Fréttablaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 T E M P U R ® O R I G I N A L | T E M P U R ® C L O U D | T E M P U R ® S E N S A T I O N V I Ð R Ý M U M F Y R I R N Ý J U M G E R Ð U M A F T E M P U R D Ý N U M O G S E L J U M E L D R I G E R Ð I R Þ V Í M E Ð 30–50% A F S L Æ T T I R ÝM I N G A R S A L A Daði Freyr Péturs-son hefur undan-farið vekið mikla athygli með því að gera ábreiður af eldri Eurovision-lögum sem hann deilir á Facebook. Hann kveðst hafa gaman af því að gera ábreiður og planið er að gera eitt lag til viðbótar. „Af því að ég er að taka þátt í Söngvakeppninni þá langaði mig að gera þessi „cover“-lög til að vekja á mér athygli og kynna okkur. Það hefur gengið alveg rosalega vel og viðbrögðin við þessu hafa verið miklu meiri en ég þorði að vona. Strax daginn eftir varð þetta algjör sprenging,“ segir Daði sem er búinn að gera ábreiðu af lögunum Gleði- bankinn, Is It True og All Out of Luck. „Ég var svo búinn að lofa að gera eitt í viðbót en ég veit ekki hvort ég kemst í það fyrir helgina. Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvaða lag það verður en ég er búinn að fá fullt af til- lögum inn.“ Aðspurður hvort hann sé forfall- inn Eurovision-aðdáandi segir Daði: „Ekki beint, en ég er alveg týpan sem fer í Eurovision-partí. Ég get samt ekki sagt að ég sé týpan sem fylgist með öllu sem tengist keppninni samt. En það er alltaf skothelt gott kvöld að hitta vini sína til að horfa á Eurovision og fara svo út að dansa.“ Daða hafði aldrei dottið í hug að hann myndi einhvern tíma standa á sviðinu í Söngvakeppninni í von um að komast út í Eurovision. „Nei, en mér hafði alveg dottið í hug að senda inn lag. Mér datt samt ekki í hug að það yrði ég sjálfur sem myndi syngja það. Ég ætlaði ekki upprunalega að syngja þetta lag en þetta þróaðist bara svona og ég sé ekkert eftir að hafa sungið lagið.“ „Devine með Sebastian Tellier,“ segir Daði aðspurður hvert hans uppáhalds Eurovision-lag sé. „Ég held að það sé eina Eurovision-lagið sem ég hef í svona í alvöru hlustað á. Og reyndar hef ég aðeins séð á netinu að fólk er að líkja mínu lagi við hans lag, sem er bara skemmti- legt. Mér þykir mjög gaman að heyra það,“ segir Daði. Ekki dæmigert Eurovision-atriði Það er óhætt að segja að framlag Daða í Söngvakeppninni er ekki hið dæmigerða Eurovision-lag en Daði er viss um að það verði honum til framdráttar. „Ég held að það sjáist alveg í atriðinu okkar að við erum ekki að fara hina klassísku Eurovisi- on-leið. Við erum bara að reyna að hafa þetta skemmtilegt. Sem þetta hefur verið og það er svo gaman að vera í þessu með vinum sínum,“ útskýrir Daði. „Ég hef alveg orðið var við að fólk er að segjast aldrei hafa kosið í Söngvakeppninni áður en það kaus mitt lag. Það er mjög skemmtilegt að heyra það.“ „Þetta eru ekkert prófessjónal dansarar sko. Þetta eru bara vinir mínir,“ segir Daði spurður nánar út í hópinn sem er honum til halds og trausts á sviðinu. „Í hópnum er fólk sem ég hef kynnst í FSU og einn var með mér í grunnskóla. Svo er kærasta mín með mér í þessu, við erum búin að vera saman í sex ár, og svo er litla systir mín í bakröddum.“ En við hverju getur fólk búist við að sjá þegar Daði stígur á svið á laugardaginn? „Atriðið okkar verð- ur alveg svipað og það hefur verið hingað til, en þetta kemur allt betur í ljós á föstudaginn. Við erum með nokkrar hugmyndir sem við ætlum að prófa. Þetta er náttúrulega stærra svið og meiri möguleikar,“ segir Daði um kvöldið sem verður haldið í Laugardalshöllinni. Daði kveðst ekki vera stressaður fyrir kvöldinu, alla vega ekki enn. „Nei, en ég var samt svolítið stressað- ur fyrir undankvöldinu um seinustu helgi því ég vissi ekkert hvernig fólk myndi taka í þetta. En svo þegar ég sá að fólki fannst þetta skemmtilegt, þá var þetta bara auðvelt. En það kemur örugglega eitthvað stress á laugar- daginn. Við erum líka síðust á svið, þannig að það á eftir að byggjast upp eitthvað stress þegar allir hinir eru að flytja sín atriði.“ Fram undan hjá Daða er svo að ljúka BA-náminu sem hann stundar við dBs Music-skólann í Berlín. „Ég á tvo mánuði eftir af náminu. Ég er bara að fara á fullt að skrifa ritgerðir og klára verkefni. En ég veit ekki alveg hvernig þetta fer ef við vinnum þessa keppni, það er bara seinni tíma v a n d a m á l , “ s e g i r D a ð i sem stefnir svo á að koma sér inn í kvik- myndatónlist í náinni fram- tíð. gudny- hronn@365.is Ekki beint forfallinn Eurovision aðdáandi Daði Freyr Pétursson keppir á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar ásamt sveitinni Gagnamagnið. Daði kveðst ekki vera orðinn stressað- ur en grunar að stressið muni læðast að honum þegar líður á kvöldið. Daði og Gagnamagnið keppa með fremur óvenjulegt atriði í Söngvakeppninni. MyND/MUMMI Lú Við Erum líka síðust á sVið, þannig að það á Eftir að byggjast upp EitthVað strEss þEgar allir hinir Eru að flytja sín atriði.intellecta.is RÁÐNINGAR 8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r26 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð 0 8 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 6 -E F B C 1 C 6 6 -E E 8 0 1 C 6 6 -E D 4 4 1 C 6 6 -E C 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 7 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.