Fréttablaðið - 08.03.2017, Síða 4
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.FIAT.IS
4X4 FJÓRHJÓLADRIFINN VERÐ FRÁ 4.690.000 kr.
1.4 BENSÍN 170 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTUR
2.0 DÍSEL 140 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTUR VERÐ FRÁ 4.890.000 kr.
4X2 FRAMHJÓLADRIFINN VERÐ FRÁ 3.990.000 kr.
1.6 DÍSEL 120 HÖ. SJÁLFSKIPTUR
KOMDU OG SKOÐAÐU NÝJAN
OG GLÆSILEGAN
ÁRA5ÁBYRGÐ
fiat.is
STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, hefur lagt til að
starfandi framkvæmdastjórn flokks
síns fari fram á leiðréttingu og afsök-
unarbeiðni frá Evrópuráðinu vegna
skýrslu nefndar ráðsins gegn kyn-
þáttafordómum og umburðarleysi
(ECRI) um Ísland.
Í skýrslunni er því meðal annars
haldið fram að í sveitarstjórnar-
kosningum ársins 2014 hafi Fram-
sóknarflokkurinn gert andstöðu við
mosku og múslima að sínum helstu
baráttumálum. Kosningabaráttan
hafi einkennst af æstri orðræðu
gegn múslimum.
Í pistli sínum á Facebook skrifaði
Sigmundur að vel hafi verið tekið
í tillöguna. „Það hlýtur að vera
óásættanlegt fyrir Framsóknar-
flokkinn að þúsundir saklausra
flokksmanna séu sakaðir um „hat-
ursorðræðu“ í alþjóðlegri skýrslu,“
skrifar hann jafnframt.
Þá skrifar Sigmundur að svo virð-
ist sem heimildir skýrsluhöfunda
virðist eingöngu byggjast á slúðri
og skrifum hatursmanna flokksins
í dreifibréfi.
„Greinargerðin er furðulegt fyrir-
bæri. Einstaklega illa unnin og illa
skrifuð. Ólíklegt er að nemandi í
framhaldsskóla kæmist upp með
sambærileg vinnubrögð við rit-
gerðarskrif,“ skrifar Sigmundur.
Þá skrifar Sigmundur að ef rétt
reynist að einhverjir í íslenska
stjórnkerfinu eða borgarstjórn hafi
lagt blessun sína yfir skýrsluna sé
það alvarlegt mál sem sé ekki með
nokkru móti hægt að láta óátalið.
Nefndin sjálf skrifar Sigmundur
að sé samsett af einum fulltrúa
hvers aðildarríkis Evrópuráðsins.
„Allt virðist það vera fólk með
sömu pólitíska sýn á málaflokkinn.“
Skýrslur hennar virðist svo
unnar að nokkrir nefndarmanna
fari til eins lands í einu, „spjalli við
heimamenn sem hafa sömu sýn á
hlutina og nefndarmennirnir sjálfir
og skrifi svo skýrslu upp úr hvaða
sneplum sem eða slúðri sem dugar
til að réttlæta fordóma nefndar-
manna“. – þea
Evrópuráðið biðjist forláts á að tengja Framsókn við hatursumræðu
Það hlýtur að vera
óásættanlegt fyrir
Framsóknarflokkinn að
þúsundir saklausra flokks-
manna séu sakaðir um
„hatursorðræðu“ í
alþjóðlegri
skýrslu.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
þingmaður
FERÐAÞJÓNUSTA Um 148 þúsund
erlendir ferðamenn fóru frá Íslandi
í febrúar samkvæmt talningu Ferða-
málastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Það eru 47.600 fleiri en í febrúar á
síðasta ári.
Aukningin nemur 47 prósentum
milli ára. Frá áramótum hafa 284
þúsund erlendir ferðamenn farið úr
landi um Keflavíkurflugvöll sem er
59 prósenta aukning miðað við sama
tímabil í fyrra.
Bretar og Bandaríkjamenn voru
um helmingur ferðamanna en Bretar
voru 32 prósent og Bandaríkjamenn
19,5 prósent af heildarfjölda. Banda-
ríkjamönnum fjölgaði langmest milli
ára í febrúar eða um 77 prósent. – jhh
Sextíu prósent
fleiri ferðamenn
það sem af er ári
FASTEIGNIR Tilboð M3 Capital ehf. í
Kirkjuhúsið var staðgreiðslutilboð
en ekki hefur fengist upp gefið hvað
tilboðið hljóðaði upp á. Kirkjuráð
hafnaði því, og reyndar öllum
öðrum tilboðum, á þeirri forsendu
að þau uppfylltu ekki væntingar.
