Fréttablaðið - 08.03.2017, Síða 14
1700 Tugir fiskibáta farast á fáum klukkustundum í „hastarlegu og
hræðilegu stormviðri af útsuðri“ eins og segir í Vallaannál. Mann-
tjónið er langmest við Reykjanesskaga. Alls drukkna 136 menn.
1843 Alþingi er endurreist með tilskipun konungs. Starfsemi þess
hefur legið niðri í rúma fjóra áratugi. Þingið kemur aftur saman
1. júlí 1845.
1868 Jón Thoroddsen, sýslumaður og skáld, deyr 49 ára. Hann
er þekktur fyrir skáldsögurnar Pilt og stúlku og Mann og konu en
einnig fyrir kvæði sín.
1927 Þess er minnst víða á Austurlandi að öld var liðin frá fæð-
ingu Páls Ólafssonar skálds.
1937 Fyrsta ópera sem tekin hefur verið til sýningar á Íslandi, Syst-
irin frá Prag eftir Wenzel Müller, er frumsýnd í Iðnó.
1944 Alþingi afgreiðir frumvarp um stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ís-
land, en þjóðaratkvæðagreiðsla um hana fer fram 20.-23. maí 1944.
1978 Frímerki með mynd af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur er gefið út á
alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Þetta
er fyrsta íslenska frímerkið með
mynd af nafngreindri konu.
1983 Staðfest eru lög um að Ó,
Guðs vors lands sé þjóðsöngur
Íslendinga og að hann sé eign ís-
lensku þjóðarinnar.
Merkisatburðir
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Eiríkur Þorgeirsson
Túnsbergi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
6. mars. Útförin fer fram frá Hrunakirkju
laugardaginn 11. mars kl. 14.00.
Sigríður Eiríksdóttir
Gunnar Kristinn Eiríksson
Jóhann Unnar Guðmundsson
Sigurður Hans Jónsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Jóhannes Tryggvason
Dengsi,
Aðallandi 2, Reykjavík,
lést á Landspítalanum laugardaginn
4. mars. Útför hans fer fram frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. mars klukkan 13.
Margrét Kristinsdóttir
Sveinbjörn Jóhannesson Linda Mjöll Gunnarsdóttir
Ína Rós Jóhannesdóttir Davíð Kristjón Jónsson
Karólína Jóhannesdóttir Stefan Weber
Kristín D. Jóhannesdóttir Magnús Árni Skúlason
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Karólína Hlíðdal
andaðist 6. mars sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Þorvaldur Hlíðdal Þórðarson Sigurlaug Anna Auðunsdóttir
Jóhannes Þórðarson Arndís lnga Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
Fjóla Björgvinsdóttir
frá Miðhúsum, Djúpavogi,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Siglufirði, þann 6. mars. Hún verður
jarðsett frá Ólafsfjarðarkirkju
laugardaginn 11. mars kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhannes Jóhannesson, Anna Rós Jóhannesdóttir,
Hugrún Jóhannesdóttir.
Innilegar þakkir fyrir samúð,
hlýhug og góðar kveðjur vegna
fráfalls og útfarar bróður okkar,
Jónasar Inga Árnasonar
Hjallalundi 20, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heimaþjónustu B og Heimahjúkrunar
á Akureyri.
Jóhannes Árnason
Sigurður Kristinsson
og fjölskyldur.
Móðir okkar,
Jórunn Viðar
tónskáld,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
mánudaginn 13. mars kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lárus, Katrín og Lovísa Fjeldsted
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Bára N. Guðmundsdóttir
lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsi
miðvikudaginn 1. mars 2017. Útförin fer
fram frá Seljakirkju föstudaginn 10. mars
klukkan 13.00.
Sigurður V. Ólafsson
Svanhildur N. Erlingsd.
Sigurður H. Einarsson Hrafnhildur S. Sigurðardóttir
Eyjólfur Sigurðsson Indíana G. Eybergsdóttir
Klara Ó. Sigurðardóttir
Laufey Karlsdóttir
Helga Sigurðardóttir Ásberg M. Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Áskell Torfi Bjarnason
verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju
laugardaginn 11. mars kl. 14.00.
