanar lýstu fyrstir manna sjúk- dómi sem stundum hefur verið kallaður „broken heart syndrome“ árið 1990. En skyldu Japanar vera eitthvað sérstaklega tilfinninga- næmir,“ spyr Þórdís Jóna Hrafn- kelsdóttir hjartalæknir. „Þeir töldu sjúkdóminn oftast koma fram í kjölfarið á skyndilegu andlegu áfalli eins og við fráfall maka, náttúruhamfarir eða eitt- hvað sambærilegt en nú er raun- ar vitað að einnig góðar fréttir, til dæmis að hljóta stóra lottóvinning- inn, mikið líkamlegt álag eða jafn- vel krefjandi lyfjameðferð getur komið þessu af stað. Eins sést þetta all oft í tengslum við önnur alvar- leg veikindi. Japönsku læknarn- ir nefndu þetta fyrirbæri „takot- subo“ eftir gildrunni sem kolkrabb- ar eru veiddir í, en hún er einhvers konar sekkur. Hjartað verður nefnilega oft eins og poki í laginu þegar þetta gerist því hjartabrodd- urinn dregst illa eða ekki saman og efri hluti hjartahólfsins (vi. slegils) dregst mjög mikið saman. Þá verð- ur hjartað næstum eins og uppblás- in blaðra og hefur sjúkdómurinn líka verið kallaður „broddþenslu- heilkenni“ á íslensku. Í nýlegri umfjöllun í Speglinum á Rás 2 var stungið upp á því að þetta fyrirbæri yrði kallað „harmslegill“ með vísan í að þetta gerist oft í tengslum við mikla sorg.“ Meirihluti þeirra sem greinast með broddþensluheilkenni eru að sögn Þórdísar miðaldra eða eldri konur, þótt sjúkdómurinn sé vissu- lega þekktur hjá öðrum hópum. Af hverju þetta virðist hlutfallslega algengast hjá eldri konum er ekki vitað. „Þeim einkennum sem sjúkl- ingarnir fá svipar á margan hátt til einkenna við bráða kransæða- stíflu; sár eða þungur verkur fyrir brjósti, mæði, hjartsláttartruflanir. Einnig getur hjartalínuritið bent til kransæðastíflu. Kransæðamynda- taka hjá sjúklingum með takotsubo leiðir hins vegar í ljós að kransæð- arnar eru allar opnar, sem ekki er tilfellið við kransæðastífluna. Hér er því miklu frekar um skyndi- lega hjartabilun að ræða. Talið er að 1-2% þeirra sem eru grunað- ir um bráða kransæðastíflu séu með broddþensluheilkenni en ekki hjartadrep,“ upplýsir Þórdís. Hún segir ekki almennilega ljóst hvað veldur þessari skyndi- legu hjartabilun. Læknar eru þó sammála um að stresshormón eigi hér stóran hlut að máli. „Svo virð- ist sem hluti hjartavöðvans bregðist við skyndilegri ofgnótt stresshorm- óna með því að hreinlega lamast. Þetta veldur því að hjartað pump- ar ekki sem skyldi, sjúklingurinn verður móður, fær jafnvel vatn í lungun og hjartsláttartruflanir.“ Til að greina sjúkdóminn er nauðsynlegt að gera kransæða- myndatöku og útiloka að krans- æðarnar séu stíflaðar, en grunur- inn vaknar oftast vegna sérkenni- legs útlits hjartans við ómskoðun (sónar). „Í sumum tilfellum velja menn einnig að gera segulómun af hjartanu, en slík rannsókn getur greint á milli broddþensluheil- kennis og t.d. bólgusjúkdóms eða örmyndunar í hjartavöðvanum af öðrum orsökum. Ekki er til nein sérhæfð meðferð við broddþenslu- heilkenni, en mikilvægt er að fylgj- ast vel með sjúklingunum og beita viðeigandi hjartabilunarmeðferð.“ Að sögn Þórdísar jafna flest- ir sjúklinganna sig fljótt. Í væg- ustu tilfellunum jafnvel á nokkr- um dögum. Í alvarlegri tilfellum er hjartabilunin þó meira langdregin og það geta jafnvel komið upp fylgi- kvillar eins og heilaslag og alvar- legar hjartsláttartruflanir hjá þeim eru mest veikir. Lítill hluti þeirra sem hafa fengið takotsubo veikist aftur síðar á lífsleiðinni, en ekki er til nein ákveðin fyrirbyggjandi meðferð við sjúkdómnum. Þórdís segir því ákveðin sann- mæli að hjartað geti brostið úr sorg. „Við getum þó flest tekið undir með Stebba Hilmars og félögum í söngn- um þeirra um brostna hjartað, brosað út í annað og kannski stig- ið nokkur létt dansspor, svona til að létta okkur lundina.“ Þegar hjartað brestur úr sorg „Ég hef skilið eftir brostið hjarta – ég hef skilið eftir opið sár …“ syngur Stefán Hilmarsson í laginu Brostið hjarta, enda dramatíkin gjarnan í hávegum höfð í dægurlögum. Í flestum almennilegum ástarsögum eru hjörtun ýmist við að springa eða bresta þegar ástin svíkur. Að sögn Þórdísar geta áföll og sorg leitt til broddþensluheilkennis eða harmslegils. Sömuleiðis góðar fréttir og líkamlegt álag. Meirihluti þeirra sem greinast eru miðaldra eða eldri konur. MYND/ANTON BRINK HjARTAMáNuðuR - GO RED Kynningarblað 25. febrúar 20174 2 5 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 4 _ K N ýt t. p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 5 0 -0 7 3 8 1 C 5 0 -0 5 F C 1 C 5 0 -0 4 C 0 1 C 5 0 -0 3 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 1 2 s _ 2 4 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.