Þegar húsnæðið við Laugaveg 31
var auglýst til sölu var búist við að
eignin færi á yfir milljarð.
Sverrir Kristinsson, fasteigna-
sali hjá Eignamiðlun, sagði þá að
ekki væri hægt að áætla verðið út
frá meðalverði á atvinnuhúsnæði í
miðbænum. „Þetta er eitt allra fal-
legasta húsið í miðborg Reykjavíkur
og er ein af þessum gull eignum í
bænum – þetta fer í hæsta flokk,“
sagði Sverrir í lok janúar þegar húsið
var auglýst til sölu.
Lengi hefur verið rætt innan raða
kirkjunnar að selja húsið en það er
1.542 fermetrar, á fjórum hæðum
með kjallara og komið að viðhaldi.
Klofningur varð í atkvæða-
greiðslu um söluna í kirkjuráði
síðastliðinn föstudag. Þrír af fimm
ráðsmönnum greiddu tillögu
Agnesar Sigurðardóttur biskups
atkvæði, en hún er forseti ráðsins.
Gísli Gunnarsson sat hjá og Stefán
Magnússon var á móti.
Stefán segir að tilboðið hafi verið
gott og engin ástæða til að hafna því.
„Þetta mál blasir við mér þannig
að það er búið að tala lengi um að
selja eignina og kirkjuráð ákvað
í janúar að auglýsa hana til sölu.
Að sjálfsögðu var það bundið því
að það kæmi ásættanlegt tilboð.
Það tilboð sem var hæst var mjög
ásættanlegt, gott og ástæða til að
taka því,“ segir hann.
Stefán vildi taka tilboðinu og var
sá eini sem hafði þann vilja. „Það er
miður að þetta fór svona.“
benediktboas@365.is
Bauðst staðgreiðsla fyrir húsið
Stefán Magnús son, sr. El ín borg Gísla dótt ir, Agnes Sig urðardótt ir, Svana Helen Björns dótt ir og sr. Gísli Gunn ars son eru í kirkjuráði.
MYND/KIRKJ AN
Það tilboð sem var
hæst var mjög
ásættanlegt, gott og ástæða til
að taka því.
Stefán Magnússon,
fulltrúi leikmanna í kirkjuráði
REYKJAVÍK Síðasta tillaga Hildar
Sverrisdóttur sem borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins var felld í
borgarstjórn í gær. Hildur er sest á
Alþingi.
Hildur lagði til að borgarstjórn
beindi þeim tilmælum til Alþingis
að hafa í huga að áfengisverslun
styddi við markmið aðalskipulags
Reykjavíkur um sjálfbærari hverfi.
Hildur segir áfengi algenga
neysluvöru. „Þar sem meirihluti
borgarbúa getur ekki nálgast þá
neysluvöru innan síns hverfis, eða í
göngufæri, vinnur sá punktur gegn
þessu markmiði aðalskipulags,“
sagði Hildur. – þea
Felldu síðustu
tillögu Hildar
Hildur
Sverrisdóttir
þingmaður
Hæsta tilboð í Kirkju-
húsið hljóðaði upp á
staðgreiðslu. Kirkjuráð
hafnaði því sem og
öllum öðrum. Heldur
starf kirkjunnar því
áfram á Laugavegi. Einn
meðlimur kirkjuráðs
segir miður að söluferlið
hafi farið svona.
Biskupsstofa flutti á Laugaveg 31
þegar Kristnisjóður keypti húsið 1994
l Kirkjuhúsið - Laugavegur 31
l Kaupmaðurinn Marteinn Einars-
son lét byggja húsið árið 1928.
l Húsið er nú 1.542 fermetrar, á
fjórum hæðum með kjallara.
l Útlit hússins breyttist nokkuð
þegar Alþýðubankinn keypti það
árið 1972.
l Í skýrslu kirkjuráðs fyrir Kirkju-
þing árið 2007er fyrst talað um
að húsið sé óhentugt fyrir starf-
semina.
l Í greinagerð kirkjuráðs í janúar er
bókað að betra sé að binda frekar
fé í eignum sem nýtast í kirkjulegu
starfi en leysa þörf fyrir skrifstofu-
rými biskupsembættisins.
8 . M A R S 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
6
-F
4
A
C
1
C
6
6
-F
3
7
0
1
C
6
6
-F
2
3
4
1
C
6
6
-F
0
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K