Fréttablaðið - 08.03.2017, Page 18
Costco á Íslandi ætlar ekki að tak-
marka fjölda þeirra sem geta keypt
einstaklings- eða fyrirtækjaaðild að
vöruhúsi bandaríska fyrirtækisins í
Kauptúni í Garðabæ. Enn er stefnt að
opnun þess í lok maí.
Þetta staðfestir Steve Pappas,
aðstoðarforstjóri Costco í Evrópu, í
skriflegu svari við fyrirspurn Markað-
arins.
„Við teljum að 323.000 meðlimir
væri góð tala,“ segir Pappas og vísar
augljóslega í tölur yfir mannfjölda á
Íslandi.
„En í fullri alvöru þá erum við ekki
með einhvern kvóta eða þak á með-
limafjölda. Miðað við íbúafjölda
Reykjavíkur er ólíklegt að við munum
sprengja 13.300 fermetra húsnæði
okkar í fyrirsjáanlegri framtíð. Von-
andi munu flestar fjölskyldur og minni
fyrirtæki sjá sér hag í meðlimaaðild og
ganga í klúbbinn.“
Pappas, sem einnig ber ábyrgð á
rekstri Costco á Bretlandi, Spáni og
í Frakklandi, sagði í samtali við Vísi
þann 24. febrúar að hann hefði aldrei
á sínum 26 árum hjá Costco séð eins
mikla eftirvæntingu og undirtektir á
neinum nýjum markaði og Íslandi.
Varaforstjórinn vildi þó ekki svara því
hversu margir einstaklingar eða fyrir-
tæki höfðu þá keypt aðild að Costco.
Fyrirtækið hafði þá nýverið opnað
skráningarstöð á lóð sinni í Kauptúni.
Þar geta einstaklingar og forsvarsmenn
fyrirtækja keypt aðild að vöruhúsinu
og var talsverð umferð inn á svæðið
rétt eftir opnun. Aðgangur að verslun
Costco verður einungis opinn meðlim-
um. Pappas segir enn stefnt að opnun
í lok maí en á heimasíðu fyrirtækisins
segir að vöruhúsið verði opnað um
mitt ár 2017. – hg
Takmarka ekki fjölda Costco-meðlima
Verktakar ÞG Verks vinna við að undirbúa opnun Costco. Fréttablaðið/EyÞór
Steve Pappas,
varaforstjóri
Costco í Evrópu.
Þeir sérstöku skattar sem leggjast á íslensk fjár-málafyrirtæki munu að óbreyttu rýra heildar-virði bankakerfisins um allt að 280 milljarða
króna. Verði hins vegar af áformum
stjórnvalda um lækkun svonefnds
bankaskatts í þrepum á árunum
2020 til 2023 – skatthlutfallið á
skuldir fjármálastofnana lækki
þá úr 0,376% í 0,145% – þá nemur
virðisrýrnunin tæplega 150 millj-
örðum króna.
Þetta kemur fram í útreikningum
sem birtast í Hnotskurn, fyrsta rit-
inu í nýrri ritröð Samtaka fjármála-
fyrirtækja (SFF), en á árinu 2016
námu greiðslur íslenskra fjármála-
fyrirtækja vegna sérstakra skatta
samtals um 15 milljörðum. „Ekkert
Evrópuríki hefur lagt á bankaskatt,
skatt á launagreiðslur og viðbótar-
skatt á hagnað fjármálafyrirtækja
eins og gert hefur verið hér á landi,“
segir í ritinu, en höfundur þess er
Yngvi Örn Kristinsson, hagfræð-
ingur SFF. Þessir þrír skattar skiluðu
um tveimur prósentum af heildar-
tekjum ríkissjóðs í fyrra og sam-
svara um 0,6 prósentum af lands-
framleiðslu Íslands. Mestu munar
um bankaskattinn en hann er um
tíu sinnum hærri hér á landi en
almennt tíðkast hjá þeim Evrópu-
löndum sem á annað borð leggja á
slíkan skatt.
Íslenska ríkið fer með eignarhald
á stærstum hluta fjármálakerfisins
en miðað við núverandi eigið fé
bankanna nemur samanlagður
eiginfjárhlutur ríkisins í stóru bönk-
unum þremur um 480 milljörðum.
Samkvæmt nýbirtum drögum að
eigendastefnu fyrir fjármálafyrir-
tæki í eigu ríkisins stendur til, þegar
hagfelld og æskileg skilyrði eru fyrir
hendi, að selja 13 prósenta hlut í
Arion banka og 100 prósent í Íslands-
banka en halda eftir 34-40 prósenta
hlut í Landsbankanum. Fyrirséð er
því að endurheimtur ríkissjóðs verða
umtalsvert minni en ella við fyrirhug-
aða sölu á bönkunum vegna sérstöku
skattanna sem þeir greiða enda hafa
skattarnir þau áhrif að minnka veru-
lega arðsemi af rekstri.
