Fréttablaðið - 08.03.2017, Side 30
mottumars Kynningarblað
8. mars 20176
Vera Einarsdóttir
vera@365.is
Ef sjúkdómurinn greinist á fyrri stigum er meðferðin einfaldari og horfurnar góðar. Ef hann er hins vegar lengra genginn við greiningu vandast málið. mYND/EYÞÓr
Flöguþekjukrabbamein á höfuð- og
hálssvæði getur komið fram í radd-
böndum, koki, munnholi, tungu-
rót, tungu og vörum svo dæmi séu
nefnd. Meðalaldur við greiningu er
um 60 ár. Yfir 90 prósent sjúklinga
hafa reykt. Höfuð- og hálssvæðið er
eðli málsins samkvæmt mjög útsett
fyrir tóbaksreyk. Ef áfengis hefur
auk þess verið neytt í óhófi allt
upp í fertugfaldast áhættan á að
mynda krabbamein af þessu tagi.
Að meðal tali greinast um 20-30 ein-
staklingar á ári.
„Ef sjúkdómurinn greinist á
fyrri stigum er meðferðin einfald-
ari og horfurnar góðar. Ef hann
er hins vegar lengra genginn við
greiningu vandast málið. Með-
ferðin verður fjölþættari og kall-
ar á samstarf fleiri faggreina,“
segir Arnar. „Fyrst kemur til
kasta okkar háls-, nef- og eyrna-
skurðlækna en svo getur þurft að
kalla til lýtalækna til að endurupp-
byggja vefi sem hefur þurft að fjar-
lægja. Eins eru krabbameinslækn-
ar mikil vægur hluti af teyminu.
Þeir beita geislameðferð, með eða
án lyfjameðferðar, sem eftirmeð-
ferð eða frummeðferð í völdum til-
vikum. Í teyminu eru sömuleið-
is hjúkrunarfræðingar, næringar-
fræðingar og talmeinafræðingar,“
upplýsir Arnar.
Meðferðin löng og strembin
Þegar sjúkdómurinn er lengra
genginn er meðferðin yfirleitt löng
og strembin. „Geislameðferðin ein
og sér tekur að minnsta kosti sjö
vikur. Hún getur reynst sjúkling-
um þung enda verið að geisla svæði
sem þeir nota til að anda og nær-
ast. Margir upplifa svo kyngingar-
vandamál, munnþurrk og bragð-
skynstruflanir til frambúðar og
langflestir megrast.“
En hver eru einkennin? „Það fer
eftir því á hvaða svæði sjúkdómur-
inn kemur fram. Ef hann er á radd-
bandi verður sjúklingurinn hás, ef
hann er í koki geta komið fram
kyngingarerfiðleikar og stund-
um getur birst eymslalaus hnútur
á hálsi. Ef hann er í nefholi getur
sjúklingur orðið stíflaður og fengið
blóðnasir. Sjúkdómurinn getur líka
komið fram í munnholi og á vörum
og þá sést hann yfirleitt með berum
augum. Ef hann er djúpt ofan í kok-
inu getur hann hins vegar verið
búinn að vaxa talsvert áður en ein-
kenna verður vart,“ útskýrir Arnar.
Afleiðingarnar fara eftir því
hvar sjúkdómurinn kemur fram og
hversu langt hann er genginn. „Ef
sjúklingur er með útbreitt krabba-
mein á raddböndum sem búið er að
geisla án árangurs getur þurft að
fjarlægja allt barkakýlið og skilja
eftir gat á hálsi. Sjúklingurinn
missir þá röddina en getur mynd-
að hljóð og gert sig skiljanlegan
með tungu og kokvöðvum,“ upplýs-
ir Arnar en að jafnaði eru gerðar
um þrjár slíkar aðgerðir á ári. „Ef
krabbamein í slímhúð grefur sig
inn í bein getur þurft að taka stór-
an hluta af neðri kjálka og byggja
hann upp á ný með beini úr fæti, en
hvort tveggja hefur eins og gefur
að skilja í för með breytt útlit og
skert lífsgæði. Það sama á við um
margar aðrar birtingarmyndir
þessa meins.“
Arnar segir að horfur hjá þeim
sem greinast á seinni stigum
mættu vera betri. „Krabbameinið
getur líka dreift sér til eitla í hálsi
en við það versna horfurnar. Ef
meinið nær að dreifa sér í lungu og
bein er staðan orðin mjög slæm.“
Flestir hætta að reykja
Aðspurður segir Arnar alla sjúkl-
inga sem greinast með krabba-
mein af þessu tagi hvatta til að
hætta að reykja og að flestir geri
það. „Rannsóknir sýna að ef menn
halda áfram eru horfurnar sjálf-
krafa 25-30 prósent verri.“
En hvað með munntóbak? „Það
veldur óumdeilanlega ertingu á
slímhúð. Ekki hefur þó enn verið
hægt að sýna fram á sömu tengsl
á milli munntóbaks og krabba-
meins og reyktóbaks og krabba-
meins. Hins vegar má benda á að
það tók langan tíma að sýna fram
á tengsl reykinga og krabbameins
svo auðvitað er best að láta þetta
allt saman vera. Það sama á við
um rafrettur og aðrar tóbaksvörur
enda vitum við ekkert um skaðsemi
þeirra til langs tíma. Í dag erum
við að meðhöndla sjúklinga sem
byrjuðu að reykja fyrir áratugum
síðan. Ég vona að við förum ekki
að búa til ný vandamál.“
Yfir 90 prósent
sjúklinga hafa reykt
arnar Þór Guðjónsson, yfirlæknir háls-, nef-, og eyrnalækninga á Landspítalanum,
meðhöndlar sjúklinga sem fá flöguþekjukrabbamein á höfuð- og hálssvæði en þau
eru í yfir níutíu prósentum tilfella tengd reykingum. Hann segir meðferðina oftar en
ekki þunga og lífsgæði þeirra sem greinast skert. Það fari þó eftir því á hvaða stigi
sjúkdómurinn greinist. Hann segir flesta hætta að reykja eftir greiningu.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Flott föt - fyrir flottar konur
Netverslun á tiskuhus.is
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
6
-F
E
8
C
1
C
6
6
-F
D
5
0
1
C
6
6
-F
C
1
4
1
C
6
6
-F
A
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K