Fréttablaðið - 08.03.2017, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
T E M P U R ® O R I G I N A L | T E M P U R ® C L O U D | T E M P U R ® S E N S A T I O N
V I Ð R Ý M U M F Y R I R N Ý J U M G E R Ð U M
A F T E M P U R D Ý N U M O G S E L J U M
E L D R I G E R Ð I R Þ V Í M E Ð
30–50%
A F S L Æ T T I
R ÝM I N G A R
S A L A
Daði Freyr Péturs-son hefur undan-farið vekið mikla athygli með því að gera ábreiður af eldri Eurovision-lögum
sem hann deilir á Facebook. Hann
kveðst hafa gaman af því að gera
ábreiður og planið er að gera eitt lag
til viðbótar. „Af því að ég er að taka
þátt í Söngvakeppninni þá langaði
mig að gera þessi „cover“-lög til að
vekja á mér athygli og kynna okkur.
Það hefur gengið alveg rosalega vel
og viðbrögðin við þessu hafa verið
miklu meiri en ég þorði að vona.
Strax daginn eftir varð þetta algjör
sprenging,“ segir Daði sem er búinn
að gera ábreiðu af lögunum Gleði-
bankinn, Is It True og All Out of Luck.
„Ég var svo búinn að lofa að gera
eitt í viðbót en ég veit ekki hvort ég
kemst í það fyrir helgina. Ég er ekki
alveg búinn að ákveða hvaða lag það
verður en ég er búinn að fá fullt af til-
lögum inn.“
Aðspurður hvort hann sé forfall-
inn Eurovision-aðdáandi segir Daði:
„Ekki beint, en ég er alveg týpan sem
fer í Eurovision-partí. Ég get samt
ekki sagt að ég sé týpan sem fylgist
með öllu sem tengist keppninni
samt. En það er alltaf skothelt gott
kvöld að hitta vini sína til að horfa á
Eurovision og fara svo út að dansa.“
Daða hafði aldrei dottið í hug að
hann myndi einhvern tíma standa á
sviðinu í Söngvakeppninni í von um
að komast út í Eurovision. „Nei, en
mér hafði alveg dottið í hug að senda
inn lag. Mér datt samt ekki í hug að
það yrði ég sjálfur sem myndi syngja
það. Ég ætlaði ekki upprunalega að
syngja þetta lag en þetta þróaðist
bara svona og ég sé ekkert eftir að
hafa sungið lagið.“
„Devine með Sebastian Tellier,“
segir Daði aðspurður hvert hans
uppáhalds Eurovision-lag sé. „Ég
held að það sé eina Eurovision-lagið
sem ég hef í svona í alvöru hlustað
á. Og reyndar hef ég aðeins séð á
netinu að fólk er að líkja mínu lagi
við hans lag, sem er bara skemmti-
legt. Mér þykir mjög gaman að heyra
það,“ segir Daði.
Ekki dæmigert Eurovision-atriði
Það er óhætt að segja að framlag
Daða í Söngvakeppninni er ekki hið
dæmigerða Eurovision-lag en Daði
er viss um að það verði honum til
framdráttar. „Ég held að það sjáist
alveg í atriðinu okkar að við erum
ekki að fara hina klassísku Eurovisi-
on-leið. Við erum bara að reyna að
hafa þetta skemmtilegt. Sem þetta
hefur verið og það er svo gaman
að vera í þessu með vinum sínum,“
útskýrir Daði. „Ég hef alveg orðið
var við að fólk er að segjast aldrei
hafa kosið í Söngvakeppninni áður
en það kaus mitt lag. Það er mjög
skemmtilegt að heyra það.“
„Þetta eru ekkert prófessjónal
dansarar sko. Þetta eru bara vinir
mínir,“ segir Daði spurður nánar út
í hópinn sem er honum
til halds og trausts á
sviðinu. „Í hópnum
er fólk sem ég hef
kynnst í FSU og einn var með mér í
grunnskóla. Svo er kærasta mín með
mér í þessu, við erum búin að vera
saman í sex ár, og svo er litla systir
mín í bakröddum.“
En við hverju getur fólk búist
við að sjá þegar Daði stígur á svið á
laugardaginn? „Atriðið okkar verð-
ur alveg svipað og það hefur verið
hingað til, en þetta kemur allt betur
í ljós á föstudaginn. Við erum með
nokkrar hugmyndir sem við ætlum
að prófa. Þetta er náttúrulega stærra
svið og meiri möguleikar,“ segir
Daði um kvöldið sem verður haldið
í Laugardalshöllinni.
Daði kveðst ekki vera stressaður
fyrir kvöldinu, alla vega ekki enn.
„Nei, en ég var samt svolítið stressað-
ur fyrir undankvöldinu um seinustu
helgi því ég vissi ekkert hvernig fólk
myndi taka í þetta. En svo þegar ég sá
að fólki fannst þetta skemmtilegt, þá
var þetta bara auðvelt. En það kemur
örugglega eitthvað stress á laugar-
daginn. Við erum líka síðust á svið,
þannig að það á eftir að byggjast upp
eitthvað stress þegar allir hinir eru
að flytja sín atriði.“
Fram undan hjá Daða er svo
að ljúka BA-náminu sem hann
stundar við dBs Music-skólann
í Berlín. „Ég á tvo mánuði eftir
af náminu. Ég er bara að fara
á fullt að skrifa ritgerðir og
klára verkefni. En ég
veit ekki alveg
hvernig þetta fer
ef við vinnum
þessa keppni,
það er bara
seinni tíma
v a n d a m á l , “
s e g i r D a ð i
sem stefnir
svo á að koma
sér inn í kvik-
myndatónlist
í náinni fram-
tíð.
gudny-
hronn@365.is
Ekki beint forfallinn
Eurovision aðdáandi
Daði Freyr Pétursson keppir á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar
ásamt sveitinni Gagnamagnið. Daði kveðst ekki vera orðinn stressað-
ur en grunar að stressið muni læðast að honum þegar líður á kvöldið.
Daði og Gagnamagnið keppa með fremur óvenjulegt atriði í Söngvakeppninni. MyND/MUMMI Lú
Við
Erum
líka síðust á
sVið, þannig
að það á Eftir
að byggjast
upp EitthVað
strEss þEgar
allir hinir
Eru að flytja
sín atriði.intellecta.is
RÁÐNINGAR
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r26 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
6
-E
F
B
C
1
C
6
6
-E
E
8
0
1
C
6
6
-E
D
4
4
1
C
6
6
-E
C
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K