Anna Guðný Jóhannsdóttir
Ásgeir Arngrímsson
Árni Áskelsson Jóhanna Marín Jónsdóttir
Bjarni Áskelsson Ingibjörg H. Sigurðardóttir
Guðmundur S. Áskelsson Þóra Bjarnadóttir
Guðni Torfi Áskelsson Júlíana Hilmisdóttir
Gestur Áskelsson Sigríður Kjartansdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir var fyrsta
nafngreinda konan sem prýddi
íslenskt frímerki.
Í dag halda Stígamót upp á baráttudag
kvenna og um leið 27 ára afmæli sitt.
Samtökin hófu starfsemi sína á þessum
degi árið 1990. Haldið verður upp á
afmælið með sama hætti og venjulega,
og þó.
„Það er alltaf opið hús hjá okkur frá
fjögur til sex. Þar verður allt okkar vina-
fólk og velunnarar. Við erum að opna
heimili okkar fyrir þeim sem vilja fagna
með okkur.
Við höfum oftast haldið blaðamanna-
fund þennan dag og kynnt ársskýrsluna
okkar með niðurstöðum liðins árs en sú
sem sá um tölfræðihlutann í ár slasaði
sig því miður, svo okkur seinkar og við
munum kynna skýrsluna sextánda mars
og halda fjölmiðlafundinn þá,“ segir
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.
Það er ýmislegt fram undan í því góða
starfi sem er sinnt hjá Stígamótum.
„Það er alltaf eitthvað fram undan hjá
okkur – alþjóðastarfið er fyrirferðar-
mikið. Við erum meðal annars að fara að
halda norræna ráðstefnu hérna heima
í haust ásamt Kvennaathvarfinu, þetta
verður tvö til þrjú hundruð manna ráð-
stefna. Það er vegna þess að við erum
hluti af Norrænu kvennaathvarfahreyf-
ingunni. Þessi ráðstefna verður hér á
landi í fjórða skiptið og við munum
vanda okkur eins og við framast getum.
Við erum líka að auglýsa eftir fólki
því að það varð sprenging í aðsókn eftir
að við fórum í fjáröflunar- og vitundar-
vakningarátakið okkar síðasta haust.
Það gekk nógu vel til þess að við getum
fjölgað í starfsliðinu, en það kom okkur
á óvart hversu gífurlega aðsóknin jókst
í kjölfar þessarar umfjöllunar. En við
förum betur yfir það þegar ársskýrslan
verður kynnt.
Við erum líka að skilgreina áherslu-
mál fram undan og eitt af því sem okkur
langar að vinna meira með er unglingar
– hvers kyns kynferðisofbeldi gagnvart
unglingum, ekki síst gagnvart þeim ungl-
ingum sem eru ekki orðnir átján ára og
geta þannig ekki sótt sér hjálp án þess að
foreldrar og barnaverndaryfirvöld þurfi
að vita af því, sem verður svo til þess að
þau sækja sér ekki hjálp. Þetta eru svona
vangaveltur sem við erum með. Það þarf
að skoða það og ræða hvernig við getum
leyst það.“
Húsið verður opnað klukkan fjögur og
eru allir velkomnir í kaffi, spjall og kruð-
erí. stefanthor@frettabladid.is
Stígamót fagna afmæli
og baráttudegi kvenna
Á þessum degi fyrir 27 árum voru samtökin Stígamót stofnuð og verður fagnað með
opnu húsi þar sem boðið verður upp á kaffi og með því. Ýmislegt er fram undan hjá Stíga-
mótum, til að mynda norræn ráðstefna sem verður haldin hér á landi og fleira.
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. FréttaBlaðið/GVa
Við erum að opna
heimili okkar fyrir
þeim sem vilja fagna með okkur.
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r14 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
6
-E
F
B
C
1
C
6
6
-E
E
8
0
1
C
6
6
-E
D
4
4
1
C
6
6
-E
C
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K