Fréttablaðið - 08.03.2017, Side 2
Hrein og skýr framsögn
Erla Rúrí Sigurjónsdóttir stóð uppi sem sigurvegari Stóru upplestrarkeppnarinnar í Hafnarfirði en keppnin fór fram í gær. Eliza Reid, forsetafrú,
afhenti verðlaunin. Þar keppir hópur ungmenna í vönduðum upplestri og framsögn. Dagur Logi Sigurðsson endaði í öðru sæti og Sveinbjörg Júlía
Kjartansdóttir í þriðja. Fyrsta upplestrarkeppnin fór fram í Hafnarfirði 1997 og hefur hún verið árlegur viðburður frá aldamótum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Veður
Norðaustankaldi og slydda eða snjó-
koma norðvestan til í dag, en annars
hægara og úrkomulítið. Hiti yfirleitt 0 til
5 stig. sjá síðu 16
Fangelsismál „Sálfræðingur hefur
ekki komið inn í fangelsið á Akureyri
síðan í byrjun árs 2015. Það er því ekki
einu sinni hægt að óska eftir slíkri
þjónustu því hún er hvergi sýnileg.
Þetta er veruleikinn sem við höfum
margoft bent á,“ segir Guðmundur
Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu,
félags fanga.
Fangi sem fluttur var á sjúkrahús á
laugardag eftir sjálfsvígstilraun í fang-
elsinu á Akureyri lést í gær.
Aðeins tveir sálfræðingar auk
tveggja félagsráðgjafa eru við störf
hjá Fangelsismálastofnun og eiga
þeir að sinna öllum föngum sem sitja
inni og öllum föngum á reynslulausn í
opnum úrræðum. Í Danmörku er einn
félagsráðgjafi á hverja 20 fanga og geð-
heilbrigðisþjónusta mun betri en hér.
„Afstaða hefur um árabil gert alvar-
legar athugasemdir við stöðu sálfræði-
og geðlæknaþjónustu í fangelsunum,“
segir í tilkynningu félagsins. Ráðherra
er krafinn um úrbætur.
„Það er okkar mat að sálfræðingar
stofnunarinnar þurfa að vinna í
nánum tengslum við fanga og fanga-
verði en ekki í höfuðstöðvum fang-
elsismálastofnunar á Seltjarnarnesi,
því þar gerast ekki hlutirnir.“
Gunnar Hrafn Jónsson, þingmaður
Pírata, segir mikilvægt að gera bragar-
bót á stöðu fangelsismála.
„Eins og staðan er núna eru margir
fangar fársjúkir. Við eigum að sjá
sóma okkar í því að sinna fólki með
þennan tvíþætta vanda, fíknivanda
og geðsjúkdóma. Margir fangar í dag
eiga frekar heima á sjúkrastofnunum
en í fangelsi. Þetta þurfum við að laga.“
Guðmundur Gíslason, forstöðu-
maður fangelsisins á Akureyri,
segir fangelsið ekki geta tryggt það
að fangar svipti sig ekki lífi. Vistar-
verur þeirra á Akureyri eru allajafna
búnar nútíma þægindum.
„Ef vilji er fyrir hendi geta fangar
tekið eigið líf. Í klefum sínum eru
þeir með sjónvörp, eigin fatnað,
rúmföt og handklæði og hvaðeina,“
segir Guðmundur.
Andlátið í gær er nú til rannsóknar
hjá rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri. sveinn@frettabladid.is
Sálfræðingur ekki sést
í fangelsinu í um tvö ár
Félag fanga segir að sálfræðingur hafi ekki komið í fangelsið á Akureyri í tvö ár.
Þetta sé veruleiki fanga. Við því þurfi að bregðast. Fangar í mikilli þörf fyrir sál-
og geðheilbrigðisþjónustu. Tveir sálfræðingar vinna hjá Fangelsismálastofnun.
Fanginn afplánaði fimm ára dóm fyrir kynferðisbrot í Hrísey sumarið 2015.
FRÉTTABLAÐIÐ/PjETuR
Staðan bágborin að mati dómsmálaráðherra
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, var upphafsmaður sérstakrar umræðu
á þingi í gær um stöðu fanga. Taldi hún alvarlega annmarka á fangelsis-
málum.
