Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2017, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 02.02.2017, Qupperneq 10
Smith & Norland er framúrskarandi fyrirtæki Smith & Norland hlaut fyrir stuttu viðurkenningu Creditinfo fyrir að hafa verið Framúrskarandi fyrirtæki árið 2016. Creditinfo framkvæmir árlega fjárhagslegt styrk- og stöðugleikamat á fyrirtækjum landsins. Með tilliti til ársins 2016 uppfylla 1,7% allra íslenskra fyrirtækja þau skilyrði sem Creditinfo setur þeim til að geta talist Framúrskarandi fyrirtæki. Við erum stolt af árangri fyrirtækisins og þakklát fyrir þessa viðurkenningu. Tækni Þegnar Evrópusambandsins verða ekki lengur rukkaðir aukalega fyrir að nota gagnareiki í farsím­ um símum í öðrum ríkjum sam­ bandsins. Framkvæmdastjórn ESB, Evrópuþingið og fulltrúar aðildar­ ríkjanna 28 hafa komist að sam­ komulagi um þetta. Þó á framkvæmdastjórnin, sem og þingið, enn eftir að samþykkja breytinguna með formlegum hætti. Það ætti þó einungis að vera forms­ atriði fyrst samkomulagi hefur verið náð. Í tilkynningu í gær lýsti And­ rus Ansip, einn varaforseta fram­ kvæmdastjórnarinnar sem sér jafnframt um hinn stafræna sam­ eiginlega markað, ákvörðuninni sem síðasta púslinu í spilinu. „Þetta var síðasta púslið. Frá og með 15.  júní munu Evrópubúar geta ferðast innan Evrópusambandsins án þess að þeir verði rukkaðir auka­ lega fyrir að nota gagnareiki,“ sagði Ansip, sem áður var forsætisráð­ herra Eistlands. Hámark verður einnig sett á auka­ gjöld fyrir farsímanotkun. Mun hver mínúta símtals að hámarki kosta 3,2 evrusent aukalega, um fjórar krón­ ur, og hvert SMS mun kosta eitt sent aukalega, rúma eina krónu. Hámarksverð  niðurhals mun þá lækka ár frá ári. Úr 7,7 evrum aukalega, um 940 krónur, á hvert gígabæti í júní og niður í 2,5 evrur aukalega, um  310 krónur,  á hvert gígabæti þann fyrsta janúar árið 2022. Til samanburðar greiða Íslend­ ingar á ferðalagi innan EES nú sex krónur aukalega fyrir símtalsmín­ útu, 2,5 krónur aukalega fyrir send SMS og um sex þúsund krónur aukalega fyrir hvert gígabæti niður­ hals. Evrópusambandið hefur áður reynt að útrýma háum kostnaði notkunar gagnareikis. Áætlun þess efnis var samþykkt árið 2013 og sömuleiðis var ráðist í aðgerðir árið 2007. Ætlunarverkið virðist þó hafa tekist í þetta skiptið. Ákvörðunin er þó ekki óumdeild. Til að mynda hefur hún verið gagn­ rýnd fyrir að gera fólki kleift að kaupa sér farsímaþjónustu í öðru ríki en heimalandinu og nota hana heima hjá sér án hárra aukagjalda. H i n s ve g a r b e n t i f ra m ­ kvæmdastjórnin á það í gær að regla gegn þess konar athæfi hefði verið samþykkt í desember síðast­ liðnum. Þannig muni nýja gjald­ skráin ekki ná yfir ferðalanga sem nota farsíma sína óeðlilega oft og mikið utan heimalandsins. thorgnyr@frettabladid.is Rukka ekki fyrir gagnareiki innan ESB Farsímanotendur munu ekki þurfa að greiða aukalega fyrir gagnareiki innan Evrópusambandsins. Breytingin tekur gildi í júní. Munu þegnar ESB því geta notað farsímann líkt og þeir væru í heimalandinu. Gagnrýnendur óttast mögulega misnotkun nýs fyrirkomulags. Sé þessi símaeigandi ferðalangur frá Evrópusambandsríki og staddur í Evrópusambandinu eftir 15. júní mun hann ekki þurfa að borga himinhá gjöld fyrir að skoða þær átta tilkynningar sem bíða eftir honum á Facebook. NordicphotoS/AFp Frá og með 15. júní munu Evrópubúar geta ferðast innan Evrópu- sambandsins án þess að þeir verði rukkaðir aukalega fyrir að nota gagnareiki. Andrus Ansip, varaforseti framkvæmda- stjórnar ESB Hæstiréttur Japans felldi í gær niður fjögur mál gegn tæknirisanum Google. Í öllum fjórum málunum var þess krafist að Google fjar­ lægði ummæli í kortaþjónustunni Google Maps sem þóknuðust máls­ höfðendum ekki og þóttu æru­ meiðandi. Áður, í apríl árið 2015, hafði neðra dómstig dæmt Google til að eyða ummælunum. Google áfrýjaði hins vegar niðurstöðunni með ofan­ greindum afleiðingum. Einn málshöfðandi, ónefnd heilsugæsla, fór fram á að neikvæðar umsagnir um heilsugæsluna yrðu fjarlægðar þar sem þær voru taldar ærumeiðandi. Málin kallast á við mál sem höfð­ að var fyrir æðsta dómstigi Evrópu­ sambandsins. Þar komst dómari að þeirri niðurstöðu að þegnar ESB hefðu svokallaðan rétt til að gleym­ ast og að Google bæri að fjarlægja leitarniðurstöður ef þær þóknuðust viðkomandi ekki. – þea Google sigrar fyrir rétti Japanski leikjarisinn Nintendo til­ kynnti í gær að fyrirtækið hygðist framleiða tvo til þrjá tölvuleiki fyrir snjallsíma ár hvert. Fyrr í vikunni greindi fyrirtækið frá því að rekstur þess hefði skilað hagnaði í fyrsta sinn í rúmt ár. Spilar þar útgáfa snjallsíma­ leiksins Super Mario Run sína rullu. Snjallsímadeild Nintendo þénaði um sjö milljarða króna á síðasta ársfjórðungi. Alls hafa 78 milljónir hlaðið Super Mario Run niður í síma sína. Þó hafa innan við tíu prósent þeirra keypt fulla útgáfu leiksins á þær rúmu þúsund krónur sem settar eru á útgáfuna. Nintendo kveðst enn fremur ætla að styðja leikinn til lengri tíma. „Við stígum nú þau skref sem þarf til að tryggja að hægt verði að njóta Super Mario Run til lengri tíma,“ sagði Tatsumi Kimishima, forseti stjórnar Nintendo, á blaðamanna­ fundi í gær.  Þá tilkynnti Nintendo einnig um að stefnt væri að því að væntanleg leikjatölva fyrirtækisins, Nintendo Switch, myndi seljast vel á sínum fyrsta mánuði á markaði. Tölvan kemur á markað í mars og ætlast Nintendo til þess að tvær milljónir eintaka seljist fyrsta mánuðinn.– þea Gera fleiri leiki fyrir síma pípulagningamaðurinn Mario er vin- sæll. NordicphotoS/GEtty Ummælum um japönsk fyrirtæki verður ekki eytt. NordicphotoS/AFp 78 milljónir notenda hafa hlaðið leiknum Super Mario Run niður í snjallsíma síma. 2 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r10 f r é T T I r ∙ f r é T T a b L a ð I ð 0 2 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 2 5 -8 4 F 8 1 C 2 5 -8 3 B C 1 C 2 5 -8 2 8 0 1 C 2 5 -8 1 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.