Skatturinn hækkaður 2013
Í riti SFF er bent á að enginn af
þeim sérstöku sköttum sem nú
gilda um fjármálafyrirtæki er tíma-
bundinn. Bankaskatturinn, sem
leggst á skuldir fjármálastofnana,
var síðast hækkaður úr 0,041 pró-
senti í 0,376 prósent árið 2013 til að
standa straum af kostnaði við leið-
réttingu verðtryggðra íbúðalána
og um leið var undanþága slitabúa
gömlu bankanna til að greiða skatt-
inn afnumin. Í ríkisfjármálaáætlun
sem var afgreidd á Alþingi á síðasta
ári kom fram að hefja ætti lækkun
bankaskattsins á árinu 2020 í fjórum
áföngum niður í 0,145 prósent. Þessi
áform hafa þó ekki verið lögfest.
Í greiningu Yngva er með tvenn-
um hætti lagt mat á þau áhrif sem
hinir sérstöku skattar hafa á virði
Minnka virði banka um 280 milljarða
Sérstakir skattar rýra heildarvirði bankakerfisins um tæplega 280 milljarða. Verði af áformum um lækkun bankaskatts 2020 er virðis-
rýrnunin um 150 milljarðar. Ríkið er eigandi meirihluta hlutafjár bankanna og endurheimtur verða því minni en ella við sölu þeirra.
landsbankinn er að 98 prósenta hluta í eigu ríkisins og nam eigið fé bankans 251 milljarði í árslok 2016.
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Lánin færast yfir til
lífeyrissjóða
Á innlendum fjármagnsmarkaði er
vaxtastig á skuldabréfum banka um
3,5 til 4 prósent þegar um verðtrygg-
ingu er að ræða en 5-6 prósent á
óverðtryggðum skuldabréfum. Í riti
SFF er því bent á að bankaskatturinn,
sem er 0,376 prósent og leggst á
allar skuldir bankastofnana, sé veru-
legur í hlutfalli við vaxtakostnað.
Þetta veldur því, til viðbótar við
þann kostnað sem bankar þurfa að
bera vegna hárra eiginfjárkrafna, að
fjármálastofnanir eru í lakari sam-
keppnisstöðu en ella í meðal annars
lánveitingum með veði í fasteignum.
Þetta hefur birst í auknum umsvif-
um lífeyrissjóða á íbúða lánamarkaði
en ný útlán þeirra til heimila í fyrra
námu rúmum 89 milljörðum á
meðan lán banka og sparisjóða voru
á sama tímabili um 77,6 milljarðar.
Sjóðirnir voru með rúmlega 53 pró-
senta hlutdeild í nýjum útlánum á
þeim markaði á árinu 2016.
2015 2016
Bankaskattur 8,6 8,7
0,376% af skuldum
Fjársýsluskattur 2,4 2,5
5,5% af launum
Sérstakur fjársýsluskattur 3,7 3,7
6% af hagnaði umfram 1 milljarð
Samtals 14,7 14,9
✿ Borguðu 15 milljarða í sérstaka skatta
Skattar bankaskattur
ótímabundnir lækkaður
2020-2023
Bankaskattur 168 40
Fjársýsluskattur 37 37
Sérstakur fjársýsluskattur 71 71
lækkun á virði samtals 276 148
✿ Áhrif skattanna á heildarvirði banka
í milljörðum króna í milljörðum króna
bankanna. Annars vegar er gengið
út frá því að þessir skattar verði til
staðar ótímabundið og hins vegar
er miðað við að bankaskatturinn
lækki í þrepum frá og með 2020 í
samræmi við ríkisfjármálaáætlun.
Aðferðin sem er notuð felst í því
að núvirða áætlaðar skattgreiðslur
bankanna og að greiðslurnar haldist
óbreyttar frá því sem þær voru árið
2016. Við núvirðinguna er stuðst við
ávöxtunarkröfu á löngum óverð-
tryggðum ríkisskuldabréfum, sem
nú er um 5,1 prósent.
Samkvæmt þeim niðurstöðum
sem kynntar eru í ritinu gætu áhrif
sérstakra skatta á virði bankanna
verið á bilinu 148 til 276 milljarðar
króna. Til samanburðar nam bók-
fært eigið fé bankanna um 700
milljörðum í árslok 2016. Yngvi
Örn bendir á það í ritinu að ef áform
stjórnvalda ganga eftir, að lækka
gjaldhlutfall bankaskattsins í 0,145
prósent, sem neðri mörkin miðast
við, þá er það hlutfall nærri því sem
gert er ráð fyrir að bankar og önnur
fjármálafyrirtæki greiði til skila-
meðferðarsjóða innan ESB fram til
ársins 2023.
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
8 . m a r s 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U r4 markaðurinn
0
8
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
6
-F
E
8
C
1
C
6
6
-F
D
5
0
1
C
6
6
-F
C
1
4
1
C
6
6
-F
A
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K