„Það vita allir sem fylgjast með þessum málaflokki að það er brýn þörf á
fleiri sálfræðingum í fangelsi. Nú eru aðeins tveir sálfræðingar sem eiga að
sinna landinu öllu og ég hef fyrir því öruggar heimildir að fangar á Akureyri
fái enga slíka þjónustu,“ sagði Birgitta og taldi það sjálfsagðan hlut að sál-
fræðiþjónusta væri hluti af daglegu starfi fangelsisins á Akureyri.
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra segir endurkomutíðni fanga í
íslensk fangelsi vera góða í norrænum samanburði. Hins vegar sé staðan
ekki góð. „Staða geðsjúkra fanga og þeirra sem þurfa á þjónustu geðlækna
að halda er bágborin, það verður bara að segjast eins og er,“ bendir Sigríður
á en segir erfitt að manna stöður sálfræðinga. „Það liggur fyrir að þessa
þjónustu þarf að bæta. Það eru í dag tvö stöðugildi sálfræðinga. Það hefur
verið erfitt að manna þær stöður en Fangelsismálastofnun hefur metið það
sjálf að stór hluti fanga þurfi einhvers konar meðferð ef vel á að vera til að
draga úr endurkomutíðni í fangelsum.“
stjórnsýsla Reykjavíkurborg
greiddi tvær milljónir í fargjöld og
dagpeninga vegna ferðar tíu borgar-
fulltrúa og embættismanna á höfuð-
borgarráðstefnu í Helsinki 16. og 17.
febrúar.
Allir flokkar í borgarstjórn sendu
fulltrúa á ráðstefnuna þar sem
fjallað var um snjallborgir eða Open
cities og aðgerðir í þeim efnum.
Þátttakendur voru borgarstjórar,
borgarfulltrúar og helstu emb-
ættismenn frá höfuðstöðum hinna
Norðurlandanna.
Sigurður Björn Blöndal, formaður
borgarráðs, var í ferðinni ásamt Líf
Magneudóttur, Guðfinnu Jóhönnu
Guðmundsdóttur, Halldóri Auðar
Svanssyni, Heiðu Björgu Hilmis-
dóttur og Kjartani Magnússyni. Þeir
embættismenn sem fóru voru Helga
Björg Ragnarsdóttir, Helga Björk
Laxdal, Hilmar Hlíðar Magnúsarson
og Óskar Jörgen Sandholt. – jhh
Tvær milljónir í
ferð til Helsinki
LA PALMA
Netverð á mann frá kr. 99.995 m.v. 2 fullorða og
2 börn í herbergi. Netverð á mann frá kr. 129.995
m.v. 2 í herbergi.
Hotel La Palma
Princess
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Kanaríeyjan
Frá kr.
99.995
m/allt innifalið
14. mars í 12 nætur
Síðustu
sætin
m/afsl.
Nýr áfangastaður
samgöngur Herjólfur fór fyrstu
ferð sína til Landeyjahafnar frá Vest-
mannaeyjum í gær. Mjög vel hefur
gengið að moka sandi úr hafnar-
kjaftinum svo opna megi höfnina.
Til samanburðar var höfnin opnuð
15. apríl í fyrra og 1. maí árið 2015.
„Þú getur rétt ímyndað þér hvað
við erum ánægð með að hægt sé að
opna höfnina svona snemma,“ sagði
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum. „Menn munu ekki
gera sér grein fyrir því hvað þetta
skiptir miklu máli nema þeir búi í
Eyjum eða reki fyrirtæki á staðnum.
Þetta er bylting fyrir okkur að geta
opnað svo snemma.“
Unnið hefur verið á dýpkunar-
skipinu myrkranna á milli síðustu
daga. Bæði hafa verið notaðar hefð-
bundnar dýpkunaraðferðir en einn-
ig hefur verið dælt niður sjó til að
þyrla upp sandi sem berst svo burt
með hafstraumum. Sú aðferð hefur
gefist mjög vel. – sa
Landeyjahöfn
aldrei opnað
fyrr á árinu
Snemmbúinni opnun Landeyjahafnar
er fagnað í Eyjum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í
Vestmanna-
eyjum.
8 . m a r s 2 0 1 7 m i ð V i K u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
6
-E
0
E
C
1
C
6
6
-D
F
B
0
1
C
6
6
-D
E
7
4
1
C
6
6
-D
D
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K