Fréttablaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 30
mottumars Kynningarblað 8. mars 20176 Vera Einarsdóttir vera@365.is Ef sjúkdómurinn greinist á fyrri stigum er meðferðin einfaldari og horfurnar góðar. Ef hann er hins vegar lengra genginn við greiningu vandast málið. mYND/EYÞÓr Flöguþekjukrabbamein á höfuð- og hálssvæði getur komið fram í radd- böndum, koki, munnholi, tungu- rót, tungu og vörum svo dæmi séu nefnd. Meðalaldur við greiningu er um 60 ár. Yfir 90 prósent sjúklinga hafa reykt. Höfuð- og hálssvæðið er eðli málsins samkvæmt mjög útsett fyrir tóbaksreyk. Ef áfengis hefur auk þess verið neytt í óhófi allt upp í fertugfaldast áhættan á að mynda krabbamein af þessu tagi. Að meðal tali greinast um 20-30 ein- staklingar á ári. „Ef sjúkdómurinn greinist á fyrri stigum er meðferðin einfald- ari og horfurnar góðar. Ef hann er hins vegar lengra genginn við greiningu vandast málið. Með- ferðin verður fjölþættari og kall- ar á samstarf fleiri faggreina,“ segir Arnar. „Fyrst kemur til kasta okkar háls-, nef- og eyrna- skurðlækna en svo getur þurft að kalla til lýtalækna til að endurupp- byggja vefi sem hefur þurft að fjar- lægja. Eins eru krabbameinslækn- ar mikil vægur hluti af teyminu. Þeir beita geislameðferð, með eða án lyfjameðferðar, sem eftirmeð- ferð eða frummeðferð í völdum til- vikum. Í teyminu eru sömuleið- is hjúkrunarfræðingar, næringar- fræðingar og talmeinafræðingar,“ upplýsir Arnar. Meðferðin löng og strembin Þegar sjúkdómurinn er lengra genginn er meðferðin yfirleitt löng og strembin. „Geislameðferðin ein og sér tekur að minnsta kosti sjö vikur. Hún getur reynst sjúkling- um þung enda verið að geisla svæði sem þeir nota til að anda og nær- ast. Margir upplifa svo kyngingar- vandamál, munnþurrk og bragð- skynstruflanir til frambúðar og langflestir megrast.“ En hver eru einkennin? „Það fer eftir því á hvaða svæði sjúkdómur- inn kemur fram. Ef hann er á radd- bandi verður sjúklingurinn hás, ef hann er í koki geta komið fram kyngingarerfiðleikar og stund- um getur birst eymslalaus hnútur á hálsi. Ef hann er í nefholi getur sjúklingur orðið stíflaður og fengið blóðnasir. Sjúkdómurinn getur líka komið fram í munnholi og á vörum og þá sést hann yfirleitt með berum augum. Ef hann er djúpt ofan í kok- inu getur hann hins vegar verið búinn að vaxa talsvert áður en ein- kenna verður vart,“ útskýrir Arnar. Afleiðingarnar fara eftir því hvar sjúkdómurinn kemur fram og hversu langt hann er genginn. „Ef sjúklingur er með útbreitt krabba- mein á raddböndum sem búið er að geisla án árangurs getur þurft að fjarlægja allt barkakýlið og skilja eftir gat á hálsi. Sjúklingurinn missir þá röddina en getur mynd- að hljóð og gert sig skiljanlegan með tungu og kokvöðvum,“ upplýs- ir Arnar en að jafnaði eru gerðar um þrjár slíkar aðgerðir á ári. „Ef krabbamein í slímhúð grefur sig inn í bein getur þurft að taka stór- an hluta af neðri kjálka og byggja hann upp á ný með beini úr fæti, en hvort tveggja hefur eins og gefur að skilja í för með breytt útlit og skert lífsgæði. Það sama á við um margar aðrar birtingarmyndir þessa meins.“ Arnar segir að horfur hjá þeim sem greinast á seinni stigum mættu vera betri. „Krabbameinið getur líka dreift sér til eitla í hálsi en við það versna horfurnar. Ef meinið nær að dreifa sér í lungu og bein er staðan orðin mjög slæm.“ Flestir hætta að reykja Aðspurður segir Arnar alla sjúkl- inga sem greinast með krabba- mein af þessu tagi hvatta til að hætta að reykja og að flestir geri það. „Rannsóknir sýna að ef menn halda áfram eru horfurnar sjálf- krafa 25-30 prósent verri.“ En hvað með munntóbak? „Það veldur óumdeilanlega ertingu á slímhúð. Ekki hefur þó enn verið hægt að sýna fram á sömu tengsl á milli munntóbaks og krabba- meins og reyktóbaks og krabba- meins. Hins vegar má benda á að það tók langan tíma að sýna fram á tengsl reykinga og krabbameins svo auðvitað er best að láta þetta allt saman vera. Það sama á við um rafrettur og aðrar tóbaksvörur enda vitum við ekkert um skaðsemi þeirra til langs tíma. Í dag erum við að meðhöndla sjúklinga sem byrjuðu að reykja fyrir áratugum síðan. Ég vona að við förum ekki að búa til ný vandamál.“ Yfir 90 prósent sjúklinga hafa reykt arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir háls-, nef-, og eyrnalækninga á Landspítalanum, meðhöndlar sjúklinga sem fá flöguþekjukrabbamein á höfuð- og hálssvæði en þau eru í yfir níutíu prósentum tilfella tengd reykingum. Hann segir meðferðina oftar en ekki þunga og lífsgæði þeirra sem greinast skert. Það fari þó eftir því á hvaða stigi sjúkdómurinn greinist. Hann segir flesta hætta að reykja eftir greiningu. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Flott föt - fyrir flottar konur Netverslun á tiskuhus.is Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Alltaf eitthvað nýtt og spennandi 0 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 6 -F E 8 C 1 C 6 6 -F D 5 0 1 C 6 6 -F C 1 4 1 C 6 6 -F A D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.