Fréttablaðið - 25.02.2017, Síða 84

Fréttablaðið - 25.02.2017, Síða 84
Elskulegur og ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ásgeir Guðbjartsson skipstjóri, Túngötu 9, Ísafirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 22. febrúar. Útför hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 4. mars klukkan 14.00. Guðbjartur Ásgeirsson Ragnheiður Hákonardóttir Guðbjörg Ásgeirsdóttir Kristín Hjördís Ásgeirsdóttir Flosi Kristjánsson Jónína Brynja Ásgeirsdóttir Flosi Valgeir Jakobsson og fjölskyldur. Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Þorsteinn Elísson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Jóhann Kristinsson Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ, lést á Hrafnistu Reykjanesbæ, mánudaginn 20. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 28. febrúar kl. 13. Barði Jónsson Lena Jónsson Ragnhildur Stefánsdóttir Sigurgeir Þórarinsson Inga Sif Stefánsdóttir Kjartan Þór Eiríksson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Þórdís Halldórsdóttir Kirkjuvegi 11, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, mánudaginn 20. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 3. mars kl. 13. Hrefna Halldórsdóttir Magnús Guðmundsson Halldór Þór Halldórsson Ivy Carlill Guðrún Björg Halldórsdóttir Björgvin Halldórsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Sigurþórs Jónssonar vélvirkja og fv. framkvæmdastjóra. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á deild B-7 á Landspítala og L-4 á Landakotsspítala fyrir þá góðu umönnun sem honum var veitt af hlýju og virðingu. Sigurborg Valgerður Jónsdóttir Garðar Sigurþórsson Sigrún Sigurþórsdóttir Reynir Guðmundsson Sigurþór Sigurþórsson barnabörn og barnabarnabörn. Þegar ég ákveð að hringja í Þorstein Eggertsson í til-efni 75 ára afmælisins í dag tengi ég nafn hans ósjálf-rátt við Reykjanesbæ en finn engan með því nafni þar. „Ég er búinn að búa í bænum síðan 1975, árið sem lagið Heim í Búðardal sló í gegn,“ upplýsir hann þegar hann svarar símanum. „En ég er náttúrlega fæddur í Keflavík og ólst þar upp. Orti líka mikið fyrir tónlistarfólkið á Suðurnesjunum, Hljóma, Trúbrot, Rúnar Júlíusson, Magn- ús og Jóhann, Júdas og Rut Reginalds.“ Þorsteinn kveðst ekki hafa tölu á þeim textum sem hann hefur samið en segir um 800 hafa verið útgefna, suma í mis- munandi útfærslum. Í nýjasta hefti Heima er best er grein eftir Þorstein þar sem hann lýsir kvöld- inu sem hann orti Slappaðu af og press- unni sem hann var undir. Skyldi hann eiga margar sögur af eigin textagerð? „Ég á nokkrar. Sumar eru um eitthvað sem ég minnist sjálfur, aðrar hafa mér verið sagðar og sumar eru örugglega skáldaðar – en þær lifa. Ég man til dæmis ekki til að hafa samið texta í leigubíl á milli staða, eins og haldið hefur verið fram. En það kom fyrir að ég var kallaður inn í stúdíó þar sem verið var að taka upp lög og texta vantaði í hvelli.“ Samkvæmt frásögninni í Heima er best tæmdi skáldið eina viskýflösku yfir Slappaðu af. Þarf hann alltaf áfengi til að koma sér í gírinn? „Nei, ég dreypi oft á viskýi en það má ekki vera of mikið, þá fer allt í tóma vitleysu. Enda sést það á Slappaðu af, sá texti byrjar ágætlega en höfundur er greinilega orðinn sauð- drukkinn í restina.“ Þorsteinn er enn að. „Ég er núna að klára texta fyrir Gunnar Þórðarson og það er stutt síðan ég samdi fyrir Helgu Möller. En þetta er bara einn og einn texti. Það semur enginn á heilar plötur lengur því hljómplötumarkaðurinn er hruninn og flestar plötubúðir dottnar upp fyrir.“ Auk textagerðarinnar kveðst Þor- steinn hafa kennt á námskeiðum hjá Fjölmennt undanfarin ár, bæði sögu alþýðutónlistar og ensku. Segir það skemmtilegt enda mæti þar fólk sem hafi áhuga. Í lokin er hann spurður út í afmælishaldið. „Ég ætla bara að vera með mínum nánustu og skreppa svo eitthvað út fyrir landsteinana í vor.“ gun@frettabladid.is Flutti í borgina árið sem Heim í Búðardal sló í gegn Þorsteinn Eggertsson, einn afkastamesti söngtextahöfundur þjóðarinnar, er sjötíu og fimm ára í dag. Hann ætlar að fagna því með sínum nánustu og skreppa svo út í vor. „Það kom fyrir að ég var kallaður inn í stúdíó þar sem verið var að taka upp lög og vantaði texta í hvelli,“ segir Þorsteinn. Fréttablaðið/anton brink Ég er núna að klára texta fyrir Gunnar Þórðarson og það er stutt síðan ég samdi fyrir Helgu Möller. 2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r32 t í m a m ó t ∙ f r É t t a b L a ð i ð tíMaMót 2 5 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 4 F -D 5 D 8 1 C 4 F -D 4 9 C 1 C 4 F -D 3 6 0 1 C 4 F -D 2 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 1 2 s _ 2 4 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.