Fréttablaðið - 08.03.2017, Side 11
Árið 1910 var ákveðið á þingi sósíalískra kvenna í Kaup-mannahöfn að gera 8. mars
að alþjóðlegum baráttudegi kvenna.
Löngu síðar tóku Sameinuðu þjóð-
irnar daginn upp á sína arma og nú
er hann notaður til ýmiss konar bar-
áttu fyrir mannréttindum kvenna
um allan heim.
Undanfarin átta ár hefur Ísland
verið í efsta sæti jafnréttislista
World Economic Forum. Það sem
er mælt er kynjabilið á sviði mennt-
unar, heilbrigðis, pólitískra valda og
stöðu á vinnumarkaði. Við getum
hælt okkur af því að hafa stigið stór
skref hvað varðar pólitíska þátt-
töku kvenna á undanförnum 35
árum eða svo, en konur eru nú 44%
sveitarstjórnarmanna og tæp 48%
þingmanna. Menntun kvenna hefur
aukist gríðar lega, svo mikið að það
er fremur áhyggjuefni hve fáir karlar
ljúka háskólanámi. Staðan er þann-
ig nú að 48% kvenna á aldrinum
25-64 ára eru með háskólamenntun
en aðeins 33% karla. Aðgangur að
heilbrigðisþjónustu er nokkuð jafn
milli kvenna og karla þótt við mætt-
um ræða meira um þann mun sem
er á lífsstíl og sjúkdómum kvenna
og karla og greina hann. Á fjórða
sviðinu sem WEF skoðar, vinnu-
markaðnum og hagkerfinu, eru
margir pottar brotnir og þar hallar
verulega á konur.
Skoðum allt kerfið
Á ráðstefnu sem haldin var í Ósló
í febrúar síðastliðnum kom fram
að litlar breytingar hafa orðið á
jafnrétti kynjanna á norrænum
vinnumarkaði um árabil. Vinnu-
markaðurinn er enn jafn kynskiptur
og hann var fyrir áratugum, karlar
stýra og stjórna miklum meiri-
hluta fyrirtækja og hafa mikil völd.
Ísland og Noregur skera sig þó úr
hvað varðar þau fyrirtæki sem falla
undir lögin um kvóta í stjórnum
fyrirtækja. Launamunur kynjanna
haggast lítið (hvað sem hver segir)
en hann felst ekki aðeins í því að
fólki sem vinnur jafn verðmæt störf
sé mismunað eftir kyni heldur einn-
ig í því hvernig störf eru metin. Þau
störf sem fluttust út af heimilunum
endur fyrir löngu eru enn metin til
færri fiska en þau sem t.d. tengjast
vélum að ekki sé nú talað um pen-
inga. Verðmætamat samfélagsins
elur á launamisrétti.
Einn fyrirlesara á ráðstefnunni
í Ósló, Lynn Roseberry, sagði að
tækin sem við værum að nota,
t.d. kynjasamþætting, starfs- og
launaviðtöl dygðu skammt vegna
þess hve rótgróið kynjakerfið er í
hugum okkar. Bara nafn, kvenkyns
eða karlkyns, skapar strax ákveðin
hugrenningatengsl. Það þarf að
horfa á myndina í heild, sagði Rose-
berry, breyta hugsunarhættinum
með því að skoða allt kerfið. Byrja
á uppeldi barna, endurmennta
kennara, skoða námsefni í skólum,
efla jafnréttisráðgjöf, stunda rann-
sóknir og endurskoða hvernig fólk
er ráðið í störf. Svo væri það félags-
lega hliðin sem skipti miklu máli.
Fæðingarorlof, lífeyrisréttindi,
skattar, leik- og grunnskólar, allt er
þetta mikilvægt við að jafna stöðu
kynjanna. Hún sagði að það væri
eftir miklu að slægjast fyrir vinnu-
markaðinn. Meiri fjölbreytni, meiri
nýsköpun og betri nýting á mann-
Breytum
hugarfarinu – og
kynjakerfinu
Kristín
Ástgeirsdóttir
framkvæmda-
stýra Jafnréttis-
stofu
auðnum þýðir öflugra atvinnulíf.
Þetta þurfum við að hafa í huga við
lögleiðingu jafnlaunastaðalsins, fólk
þarf að skilja hvers vegna er nauð-
synlegt að grípa til aðgerða til að
útrýma kynjamisrétti.
Félagslega kerfið er mikilvægt
Það er vert að taka sérstaklega
undir þau orð Roseberry hve mikil-
vægt félagslega kerfið er. Góðir og
vel mannaðir leik- og grunnskólar,
samfelldur skóladagur, fæðingar-
orlof sem bæði feður og mæður geta
nýtt sér og jöfn skipting heimilis-
starfa. Allt er þetta mikilvægt. Við
þurfum líka að ganga á hólm við
(kynjaða) aldursfordóma, bæði til
að gefa þeim sem vilja vinna lengur
tækifæri til þess og til að nýta mann-
auðinn betur. Það þarf að jafna líf-
eyrisréttindi kvenna og karla en úti
í Evrópu er mikil umræða um þau
mál og bent á sívaxandi hóp fátækra
kvenna sem hefur lélegan lífeyri í
ellinni.
Átta ár á toppnum, en það er svo
sannarlega af nógu að taka við að
breyta kynjakerfinu, jafna kjörin
og tryggja öllum mannréttindi og
viðunandi lífsgæði. Takið þátt í við-
burðum dagsins og eflum baráttu-
andann.
Tæki
Tæki færi
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Þurrkari
Gufuþétting, enginn barki.
Sjálfhreinsandi rakaþéttir.
Fullt verð: 149.900 kr.
Tækifærisverð: WTW 874B9SN
109.900 kr.
A 9
kg
Þvottavél
Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus
mótor með 10 ára ábyrgð.
Fullt verð: 119.900 kr.
Tækifærisverð: WAT 284B9SN
87.900 kr.
A 9
kg
Náttúrulegur
sætugjafi
Nýtt
og ljúffengt
skyr með
lakkrísbragði
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M i ð V i k u D A G u R 8 . M A R s 2 0 1 7
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
7
-0
8
6
C
1
C
6
7
-0
7
3
0
1
C
6
7
-0
5
F
4
1
C
6
7
-0
4
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K